Heimilistíminn - 20.03.1975, Blaðsíða 7
ar dætur þeirra á undan sér til Þýzka-
lands, þvi sjálfur hafði hann of mikið að
gera og var heldur ekki vel friskur. Hann
œtlaði að koma seinna.
Eyöslusemin eykst
Konungurinn hafði lofað Wagner húsi,
Þjónum, hestum og vögnum, öllu sem
hann óskaði. Þegar Cosima kom, var hús-
ekki tilbúið, þvi Wagner var svo sérvit-
ur, að það tók iðulega vikur, að útvega
honum nákvæmlega það sem hann vildi.
Þegar hún kom, bjó hann við vatn eitt og
hafði aðeins einn þjón hjá sér og auðvitað
hund. Hann vann enn að Tristan og Isolde,
sem var fyrsta óperan, sem sýnd var i
Munchen. Konungurinn hafði sjálfur séð
um uppsetningu hennar og útvegað bestu
fáanlega söngvara, tónlstarmenn, bún-
*uga og leiktjöld.
En hvað um Minnu? Hún fékk enga
hlutdeild i þessu nýja áhyggjulausa lifi
uianns sins. Hún var nú orðin öryrki til
lifstiðar og þau Wagner höfðu ekki búið
saman i mörg ár. 1 tilefni silfurbrúðkaups
þeirra fjórum árum áður, skrifaði hún
vinkonu sinni að hún óskaði þess aö hægt
v®ri að þurrka þessi 25 ár úr lifi sinu....
Næsta barn Cosimu, stúlka, fæddist niu
uiánuðum siðar og hlaut nafnið Isolde. Þá
vissi Hans ekki enn, að hann var ekki fað-
'rinn. 1 Munchen gerðist Cosima eins kon-
ar framkvæmdastjóri Wagners. Lánar-
drottnar voru enn á hælum hans, en hann
fyllti húsið af silki og satini og garðinn af
rósum og páfuglum. Bleikt, purpurarautt,
gýllt og fjólublátt. Skaplyndi Wagners
hreyttist með hverjum lit og hann hélt því
fram, að hann gæti ekki unnið, nema hafa
fagra hluti i kring um sig. Eyðslusemi
hans var gegndarlaus og daginn, sem
Tristan og Isolde var sýnd i fyrsta sinn,
kom fógetinn og fjarlægði öll húsgögmin
ór húsinu vegna gamallar skuldar.
Sýningin, sem Wagner sjálfur taldi
fullkomna, varð fyrir mörgum ó-
höppum þennan dag, Söngkonan
Sem söng Isolde, missti röddina vegna
gufubaös og aflýsa varð sýning-
Ul*ni. Fólk haföi komið til Munchen
við fagnaðarlátunum með Tristan og
Isolde við hlið sér, konunginn i konungs-
stúkunni og Cosimu meðal áhorfenda.
þrjú kraftaverk
Ekki leið á löngu, unz Hans von Bulow
uPpgötvaði að hann hafði verið svikinn,
bæði af konu sinni og besta vini. Wagner
varð svo óvinsæll I Munchen vegna lánar-
drottnanna og slúðursagna, að hann
neyddist til að yfirgefa borgina. Hans
varð eftir i Munchen og þegar Minna lézt
fveimur árum slðar, sótti Cosima um
shilnað og giftist Wagner. Þaðan I frá
sleppti hún ekki af honum hendinni og þau
elskuðust innilega. En Wagner átti þá að-
eins ellefu ár ólifuð.
Þau Cosima höfðu þegar eignast aðra
dóttur, Evu og eftir að þau giftu sig, fædd-
ist sonurinn, Siegfried.
Þrjú kraftaverk urðu i lifi Wagners.
Það fyrsta að konungurinn skyldi senda
eftirhonum frá Munchen, annað, að hann
skyldi loks finna konu, sem var honum
samboðin og skildi hann og það þriðja
gerðist eftir að hann fór frá Munchen til
litla bæjarins Bayruth i Bayern, sem átti
eftir að verða svo frægur.
Þegar leið að ævilokum Wagners, gerð-
ist hann æ sérvitrari. I garðinum utan við
stóra húsið reisti hann sitt eigið grafhýsi.
Það var i Feneyjum, sem hann las
textann að Tristan og Isolde fyrir Cosimu
og Hans og nú var hann kominn þangað
öðru sinni og lauk við Parcifal, slðustu
óperu sina. Hann var enn i Feneyjum,
þegar hann 15. febrúar 1883, féll skyndi-
lega niður og lézt. Þá var hann sjötugur
að aldri.
Niðurbrotin af sorg tók Cosima likið
með sér til Bayern. Það eina, sem hún
gerði sér grein fyrir, var að hún yrði að
hafa styrk til að halda áfram með tónlist-
arhátiðina i Bayruth, þannig að bærinn
gæti orðið frægur fyrir tónlist mannsins,
seih hún elskaði svo heitt.
Hvað grafhýsið varðaði ... Um mið-
nætti, rétt eftir aö Wagner hafði verið
jarðsettur, reið Ludwig konungur einn inn
i garðinn fullan af rósum og páfuglum.
Þögull sat hann þar á hestbaki i tungl-
skininu, og sýndi snillingnum Richard
Wagner hinztu virðingu.
— Þetta er áreiðanlega sonur minn!
— Ég þoli ekki aö sjá þig strita
svona, Jóna. Fáðu þér stærri gólfkúst.
HVAÐ VEIZTU
1. Hver sarndi tónlistina viö Porgy og
Bess?
2. Hvaö þýöir mannsnafnið Leó?
3. Af hvaða dýri er mohair-ullin?
4. Hvaöa land framlciðir Toyota-bil-
ana?
5. Frá hvaða landi er dansinn
masúrka?
6. i hvaöa hafi eru Azoreyjar?
7. Hvaö heitir hæsta fjall á Sikiley?
8. Hver var konungur Gyöinga á undan
Daviö?
9. Hvaöa list iðkaði Sókrates á yngri
árum?
10. Er fillinn stærsta landspendýriö?
Hugsaðu þig vandlega um — en svörin
er að finna á bls. 39.
— Góðan daginn, ég er aö selja
barnaföt, bleyjur og....
7