Heimilistíminn - 24.10.1974, Page 36

Heimilistíminn - 24.10.1974, Page 36
— Eg qet ekki sagt, að ég kunni við þetta, sagði hann meðan hann skar brauðið og Neil leitaði að bollum og diskum. — Nei, það hefur verið dekrað við okkur. Neil brosti til Rays. — Henni hefur tekizt þetta vel, finnst þér ekki, miðað við, hvernig hún hafði það áður? — Hvað gerði hún, þegar þið kynntust? spurði bróðir hans forvitinn. Neil hikaði andartak, en það þjónaði engum til- gangi að leyna sannleikanum. — Hún vann á kaffihúsi. — O, Ray varð svo hissa, að spurningin, sem brunnið hafði á vörum hans í margar vikur, datt upp úr honum. — Neil, af hverju kvæntistu henni? Neil rétti snögglega úr sér. Svo ákvað hann að reiðast ekki. — Hvers vegna giftist fólk, spurði hann í léttum tón. — Venjulega ástæðan er af því það elskast, býst ég við, svaraði Ray hægt. — Jæja, þá....Hann mætti augum Rays og Ray hugsaði sig um. Hann langaði ekkerttil að rífast við bróður sinn,aðeins vita sannleikann. Honum fannst hann eiga rétt á að vita hann, en þetta ískalda augnaráð þekkti hann allt of vel og vissi, að það boðaði oft heiftarlegt reiðikast. Þess vegna yppti hann bara öxlum. — Allt í lagi, þá kvæntistu henni af því að þú elsk- ar hana! Hann tók smjó'rklípu og reyndi að smyrja brauðsneið. En smjörið kom beint úr ísskápnum og var hartog molaðist bara niður. Ray velti fyrir sér, hvernig Janet tækist að koma því alltaf jafnt á brauðið og jafnf ramt hugsaði hann sér að hafa síð- asta orðið í umræðunum og bætti við: — En mér þykir þú sýna það á einkennilegan hátt. AAáltíðin var þögul eftir þetta og báðir sátu og óskuðu þess að Janet væri þarna. Hún var alltaf svo blíð og gamansöm meðan þau borðuðu og spurði ótal spurninga um það sem gerzt hafði yf ir daginn. Þeir höfðu mörgum sinnum hlegið hjartanlega að fávizku hennar um búskapinn, en hún hafði ekkert á móti því. Hún viðurkenndi, að hún ætti margt ólært og að reynslan væri bezti skólinn. Neil varð hugsað um allar spurningar hennar, þegar hún var að læra á bílinn og hann fékk vott af samvizkubiti. Hann hafði ekki hjálpað henni. Þegar hann fór að hugsa um það hafði hann hreint ekki hjálpað henni mikið yf irleitt eftir að hún kom og látið hana bjarga sér sem bezt hún gat. Hann lofaði sjálfum sér að Ijúka við að mála stofuna eins og hún hafði beðið hann, svo leit hann á Ray og vonaði að hann spyrði ekki svona spurninga aftur. Stundum langaði hann mest til að skýra þetta allt fyrir bróður sínum, en það væri varla sanngjarnt gagnvart Janet. Hann hafði gert henni nóg rangt þó hann færi ekki að opinbera þetta lika. — Hefurðu fengið nokkurt bréf frá Phoebe 36 frænku, síðan þú komst heim? Ray áleit bezt að skipta um umræðuefni og undraðist að bróðir hans stokkroðnaði við spurninguna. Phoebe f rænka! Hvernig gat Ray dottið hún í hug einmitt núna? Það var þó hún sem var ástæðan til allra vandræðanna. — Nei, svaraði hann stuttlega og lauk úr kaffi- bollanum. — Ertu búinn? Ray andvarpaði og stóð upp. Stundum sagði hann eintóma vitleysu, en hann óskaði þess eins, að þeir bræður yrðu aftur jaf n góðir vinir og í gamla daga. Það var enginn heima, þegar Janet kom aftur og hún stundi lágt, þegar hún kom inn í eldhúsið. Al- veg var það stórmerkilegt, hvernig tveir karlmenn gátu valdið svona mikilli óreiðu á stuttri stundu. Brauðmylsna var út um allt, bæði gólf og borð, smjörið stóð bráðnað á borðinu og appelsínuhýði og sigarettuaska vará diskunum. Neil hafði greinilega slegið úr pípunni sinni í eina skálina. Hún brosti, hann þorði aldrei að gera slíkt, þegar hún var viðstödd. Allt kvöldið og næsta dag hugsaði hún um dans- leikinn. Hún hafði ekki fengið miklar upplýsingar hjá bræðrunum. Ray hafði þó sagt, að það yrði dansað alla nóttina og Neil að frú Campbell byggi til heimsins bezta mat. Hún vissi að þátttakan kost- aði nokkur hundruð krónur á mann og peningarnir runnu til góðgerðarstarfsemi. Síðdegis var komin einhver spenna í andrúms- loftið á Burnettia. Janet notaði baðið fyrst og allan tímann, sem hún var þar inni, bönkuðu bræðurnir til skiptis á dyrnar og spurðu, hvort hún væri ekki að verða búin. Þegar hún svo hvarf inn í herbergi sitt, skildi hún eftir veika ilmvatnslykt.sem fór eitthvað í taugarnar á Neil, því hann fussaði hátt, þegar hann skauzt inn á baðið framhjá bróður sinum. En honum fannst lyktin góð, þegar allt kom til alls. AAeðan hann baðaði sig og kallaði til Rays að láta ekki svona á hurðinni, hugsaði hann um, hvað Janet segði, þegar hann gæf i henni hálsf estina,sem móðir hans hafði átt. AAeðan hann klæddi sig, leit hann öðru hverju á svarta skinnkassann og oftar en einu §inni opnaði hann hann til að horfa á demantana glitra í Ijósinu. Þetta var einkar fallegur gripur. Steinarnir voru festir með dálitlu millibili á mjóa platínukeðju. Frú Stonham hafði verið smávaxin kona og alltaf haldið því fram, að stórir skartgripir yrðu hlægilegir á sinni litlu persónu. Slík athugasemd hafði kallað fram bros hjá allri f jölskyldunni. Janet var líka lítil og grönn og hann leit á hurðina, sem aðskildi her- bergi þeirra. Kannski ætti hann að gefa henni fest- ina áður en hún kæmi fram, svo að Ray sæi það ekki. Hann flýtti sér að klæða sig. Janet stóðog virti sjálfa sig fyrir sér í speglinum. Hún trúði varla, að þetta væri hún sjálf. Liðað hár- ið, stuttklippt eins og hún vissi að fór henni bezt, glitraði næstum í Ijósinu. Andlitið var rjótt af

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.