Heimilistíminn - 28.04.1977, Blaðsíða 26
Dýrin í Hálsaskógi
hafa verið sýnd að
undanförnu í Þjóðleik-
húsinu. Aðsóknin hefur
verið eindæma góð/ og
jafnvel heilir skólar kom-
ið á sýningarnar samtím-
is. Þetta er í annað sinn
sem Dýrin f Hálsaskógi
eru sýnd hér. Þau eru eft-
ir Norðmanninn Thor-
björn Egner, en hann er
einnig þekktur fyrir leik-
ritin Karíus og Baktus og
Kardimommubæinn svo
nokkuð sé nefnt. Islenzk
börn þekkja verk Egners
mæta vel, bæði úr leik-
húsi, sjónvarpi og af
hljómplötum, sem gefnar
hafa verið út meðverkun-
um.
Thorbjörn Egner viö vinnu sina.
Thorbjörn Egner hefur skrifað sögur,
leikrit og ljóð fyrir börn og unglinga,
og hann teiknar lika og málar
I Dýrunum í Hálsaskógi hér i Þjóðleik-
húsinu Hannibal?)
Inni er hlýtt og notalegt, og þaö iogar
eldur I arni. Blaðamanninum finnst um-
hverfið svo notaiegt, að hann fer úr skón-
um og gengur um á sokkaleistunum.
Hann Iætur eins og sé hann heima hjá sér.
Þú gætir lifað áhyggjulausu lífi á þvl,
sem Kardemommubærinn færir þér I
tekjur, segir hann. — En hvers vegna ætti
ég að gera þaö, þegar það er miklu
skemmtilegra að gera eitthvað segir
skáldið. Reyndar datt mér i hug fyrir fá-
einum árum, þegar ég varð sextugur, aö
ef til vill væri rétt hjá mér að fara aö
minnka svolítið við mig vinnuna, en þaö
hefur ekkert orðið úr þvi. Þaö er svo ó-
endanlega margt, sem ég vildi hafa gert.
Ég hef verið að vinna að myndabókum að
undanförnu og hef ég verið að vinna viö að
gera fortjald að Kardemommubænum.
Það er hvorki meira né minna en eitt
hundraö og tuttugu fermetrar og á þvi eru
myndir af húsum, trjám og ýmsu öðru úr
leikritinu.
— Það er sannarlega ánægjulegt að skrifa
fyrirbörn, sagði Thorbjörn Egner nýlega
t viðtali I norsku blaði. Hundur tók gelt-
andi á móti blaðamanninum i dyrunum.
— Svona, svona Hannibal sagöi þægileg
Svona ímynda Japanir sér, að Toblas I rödd fyrir innan, og hundurinn varð þeg-
turninum llti út. ar rólegri. (Heitir ekki einmitt hundurinn
Hann er þúsund
þjala smiður
26