Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 28.04.1977, Qupperneq 12

Heimilistíminn - 28.04.1977, Qupperneq 12
Jóni biskupi til dóms rannsóknardómsins norður á Islandi, en gáfu honum til raunhóta leyfi til að sækja mál sitt fyrir nýstofnuðum hæstarétti konungs i Kaup- mannahöfn, likaöi honum ekki dómur hennar. En sá réttur var stofnaður árið 1661, og var um mikla réttarbót að ræða. Voriö 1689 kom Jón biskup árla Ut til Is- lands í Hólmakaupstaö. Heidemann land- fógetifrétti bráttútkomu hans, og lét ekki á sér standa. Hann fór þegar á fund hans, og birti honum undir vitni, að honum hefði veriö stefnt til alþingis á siðastliðnu sumri á heimili hans norður á Hólum i Hjalta- dal, að halda þar uppi vörn i málum sin- um fyrir dómi. Aö þvi búnu, fór Jón biskup rakleitt norður að Hólum, og hóf þegar aö búa sig til þingreiðar. Lét amtmaður kyrrsetja allar tekjur Hólastóls um vorið, áður en nokkur dómur væri genginn gegn biskupi i málum hans. 9. Vorið 1690 gekk landfarsótt allskæð um vestanvert landið, og náði norðurum land að nokkru. Varð hún þess valdandi, að illa gekk að fá menn til þingreiöar, þrátt fyrir ströng fyrirmæiiyfirvalda, og það jafnvel úr nálægum sveitum við þingstaðinn. Varð þessi sótt mest I Borgarfirði og i vestursveitum. En það er af Jóni biskupi Vigfússyni að greina, aö hann bjóst tii þingreiðar norður á Hólum. En áður en hann komst af stað, veiktist hann af um- ræddri landfarsótt, og lézt 30. júni 1690. Að sjálfsögöu heföi Jón biskup ekki fengið neina miskunn hjá dómendum á al- þingi 1690, og er næstum öruggt, að hann hefði veriö sviptur embætti og lfklega eignum. Jón Halldórsson prófastur hinn fróöi i Hitardal segir svo um þetta: ,,Nú bauö fleirum en færri góðum mönnum við kappi og fylgi I þessum málum, þótt ófög- ur sýndust og ill að forsvara, þvi á bervis- uðum kaupskap með ófrihöndlara lagði konungleg hátign á þeim árum embætt- istöpun, búslóðar- og Bremerhólms- straff, þenktu þvi að sneiða sig hjá slikt sem færi sýndist, i engan máta að óhlýön- ast við kónginn, og ei heldur af gúnst til biskups Jóns, heldur aö honum mundi vegna óvinsælda veita bágt með afbatanir sinar, þó til væru.” Rannsóknardómendur nefndu á alþingi 7. júli 1690 tuttugu og fjögurra manna dóm, skipaðan 12 prestum og 12 sýslu- mönnum úr báöum biskupsdæmum. ,,Og þá fyfirkalliö var svarið lögieg dæmt og taka skyldi til varna, frambar skóla- meistarinná Hólum i Hjaltadal, EgillSig- fússon, aö biskupinn magister Jón hefði fullkomlega ásett i eigin persónu þangaö að koma.ogþinglesthans á leið komin, en af strangri og hastarlegri sótt hefði hann heima á Hólum snemma morguns þann 30. júni dáið.” „En þrátt fyrir það, að enginn talsmað- ur varfyrir biskup né málfærsla, né ekkju hans og ómyndug börn, var dómur látinn ganga. Að visu tóku dómendur þaö fram, 12 að þeir viti ekki, hverjar málsbætur til kynnu að vera, sem nauðsynlega yfirveg- ast ættu, áður en endileg dómsályktun væri lögð á svo vandasamt mál, þá vildu nokkrir dómsmenn ekki fara lengra á- fram i það sinn og setja málið upp, en komu ekki sinu fram fyrir kappi saksókn- arans, og þeirra er honum fylgdu.” Var svo dæmt, að konungi skyldi greiða 1000 rikisdalir í sekt, 50 rikisdalir til fá- tækra i Skagafirði, og auk þess 600 rikis- daiir til Heidemanns landfógeta. Alit skyldi þetta greittfyrir næsta alþingi 1691 til Christians Mullers amtmanns. En ekki var biskupsembættið dæmt af Jóni Vig- fússyni dauöum, og visuðu dómendur I þeirri sök þvlliku til kóngsins náöar, og eins og það, hvort ekkja hans ætti að njóta náöarársins á stólnum að lögum réttum. 