Heimilistíminn - 24.10.1974, Blaðsíða 9

Heimilistíminn - 24.10.1974, Blaðsíða 9
Þrettán er happatala sumra Hvers vegna ætti 13 að vera óhappatala? Því ekki 10 eða 22? TALAN 13 hefur lengi veriö sett i sam- band viö óheppni, en þótt ótrúlegt megi viröast, er taliö heppilegt aö vera fæddur þann þrettánda! Viö segjum aö það boði ógæfu að sitja þrettán til borös, vegna siöustu kvöld- máltiöar Jesú, en raunverulega er þessi hjátrú eldri en kristnin. I norrænu goða fræðinni sátu þrettán til borös, og þrettándi gesturinn, sá óboöni, var Loki, sem siðar olli dauða Baldurs hins góöa Ass, sonar Óðins. í báðum tilvikum var svikari viöstaddur, og siðan er það al- menn trú, að dauðinn sitji við borö, þegar þannig stendur á. Nokkuð er mismunandi eftir stööum, hverju trúað er i þessu sambandi. Sums staöar á sá, sem fyrstur yfirgefur boröiö, að vera feigur, annars staöar er þaö sá siðasti, og enn annars staðar eiga allir aö vera i lifshættu, sem hætta sér tii að setj- ast aö 13 manna boröi. Fyrir kemur lika að taliö er, stórhættulegt að vera I her- bergi með tólf öörum, einkum þó, fyrir þann, sem næstur er dyrunum. Ógæfa er einnig tengd tölunni 13 aö ööru leyti, sumpart vegna þess, aö trúaö var aö nornasamkvæmi væri 13manna veizla, og að sá 13. væri hinn vondi sjálfur. Hóteleig- endur hafa sjaldan númer 13 á herbergi, og viöa er ekki til 13. hæð i hótelum. Hús númer 13 er oft erfiöara aö selja en önnur, og til dæmis i Paris er hvergi til hús númer 13. Þar er líka til fólk, sem tekur fé fyrir aö vera 14. manneskja i veizlu, ef þannig stendur á. Þá er taliö varasamt að byrja á nokkru nýju 13. dag mánaðar, alls ekki gifta sig né leggja af staö i feröalag. Sjómönnum er illa viö aö láta úr höfn 13., einkum ef það skyldi lika vera föstudagur (kross- festingardagurinn), og eins og sagan seg- ir, einnig dagurinn þegar Adam og Eva átu forboðna ávöxtinn og þegar þau dóu. 9

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.