Heimilistíminn - 20.03.1975, Side 22
Leó Ijón og
Gréta gíraffi
Leó ljón
I hann þarf 8 hnotur af drapplitu, grófu
garni og 4 hnotur af brúnu i makkann,
ásamt afgöngum af dökkbrúnu og
raubbrúnu. Fyllingin er svampblokk,
52x45 cm að stærð og 12 cm þykk. 1 augun
og trýnið er notað svolitið dökkbrúnt filt.
Auk þess þarf prjóna nr. 5 og heklunál nr.
4.
Festa: 15 1 garðaprjón eiga að vera 10 cm
á breidd, annars þarf að skipta um
prjóna.
Hliðarstykki: Byrjið á öðrum fætinum.
Fitnið upp 26 1 með ljósa garninu. Prjónið
8cm garðaprjón og geymið bútinn meðan
þið prjónið annan eins. Siðan er fitjaöar
upp 18 1 i framhaldi af seinna stykkinu og
fyrra stykkið siðan prjónað með, þannig
að nýju lykkjurnar komi á milli þeirra. Þá
eru alls 70 1 á. Prjónið þá áfram, þar til
stykkið er 23 cm. Þá eru felldar af 45 1 frá
hægri hliðinni en 25 1 prjónaðar áfram og
jafnframt fitjaðar upp 9 1 til viðbótar i
vinstri hlið fyrir höfuð og haldið áfram
með þessar 34 1 þangað til stykkið er oröið
alls 45 cm á hæð. Fellið laust af. Prjónið
annað stykki alveg eins, nema gagnstætt.
Miðstykki: Fitjið 20 1 upp og prjónið beina
ræmu, 212 cm langa. Felliö laust af.
Eyru: Fitjið upp 6 1 með heklunál nr 4 og
ljósa garninu. Heklið fm fram og til baka,
en aukið I eina 1 á hvorri hlið i annarri
hvorri umf. alls 3 svar sinnum. Þá verða
121 á. Siðan er tekið úr i hvorri hlið á ann-
arri hvorri umf. þar til 4 1 eru eftir. Slitið
frá og heklið hitt eyrað alveg eins. Heklið
eina umf. fastal. með dökkbrúnu garni,
kringum eyrun, nema á þann veginn, sem
það er saumað á.
Frágangur: Byrjið á þvi að leggja annað
hliðarstykkið á svampinn og teikna eftir
þvi. Skerið siðan 1-2 cm utan við strikið.
Saumið miðstykkið fast við hliðarstykkin,
en hafið þó op að neðan til að koma
svampinum inn. Klippið augu og trýni úr
filti og saumið framan á höfuðið. Saumið
út augnahár og veiöihár með rauðbrúnu
garni og festið eyrun á.
Makkinn: Klippið u.þ.b. 18 cm langa
spotta af dekkra brúna garninu, sem eru
festir á með heklunál, þannig: Leggið
spottann saman tvöfaldan, stingið heklu-
nálinni milli tveggja lykkja og dragið
lykkjuna á spottanum i gegn, stingið end-
um hans gegn um lykkjuna og heröiö aö.
Haldið þessu áfram röð eftir röð, þar til
myndarlegur makki er kominn á ljónið.
Stingið nú svampinum inn i og saumið
fyrir opið. Snúið nokkuð svera snúru i
rófuna og setjið dúsk á endann.
Gréta giraffi
1 Grétu þarf 3 hnotur af appelsinugulu,
meðalgrófu gami og 4 hnotur af brúnu,
svampkurl eða heila svampblokk i stopp,
en eins má nota ónýtar sokkabuxur eða
eitthvaðannaðhentugtinnan i. Augun eru
tveir hnappar. Gréta er hekluð úr 70
femingum, sem allir eru eins.
Ferningur: Fitjið 15 11 upp með brúnu
garni og heklið 3 umf fastalykkjur. Haldið
slöan áfram með röndum: 2 umf
appelsinugult og 2 umf. brúnt, þar til
komnar eru 4 appelsfnugular rendur, þá
er endað á 3 umf. brúnt. Heklið 70 svona
feminga.
Eyra:Fitjið 311 upp með appelsinugulu og
heklið 3 fl. í næstu 3 umf. er aukin ein 1 i á
hvorri hliö og verða þá 91 á. Heklið siðan 8
umf beint áfram og aukið þá aftur eina
lykkju i á hvorri hlið = 11 lykkjur. Hekliö
4 umf. Takið þá úr eina lykkju á hvorri
hlið og haldið siðan áfram aö taka úr, allt-
af á báðum hliðum, þar til 3 1 eru eftir-
Heklið annað stykki alveg eins úr brúnu
gami, sem er bakhlið eyrans og heklið
þessi tvö stykki saman með 1 umf. fl- *
kring. Heklið önnur eins tvö stk. i hitt
eyrað.
Rófan: Snúið eða heklið appelsinugula
snúru, 10 cm. langa. Búið til dúsk úr
brúnu gami og saumið hann vel fastan i
rófuendann.
Frágangur: Saumið ferningana saman,
til skiptis með rendurnar láréttar og lóð-
réttar, eins og sézt á myndinni, en skiljið
eftir op að neðan. Stoppið Grétu upp. Ef
notuð er heil svampblokk, er farið að eins
og meö Leó ljón hér á undan. Lokið opinú-
Saumið eyrun á og látið ljósu hliðina snúa
út. Saumiö brúna hnappa 1 fyrir augú og
festiðrófuna vel á. Klippiö afganginn af
brúna garninu niður i spotta, sem festir
eru meö aðstoð heklunálar ofan á höfuðiö
og niður aftanverðan hálsinn. Það er faxið
á giraffanum.
— Nei, frú Jónina. Maðurinn þinn er
alls ekki hér.
H$GIÐ
— Nú er vorið komið, fyrst mennirnir
eru komnir.
22