Íslendingaþættir Tímans - 01.09.1971, Síða 25

Íslendingaþættir Tímans - 01.09.1971, Síða 25
ina í Húnavatnssýslu, þegar liann var að vaxa upp, að gamla fólkið hefði verið unglingum eins og lif andi fræðibók. Það var þeirra kennarar. Nú er öld önnur. Um loftslagið og lifnaðarhættina í Flat ey sagði Sigurveig á Bjargi eftir 50 ára dvöl þar, útflutt þangað innan úr mannfleiri dölum, að í Eynni hefði hún fundið heilsuna og hamingjuna. Hún var þar Ijós- móðir og viðlaga-læknir með dá- lítið apótek í skáp, ómissandi kona byggðarlaginu. Þegar til sögunnar er litið sést að oft hafa sannazt orð Darraðarljóða: Þeir munu lýðir löndum ráða er útskaga áður of byggðu. Nú eru þessir uppeldisstaðir orðnir að ólöndum í augum ökk ar og dæmast úr leik, í bili, að minnsta kositi. En gæti ekki skeð að þar biðu varasjóðir eða jafnvel bjargráðasjóðir í einhverri niynd, þegar stundir líða? Hver veit nema hólminn okkar eigi eftir að stækka aftur? Vík á Flateyjardal var stór Dauðavorið, þegar bóndinri þar, Iijálmur Finnbogason, bjargaði mörgu vergangsfólki frá hungur- dauða „af miklu veglyndi“. Nausta vík líka sama vor, þegar bóndinn þar tók heilan hóp af dauðvona fólki á bæ sinn hélt lífi í öll- um, eftir því sem sögur herma. Auk þess fór sjófangið frá honum um Kinn og næstu dali til bjarg- ar í hungursneyðinni. Hann hét Vigfús. Mörg, mörg dæmi önnur mætti tilfæra um gildi þessa i byggðarlaga meðan þau hétu ( ; voru. Ég hitti Björgu seinast á síðasta hausti nýkomna norðan af Dal. Hún var þar að heilsa upp á og kveðja smalastígana sína, sem horfnir eru í lyng, engjagöturnar, sem nú fela sig í grasi, og bæj ina, sem horfnir eru ofan í jörð- ina. Bróðir hennar, Grímur, held ur við húsi sínu á Jökulsá og frændur öðru á Brettingsstöðum. Þarna dvelur þetta fólk oft á sumr um. Þetta vár hennar afmælisför til draumalandsins. Þarna hitti hún frændur og/forna sveitunga með ófúnar rætur til Dalsins eins og hennar. Hún var hamingjusöm yfir að hafa notið áhrifavalds gam alþekktra slóða. Brosleit heilsaði hún gesti sínum á hlaði úti eins og ævinlega. Ofhraði æviáranna var ekki enn farinn að heimta verulega skatta. Enn hélt hún sinni reisn, sem minnti á 30—40 ára at- burði. Til dæmis: Hún var að slá gulstör með grindarljá suður við Karlsá á sjálfan réttardaginn í krapahríðarveðri, skáraði stórum og sópaði störinni saman í múga. Hún kastaði aðeins mæðinni og gerði gaman að ágirnd sinni til stráanna, sem voru að leggjast und ir snjó og verða engum að gagni, nema þetta tækifæri væri notað. Það var eins og sólbráð fylgdi orð unum. Öðru sinni hitti ég hana í útmánaðastórbríð út við læk að vatnsburði í bæinn, í fjósið, í fjár húsin. Bóndinn lá í rúminu og gat sig varla hrært, og engan ann an að senda í húsinu. Hún hálf hló framan í kófið og hélt að nú væri hún tæplega nógú nettleg og umvafin yndisþokkanum. Hríðin og allt andstreymi hopaði fyrir svona skemmtilegri skapgerð og atorku. Þetta var náttúrlega á undan sláttuvéltækninni og leiðslu ofan úr fjalli, spor, sem fljúga fyrir milli þess, sem var og orðið er. Já. Það vottaði fyrir að aðeins þyrfti að taka meira á en forð- um daga við lækinn. Það gægðist fram í sambandi við eitthvað og eitthvað annað, eins og óvart, að bezt væri hverjum að fara áður en f ann yrði öðrum til byrði. Ö rum til byrði? Ný kynslóð var að vísu tekin við að náttúrlegum lögum. En Björg hélt reisn sinni. Enn átti hún miklu hlutverki að gegna á heimili sínu. Enn færði hún hluti til góðs vegar. Enn vildi tengda dóttirin, elzta, helzt hafa hana sem næsta sér. Samvinna þeirra var elskuleg eins og samvinna á að vera. Ekki er það geðfeld tilhugsun, þeim sem verið hafa samferðar- mönnum ómissandi, að verða þeim allt í einu til byrði. Björg þurfti aldrei að bíta í það beiska bris. Hún stóð á eigin fótum meðan stætt var. Nær vordögum lagðist hún undir hníf á sjúkrahúsi Akur eyrar, að áeggjan barna sinna. Ná lega jafnsnemma var Sigurbjörn fluttur til Húsavíkur á sjúkrahús. Lengi hafði hún hjálpað honutn veikum. Nú orkaði hún ekki meira. Sá kapituli í sögu hennar er vissu- lega umtalsverður, þó honum verði að sleppa. Björg andaðist snögglega á Skír dag. Uppskurður var vonlítill fyr ir fram séð og árangur enginn þegar til kom. Hún hélt huga og gamansemi til hinztu stundar og varð að ósk sinni: engum til byrði. Börn Bjargar og Sigurbjörns sex að tölu hafa öll eitthvað gott frá henni fengið. Þau eru: Grímur og Sigurður, heima á Björgum, Guð- rún, Ásgerður og Jón búa á Akur eyri, Lovísa er húsfreyja á Stein kirkju í Fnjóskadal. Hlöðvers er áður getið. Hann er bóndi á Björgum, kvæntur Ástu Pétursdóttur frá Gautlöndum. Bjartmar Guðmundsson. ÍSLENDINGAÞÆTTIR 25

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.