Heimilistíminn - 24.10.1974, Blaðsíða 3

Heimilistíminn - 24.10.1974, Blaðsíða 3
Snjalli alvitur! Við erura hérna tvær frænkur og okkur langar til að fá svör við nokkr- um spurningum. Hvaða skóla þarf maður að fara i eftir gagnfræðapróf til að verða handavinnukennari? Þarf að fara i einhverja undirbúningsdeild? Kemst maður úr gagnfræðaskóla i handavinnukennaraskóia eða þarf að fara i kennaraháskólann? Hvað er þetta margra ára nám eftir gagnfræðapróf? Tvær vopnfirzkar Svar: Þvi miður verð ég að valda ykkur vonbrigðum, því bjá mennta- málaráðuneytinu fékk ég þær upp- lýsingar, að enginn yrði handavinnu- kennari, nema hafa stúdentspróf. Handavinnukennaraskóli er vist ekki til ennþá. Og svona að endingu: Stafsetningin er afleit. Alvitur Kæri Alvitur. Ag hef skrifað þér áður og fengið gott svar. Nú er ég hér aftur með spurningu svipaðs eðlis. Það er varð- andi kvæði eftir Kristján Jónsson, sem hefst þannig: „Norður við heimskaut, i svalköldum sævi” og þá einkum fjórðu ljóðlinuna, en hún virðist nokk- uð á reiki. , „Þrúðvangi SVEIPUÐ með mjallhvita brá” er sums staðar, en annars staðar „Þrúðvangi SVIP- UÐ....” A plötu er sungið SVEIPUÐ og tel ég það rangt með farið. Ég hef við höndina 3 bækur og I þeim öllum stendur SVIPUÐ. Einhvers staðar las ég að Þrúðvangur væri leikvangur eða orrustuvöllur og það getur verið erfitt að sveipa honum um eitthvað. Getur þú sagt eitthvað um þetta? E.G. Svar: Kennarar minir i skóla minntust á þetta ósamræmi á sínum tima, en enginn þeirra treysti sér til að vita hvort er rétt. Ég fletti upp i tveimur bókum, sem ég hef við höndina, önnur er Ljóðmæli Kristjáns siðan 1946 og i hennistendur „þrúðvangi sveipuð” og er þrúðvangur þar með litlum staf. Hin bókin er vasasöngbók siðan 1965 og i henni er þetta öfugt. „Þrúðvangi svipuð” og Þrúðvangur með stórum staf. Ég treysti mér ekki til að skera úr um neitt I þessu sambandi, en áreiðan- lega hefur Fjallaskáldið átt við eitt- hvað ákveðið með þessum orðum. Alvitur. Kæri Alvitur. Ég ætla að biðja þig að svara tveim- ur spurningum fyrir mig: Er hægt að þreyta inntökupróf i Verzlunarskólann eftir þriðja bekk gagnfræðastigs? Hve há eru vetarskólagjöldin i Verzlunar- skólanum. G.H. Svar: Venjulega er inntökupróf i Verzlunarskólann miðað við gagn- fræðapróf eða landspróf, en 3. bekkjarpróf er þó ekki útilokað Við þær aðstæður þarf nemandinn þó að taka inntökuprófið i mun fleiri grein- um. Vetrarskólagjald hefur verið 10.500 krónur. Alvitur. Kæri Alvitur. Ég ætla að biðja þig að svara eftir- farandi spurningum: 1. Hvar fást stultur og hvað kosta þær? 2. Hvað heldurðu að góður plötuspilari kosti næsta haust? 3. Hvað kostar Afrikuferð fram og til baka með skipi? Ein forvitin. Svar: Eftir þvi sem ég kemst næst fást stultur hvergi i Reykjavik, að minnsta kosti ekki i venjulegum verzlunum, svo að þú verður bara að láta smiða þær undir þig. 2. Þú ættir nú að vera farinn að gera þér grein fyrir þvi, að verðlag á Islandi er einn óáreiðanleg- asti hlutir i heimi og ég gæti ekki svar- að um það ár fram i timann, þó ég ætti að vinna mér það til lífs. Eina ráðið er að hringja i hljómtækjaverzlun næsta haust og spyrja. 3. Afrika er nokkuð stór og verð ferðar þangað fer talsvert eftir þvi hvert er farið og hvaðan, en um það nefnir þú ekkert. Ég veit held- ur ekki til þess að skip séu i Afriku- ferðum frá Islandi. Alvitur. Meðal efnis gr I || W Hvað veiztu? — 19 i þessu blað ■ • Nokkrir blómkálsréttir — 20 1 • Faðir og sonur: Könnuðirnir — 22 Merkar uppf inningar: Ritvélin .. — 24 Eruþæreins? — 25 Onedin er önnum kaf inn ... bls 4 ,,Moldvörpumaðurinn" — 26 Fullmótuð kona — 28 Engill í tötrum, smásaga ... — 6 Er HANN meðskegg? — 29 Þrettán er happatala sumra ... — 9 Skólav.esti með tíglamynstri — 30 Hlekkjaðar sálir ... — 10 Börnin teikna — 31 Pop—Todd Rundgren ... — 12 Af lesarinn gerði skyssu — 32 Uggi urriði á ferðalagi, barnasaga .... ... — 13 Kötturinn Bastian, f rh. saga .... — 33 Spé-speki ... — 15 Ókunnur eiginmaður, f rh. saga . — 35 Hann glataði æsku sinni ... — 16 Ennfremur skrítlur, krossgáta, Alvitur svarar Aðeldastsaman ... — 18 o.fl. - 3

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.