Heimilistíminn - 24.10.1974, Blaðsíða 29
Er HANN með skegg?
EF sá útvadi er skeggjaður, hafið þið konur vafalaust einhvern
tima reyntað snyrta skegg hans. Kannski hafið þið lika einhvern
tima klippt skakkt og vogið ykkur nú ekki að reyna aftur. En þar
sem svo margir karlmenn eru nú með skegg, er ekki úr vegi að
koma með nokkrar leiðbeiningar um skeggsnyrtingu, ef þið
skylduð vilja reyna.
Takið fyrst til alla hluti, sem þarf að nota, góð skæri, greiðu og
kannski raksköfu, handklæði og reglustiku, ef þið hafið aldrei
reynt áður.
Sé maðurinn með barta og yfirskegg, er best að byrja á
börtunum, klippa þá til og raka meðfram, þannig að linurnar
verði hreinar og bartinn breiðastur neðst Loks er klippt jafnt
ofan af, þannig að ekki standi löng hár út i loftið. Gott er að mæla
breiddina á nokkrum stöðum með reglustikunni, áður en byrjað
er á hinurn vanganum. Tilheyrandi yfirskegg á að vera alllangt.
Réttið það út milli tveggja fingra og klippið þvert fyrir. Aðeins
menn með tiltölulega slétt skegghár geta haft langt yfirskegg,
sem snúa má upp eða niður eftir vild. Skegg eins og á mynd 2
fylgir eðlilegri hárlinu, og þarf þvi aðeins að klippa það til og
jafna, þannig að það virðist þéttara. Yfirskeggið er greitt beint
niður og klippt jafnt varalinunni og siðan greitt til hliðanna Yztu
hárin mega vera löng, en þau þarf að jafna lika, og gætið þess að
þau séu einungis utan varanna, en hangi ekki niður yfir þær. Oft
vex skegg dálitið öjafnt undir hökunni, en flestir eru þeirrar
skoðunar, að enginn taki eftir þvi. Það er þó misskilningur, og
þess vegna þarf að marka þar linu lika og klippa neðan af, svo að
stök, löng hár lafi ekki niður. Skegg eins og á mynd 5 þarf að
snyrta reglulega, halda llnunum hreinum og jafna stöðugt, svo
það standi ekki I allar áttir. Hárin mega ekki verða löng, og
maður meö svona skegg þarf að hafa nokkuð þéttan skeggvöxt.
Eins og með skeggið á siðustu myndinni, það þarf að falla vel
saman við hárið framan við eyrun.
Mikið þarf að nota greiðu við skeggsnyrtingu og er betra að
hafa hana þétta. Skegg er nær alltaf talsvert hrokkið, og þarf þvi
aö rétta vél úr þvl, áður en klippt er,og til þess er greiðan.
Greiöið út og klippið, aftur og aftur, þar til skeggið er jafnt og
þétt. Gangi ykkur vel.