10. En málum Bauka-Jóns Hólabiskups var ekki þar með lokið, þó alþingisdómurinn félli. Sonur hans Þórður að nafni, 18 ára, var stúdent við Kaupmannahafnarhá- skóla, og fékk fulltingi ráðamanna I Danaveldi að mega nota leyfið, er faðir hans hafði fengið til að sækja mál sitt fyrir hæstarétti Danakonungs, félli hon- um ekki dómsniðurstöður rannsóknar- nefndarinnar, Þórður fékk þvi framgengt, að málinu skyldi verða stefnt fyrir hæsta- rétt. Umvorið 1691 fór Þórður heim til Is- lands með hæstaréttarstefnu á hendur Heidemann landfógeta og saksóknara i máli föður sins, rannsóknardómsmönn- unum, meðdómendum og nokkrum mönn- um norðan lands, er vitnað höfðu gegn föður hans um hollenzka kaupskapinn og fleira er snerti málareksturinn. Heidemann landfógeti fór einn utan með umboð hinna stefndu. Gekk hæsta- réttardómur i málinu 15. júni 1693, og er hann á þessa leið: „Commissariorum harði dómur ber ekki að koma sál. Mag. Jóni Vigfússyni i hans gröf, ei heldur nokkrum af hans erf- ingjum eða náungum til minnkunar, præjdise hindrunar eða skaða i nokkurn máta, ei heldur til frekari peningaútláta, en að sál. Mag. Jóns erfingjar skulu betala til landfógeta Christófers Heide- manns 100 rikisdali i málskostnað. Svo ber og þvi geröu arreste eður kyrrsetn- ingu á biskupsinnkomstum að vera öld- ungis úti og enduð, og að ekkjan og erf- ingjar njóti náðarársins, svo sem siðvan- legt verið hefur.” Þórður Jónsson vann frægan sigur i máli föður sins, og markaði með þvi þýð- ingarmikið spor i sögu landsins, þar sem þetta mál var þaö fyrsta er fór fyrir hæstarétt Danaveldis frá Islandi, og opn- aði leiðina fyrir komandi málsaðila við réttinn. Guðriður Þórðardóttir, ekkja Jóns biskups, fluttist frá Hólum eftir lát mann: sins aö Leirá og bjó þar siðan. Hún fékk litt notið náðarársins, sem henni var dæmt af hæstarétti sökum stjórnleysis á Hólastól og ennfremur guldust biskups- tekjurnar, er hún átti inni, illa. Þórður Jónsson varðhinn merkasti mað- ur. Hann varð prestur á Staðarstað á Olduhrygg og er einn af þekktustu prest- um landsins um sina daga. Börn Bauka-Jóns voru mörg og komust öll vel til manns. Sigriður dóttir hans var gift Magister Jóni Þorkelssyni Vidalin Skálholtsbiskupi. Hann hóf ættmenn konu sinnar mjög til vegs og frama, enda voru þeir vel til þess hæfir, sökum gáfna og metnaðar. Frá Bauka-Jóni er margt manna komið, og hafa afkomendur hans mjög komið við sögu landsins. Nafnið Bauka-Jón var biskupi gefið af samtiðinni, og er til af völdum alþýðunn- ar, dregið af tóbakssölu biskups og óleyfi- legri verzlun. Jón biskup varð þess vald- andi, að alþýða og valdsmenn fóru betur og gætilegar með viðskipti sin við erlenda fiskimenn og duggara. En alltaf var tals- vert um slik skipti meðan einokunin rikti i landinu. En hugsjón islenzkra manna um innlenda borgarastétt varð ekki að veru- leika fyrrená 19. öld. Það má þvi telja, að Bauka-Jón hafi verið nokkuð langt á undan timanum I kaupskap og aðferöinni til að lifa af verzlun og viðskiptum. Heimildir: Saga Isl., Biskupasögur Jóns i Hitardal. Isl. æviskrár, alþingisbækur HVAOVEIZT U 1. Hvað heitir greifinn i Kátu ekkjunni? 2. Hver samdi tónlistina við Hollendingurinn fljúgandi? 3. Hvaða tslendingi var nýlega stungið upp á sem forseta Al- þjóða skáksambandsins? 4. Hverjir voru Huginn og Muninn? 5. Hver varð skákmeistari ís- lands að þessu sinni? 6. Hvaðan og hvert á Lagarfoss að flytja drykkjarvatn á næstunni? 7. Hvað eru Volvo-verk- smiðjurnar gamlar? 8. Og hvað er Leikfélag Akur- eyrar gamalt og hvenær var afmælið? 9. Hvað heitir steinrunnin eftirmynd plöntu eða dýrs? 10. Hvort sigraði eða tapaði Karl XII við Poltava? Lausnin er á bls. 39

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.