Heimilistíminn - 20.10.1977, Blaðsíða 4
- Frú Carlo Ponti —
eftir tuttugu ára sambúð:
ÉG FÆDDIST
EKKI FYRR EN
ÉG HITTI HANN
— Ég átti ellefu ára hjiiskaparafmæli i
april, og svo átti ég tuttugu ára hjú-
skaparafmæli i september, sagöi Sophia.
Þetta hljómar eins og gáta, en þó er til góö
skýring á þessari undarlegu yfirlýsingu.
17. september, 1957 giftist Mario Calle-
steros Antonio Lopez Machuca i Juarex i
Mexico. Lopez Machuca var þarna
mættur fyrir hönd Carlo Parlo Ponti og
hinn lögfræðingurinn var fulltrúi Sophiu
Loren. Lögö voru fram skjöl, sem sýndu,
aö Ponti haföi fengið mexikanskan
skilnaö frá Giuliana Fiastri.
Skilnaöur var ekki leyfður á Italiu i þá
daga, og þess vegna var þaö, aö húsmóðir
nokkur i Milanó, Louisa Brambilla, lýsti
vanþóknun sinni á hjónunum og lagði
fram kæru á hendur þeirra fyrir fjöl-
kvæni. Þau neyddust nú til þess aö yfir-
gefa fööurland sitttil þess aö komast hjá
allt aö fimm ára fangelsisvist. Eftir nær
áratugs vandræöi, réttarhöld og sitt hvað
sem náöu til Vatikansins, italska þingsins
ogallskyns dómstóla endaöi þaö meö þvi,
að Sophia Ponti, fyrri kona hans, sonur
þeirra og dóttir urðu franskir rikisborg-
arar. Þá gat Carlo fengiö skilnaö á nýjan
leik og gifztSophiui Frakklandi 9. april
1966.
— Þess vegna höfum við verið raun
verulega gift i tiu ár, sagöi Sophia, og búið
saman i tuttugu ár. Þess vegna héldum
viö ekkert sérstaklega upp á afmælin, þar
sem viö vissum eiginlega ekki,hvenær viö
ættum aö gera það.
— Heföi ég einhvern tima haft tima til
þess aö hugsa um hjónaband mitt, heföi
vel getaö hvarflaö að mér, aö hjónabandiö
myndi ekki endast svona lengi. Tiu eöa
tuttugu ár er langur timi.
— Þaö sem mestu máli skiptir viö
hjónaband mitt, er að ég fæddist gift
Carlo. Daginn, sem ég kom inn á skrif-
stofuna hans eftir Miss Rom feguröar-
samkeppnina.þar sem ég var þátttakandi
4
t
oghanndómari var eins og við þekktumst
og heföum alltaf þekkzt. Lif mitt hófst
þegar ég losnaði úr viðjum fortiðarinnar
og mér fór aö ganga vel. Þegar þú ferð að
reyna hversviröi hlutirnir eru i lifinu fæö-
ist þú i raun og veru.
Var að leita að föður
Sophia hafði veriö spurö aö þvi, hvort
ekki heföi veriö mikiláhætta fyrirhana aö
giftast manni, sem var tuttugu árum eldri
en hún.
— Ég vildi alltaf hafa menn i kringum
migsem voru miklu eldri en ég. Ég geröi
mér ekki grein fyrir þvi, aö ég var alltaf
aö leita föðúr i þeim, föðurnum, sem ég
aldrei hafði átt. (Sophia fæddist utan
hjónabands fyrir fjörutiu og
þremur árum). Þess vegna er Carlo mér
svo dýrmætur. Mér hefur aldrei fundizt
égbundin honum, né hann mér á löglegan
hátt, heldur finnst mér sem ég hafi þá
fyrst fæözt, þegar ég hitti hann fyrst.
Ponti varð reyndarekki til þess aö gefa
Sophiu hennar nýja nafn, en hún hét
Scicolone áður. Nafniö valdi annar leik-
stjóri handa henni, Lombardo aö nafni.
Ponti hefur hins vegar skapað þá Sophiu
Loren sem menn nú þekkja. Hann þrosk-
aði ekkiaðeins leiklistarhæfileika hennar,
heldur hóf hann aö ummynda persónu-
leikann og smekk hennar á öllum hlutum.
Hann fékk henni bækur til að lesa á ýms-
um tungumálum. Til dæmis lét hann hana
les Madame Bovary á frönsku, Don
Quixote á spænsku The Emperor Jones
á ensku. Ekki gci öi hann þetta með þvi aö'
ota aö henni bókunum, eða segja henni aö
lesa þær, heldur lagöi hann nýja og nýja
bók á náttborðið hennar, og þannig hóf
hann að skapa þá konu sem hún nú er.
— Ég var svo ósköp ung þá segir hún. —
En mér fannst ég vera að gera rétt með
þvi aö gera eins og Carlo, og vegna þess
að ég varung vissi ég aö þetta myndi end-
ast um alla eilifð.
— Þegar fólk er um og innan við tvitugt
missir þaö algjörlega stjórn á sér, en eftir
þvi sem árinliöa fer það aö hugsa á annan
hátt. Maður fer aö velta þvi fyrir sér,
hvort hlutirnir geti enzt um aldur og ævi.
Lifið breytist, og allt er öðru visi en
þú hefur búizt við. Þegar þú ert tuttugu
ára eða 24 ára, hvaö þýöir þá ,,um alla
eilifö”? Þaö þýöir næstu þrjú eöa fjögur
ár. Timinn er afstæður.
— Þegar þú ert svo orðinn eldri, og ert
til dæmis aö reyna að eignast börn, eins
og ég var, þegar ég var komin á fertugs-
aldurinn, og þeir segja „Vertu þolinmóð”
eiga þeir viö fimm, sex ef til vill tiu ár.
Stundum er hættulegt að vera þolinmóö-
ur. Þeir hinir sömu, sem hafa sagt viö þig
„vertu þolinmóð” geta átteftir að segja
við þig, „Þvi miöur, þetta er oröiö of
seint”.
Ponti-hjónin eiga tvo syni — Edoardo
sem er fjögurra og hálfs árs og Carlo
(