Heimilistíminn - 28.04.1977, Síða 29

Heimilistíminn - 28.04.1977, Síða 29
inn verið settur á svið og einnig i Japan, en þar hefur hann einnig verið sýndur í briiðuleikhUsi. — Hvaöa kröfur gerir þú til leik- sýningar fyrir börn? — Fyrst og fremst óska ég eftir þvi, að i sýningunni séspenna, kátina og skemmti- legheit, bæöi fyrir stóra og smáa. Auk þess vonast ég til þess, að bak viö allt þetta megi finna einhverja dýpri merk- ingu, að minnt sé á, að enginn sé ann- aðhvort einungis hetja eða skúrkur. Við verðum að viðurkenna að við erum ekki öll eins og reyna að skilja hvert annaö. Við verðum að sýna umburðarlyndi. Traustiðog vingjarnleikinn.sem Bastian bæjarfógeti og frú Bastfan sýna ræningjunum eftir að þeir hafa verið handteknir, verður til þess að þeir Kasp- er, Jesper og Jónatan fá aftur trúna á sjálfa sig og óska ekki annars frekar en að hætta að ræna og rupla og veröa venjulegt fólk i þessum litla bæ. Sem betur fer endar þetta allt vel — Kasper verður slökkviliðsstjóri, Jónatan verður bakari og Jesper verður sirkusstjóri. HEIMILI THORBJÖRNS EGNERS er bæði hlýlegt og skemmtilegt, og þess vegna spyr blaðamaðurinn: — Þú skrifar skemmtilega, en ertu jafn- skemmtilegur heima fyrir? — Um það verður þú aö spyrja önnu konu mína. Við skemmtum okkur a.m.k. vel, bæði þegar við erum ein, og líka þeg- ar börnin og barnabörnin koma f heim- sókn. Anna hefur mikla kimnigáfu, sem kemur sér vel bæöi i vinnu og frftfma. Konan min og börnin hafa alltaf veriö nálægt mér, þegar ég hef veriö að semja, og án nærveru þeirra hefði þetta ekki ver- ið hægt. Kannski væri rétt aö nefna það, sem einn góðvinur minn sagði einu sinni. — A bókunum ætti að standa Eftir Thor- björn Egner og fjölskyldu. Thorbjörn Egner er fæddur tólfta tólfta áriðl9l2 og hann heldur því meira aö segja fram, að hann hafi fæözt klukkan tólf, Hann segist hafa byrjað að teikna og yrkja strax á unga aldri, og man ekki eftir sér öðru vfsi. — Er erfitt að vera gift manni eins og Thorbirni Egner? spyr blaðamaöurinn konu hans. — Ég hef aldrei reynt neitt annað, svarar hún og brosir. — Við eigum gott meö að vinna saman og höfum bæði nóg að gera, hann viö að skrifa, teikna og mála, og ég við húsið, og bréfin og reikn- ingana og annað sem til fellur. Næstum daglega koma barnabörnin i heimsókn svo viö höfum aldrei tlma til þess að láta okkur leiöast. — Hvar hittuzt þið? — Það var f verzlunarskóla f Osló! — Já, ég hef aldrei haft betri not af nokkrum skóla, segir Egner glaölega. — Við vorum 18 ára bæöi tvö og við höfum ætíðsiðan haldið saman gegnum þykkt og þunnt. DjjTene i Hakkebakke skog'en jS cventy ripi 11 í M+bildev- av THOIÍ83ÖÍR.N ecneh Dýrin I Hálsaskógi. Sýningarskráln úr norska þjóöleikhúsinu. Ef þú getur svo lært að róa, þá er ekki út- séö um það, að ég lofi þér með i annað siun. (Þ. fb) 29

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.