Heimilistíminn - 24.10.1974, Blaðsíða 12
I
TODD
RUND-
GREN
TODD RUNDGREN byrjaði að spila á
gitar, en það var ekki nokkur sála i
Pennsylvaniu i Bandarikjunum, sem
vildi hlusta á hann. Þessi sorglega
staðreynd hefði orðið sumum næg
ástæða til að leggja gitarinn á hilluna,
en ekki Todd. Hann haggaðist hvergi
og sagði, að þetta væru bara byrjunar-
örðugleikar.
Ekki gekk það öllu betur eftir að
hann gekk i hljómsveitina Woody’s
Truckstop. beir félagar áttu sér að
visu aðdáendur, en bara svo sárafáa,
að þaö svaraði varla fyrirhöfninni að
halda hópnum saman.
Þriðja tilraun Todds reyndist öllu
bezt. Hann hafnaði i hljómsveitinni
Nazz og varð þar smám saman
miðdepillinn, sem allt snerist um.
Hann stóð að baki metsölulaginu
„Hello, it’s me”, en þrátt fyrir að nú
færðust allir hlutir upp á við, for eitt-
hvert eirðarleysi að sækja á Todd.
Honum fannst þetta ekki nóg og vildi
komast lengra og sagði sig úr Nazz:.
Þá tók hann að gerast umsvifa-
mikill, söng, samdi lög og texta og
fékk mikinn áhuga á tæknilegri hlið
plötuútgáfu Hann eyddi miklum tima i
að sitja i upptökusölum til að kynnast
hinum ýmsu tækjum þar. Loks fékk
hann leyfi til að hefjast handa við
upptöku á LP-plötunni „Runt”. Ekki
vantaði að tekið væri eftir árangrin-
um. Gallalaus var platan ekki að visu,
en auðheyrt var þó, að Todd Rundgren
var ungur maður, sem vert væri að
fylgjast með. Platan er öll hans verk.
Hann gaf hana út, leikur sjálfur á öll
hljóðfærin, trommur og sex mismun-
andi gitara með meiru.
Þessi góða byrjun varð til þess, að
Todd er nú eftirsóttur til plötugerðar.
Hljómsveitin The Band, sem er allvel
þekkt, vildi fá hann til að framleiða
sinar plötur og ýmsar stakar fylgdu i
kjölfarið.
En þó Todd væri önnum kafinn við
að framleiða plötur fyrir aðra
listamenn, gaf hann sér tima til að
koma eigin tillagi á framfæri. Hann
söng inn á litla plötu „We gotta get you
á woman”, sem varð mjög vinsæl og
siðan komu tvær LP-plötur „The
Ballad” og „Somehting..........any-
thing....” Af þeirri siðarnefndu var
tekið eitt lag á litia plötu, „I saw the
light” en það hefur ekki náð vinsæld-
um.
— Maður verður að vera viðbúinn
sliku á þessu sviði, segir Todd Rund-
grem — Það er aldrei hægt að vita
fyrirfram, hvað verður vinsældt og
hvað ekki.
\
12