Heimilistíminn - 24.10.1974, Blaðsíða 37

Heimilistíminn - 24.10.1974, Blaðsíða 37
spenningi og kjóllinn var eins og hanzki niður að mitti, en breiddi síðan úr sér niður undir gólf. Þegar hún snéri sér var pilsið eins og ský í kringum hana. Hún stóð grafkyrr, þegar Neil barði að dyrum. — Janet? — Já, ég er að verða til. — Fínt! AAá....má ég koma inn? Þetta var í fyrsta sinn, sem hann hafði spurt um nokkuð slíkt og hon- um fannst hann kjánalega feiminn, því hann var hræddur um að hún neitaði og vissulega hafði hún fullan rétt til þess. — Auðvitað. Rödd hennar var róleg, þó hjartað tæki undir sig svolítið stökk. — Dyrnar eru ekki læstar. — Ekki læstar? hrökk upp úr honum í undrunar- tón og hann tók i handfagið. — Þær voru ekki læstar, þegar ég kom og hafa ekki verið það síðan, sagði hún, þegar hann nam staðar í gættinni. Hann renndi augunum niður eftir henni og hún stóð og beið...þráði að hann segði, að hún liti vel út. — Þú lítur mjög vel út, sagði hann, í dálítið þvinguðum tón og var alveg undrandi á, hvað hún gat breytzt. — Kjóllinn þinn...mér finnst hann fallegur. — Það var gaman, sagði hún og vonaði að honum fyndist það líka, þegar hann fengi reikninginn. En hvers vegna kom hann inn til hennar, Hann hafði aldrei áður notað dyrnar milli herbergjanna. — Þú ert allt öðruvísi, sagði hún andstutt. Það var ekki furða, því hann var í kjól og hvítu, hreinn og rakaður og vandlega greiddur. Afar virðulegur maður, hugsaði hún. Hann rétti henni kassann og tók um leið eftir, að hún hafði perlufesti um hálsinn. Ef hann mundi rétt hafði hún fengið hana í brúðargjöf frá starfs- fólkinu í AAávakaffi.. — AAér datt í hug, að þú vildir kannski hafa þetta. AAamma átti það...hann opnaði kassann og Janet starði stóreyg á glitrandi demantana. — Ó, Neil! Húnsnerti festina varlega með fingur- gómunum. — Þeir eru eitthvað svo raunverulegir....Hún leit á hann næstum með skelfingarsvip. — Þeir eru ekta, sagði hann stoltur. — Demantar. Pabbi gaf henni þá, ég held, að það hafi verið á tuttugu ára brúðkaupsafmælinu. — Og svo vilt þú, að ég haf i þá um hálsinn í kvöld? hvíslaði hún. — Já, gjarnan og alltaf þegar tækifæri gefst. Þú átt þá núna. — 0, þúsund þakkir. Heimskuleg, ófullnægjandi orð. Hún lyfti handleggjunum og reyndi að opna lásinn á perlufestinni, en var svo skálfhent, að hún gat það ekki. Hún hugsaði stöðugt um hvernig hún gæti þakkað honum almennilega. — Lofaðu mér að hjálpa þér. Hann færði sig og hún fann f ingur hans snerta húð hennar. Hún skalf við snertinguna. Hann fann það og beit saman vörunum. Hann næstum þreif af henni perlurnar og lagði síðan hina festina á sinn stað. — Þarna! Hann steig skref aftur á bak. Janet gekk beint að speglinum. — O, þetta er dá- samlegt, sagði hún lágt. — Ég vona, að það detti ekki af. — Það er með öryggislás. Hann rétti henni kass- ann. — Það er bezt að þú geymir þetta og þegar þú ert ekki að nota það, skal ég geyma það i peninga- hólfinu á skrifstofunni. — Ég hef aldrei á ævi minni séð svona ekta steina! Ó, Neil, þúsund, þúsund þakkir. Hún starði bergnumin á steinana, sem glitruðu þegar hún hreyfði sig. — Nei. Honum leið undarlega og óþægilega þar sem hann stóð þarna í miðju herberginu. Þetta var orðið ákaf lega kvenlegt herbergi, tók hann eftir og veika ilmvatnslyktin sem hann hafði fundið á bað- inu, var hérna Ííka. — Ég meina já. Það er fallegt. Ertu tilbúin? Ray bíður áreiðanlega eftir okkur og við þurfum að koma við hjá Luke. Ray beið eftir þeim í ganginum. Hann haf ði heyrt þau tala saman inni í herbergi Janetar og horft spyrjandi á dyrnar. Athyglisvert, mjög athyglis- vert. Spurnin í svip hans jókst um helming, þegar hann sá þau koma út úr herberginu. Janet brosti, svolítið feimnislega, að því virtist og Neil var eins og hann hefði verið staðinn að einhverju ólöglegu. — Ég var að gefa Janet hálsfestina hennar mömmu, sagði hann hátíðlega og Ray leit á mág- konu sína. Það fyrsta sem hann tók eftir, var að hún bar enga aðra skartgripi, þá hefði hún líka eyðilagt heildarsvipinn. Hann hafði svo sem vitað að hún myndi eignast skartgripi móður þeirra einn góðan veðurdag, þrátt fyrir allt. Hún var eiginkona eldri bróðurins, svoþað var ekkertáfall. Hins vegar varð það honum áfall, að komast að raun um, að Janet var falleg. Þetta var allt önnur Janet, alveg frá hvirf linum á glansandi hárinu til tánna á litlu gylltu samkvæmisskónum Hún var ekki lengur föl, vangarnir voru rjóðir og augun Ijómuðu. AAeira að segja liturinn á varalitnum var alveg hárréttur og Ray setti upp viðurkenningarsvip um leið og hann kinkaði kolli. — Já, hún tekur sig reglulega vel út þarna, sagði hann. — En afgangurinn af mér? spurði Janet bros- andi. — Það er ekkert út á hann að setja. Janet var ánægð með þetta svar, því það var miklu jákvæðara en hún hafði búizt við. Leiðinlegt að hún skyldi þurfa að fela alla dýrð- ina undir gömlu vetrarkápunni, en hún átti ekkert annað og það var nauðsynlegt að vera í einhverju hlýju þessa löngu leið. Hún sat við hlið Neils í fram- sætinu og þau fóru ekki út úr bílnum, þegar þau komu að heimili Lukes. Hann stóð og beið þeirra, hávaxinn og glæsilegur með sígarettu í munnvik- Framhald 37

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.