Heimilistíminn - 20.10.1977, Side 33

Heimilistíminn - 20.10.1977, Side 33
— Leyfðu okkur að reyna svolitið, hafði hann sagt. — Við hættum ekki við þetta. En hún hafði ekki trúað honum þá — hún hafði æpt að honum i örvæntingu og þotið út — og hún trúði honum heldur ekki nú. Hún treysti engum nema sjálfri sér. Hún hljóp á milli verzlana allan daginn. NÁKVÆMLEGA Á sama tima og daginn áð- ur stóð hún nákvæmlega á sama stað á Aðal- járnbrautarstöðinni. Nú var hún lika gjör- breytt i ytra útliti, rétt eins og hún var brynjuð hið innra gegn öllu þvi, sem gæti átt eftir að gerast. Þeim mun fleiri—sem fram hjá henni fóru, þeim mun óöruggari varð hún. Kannski hann færi alls ekki að jafnaði með þessari lest? Eða hafði hún enn einu sinni, eins og ótalsinnum áð- ur, séð sýnir, einhverja vitleysu? En að lokum, einni minútu áður en lestin átti að fara, kom hann, og hjartað tók kipp i brjósti hennar. Henni hafði ekki skjátlazt. Þetta var hann. Hann var með öðrum manni, og þeir töl- uðu saman i ákafa. Hann hafði ekki tima til þess að lita i átt til hennar. Og meira að segja þótt hann hefði gert það hefði hann aldrei þekkt hana aftur. Stúlkan, sem þarna stóð og beið var með slétt, sitt, ljóst hár, ofurlitið liðað að neðan, hún var með þvertopp og nýtizku gleraugu með breiðum umgjörðum. Augnskuggarnir og gerviaugnahárin gerðu lika sitt til þess að breyta útliti henna. Hún var i blárri jersey- dragt og röndóttri skyrtu. Hún liktist engu minna en Helenu þeirri, sem hanii hafði þekkt. Reyndar hafði hann aldrei þekkt neina Helenu. Hún hafði skipt um nafn siðar, rétt eins og hann hlaut að hafa gert. Hún fór upp i sömu lest og hann, aðeins i næsta vagn á eftir, og stóð þannig, að hún gæti fylgzt vel með þvi, hvar hann færi úr lestinni. Hún varð að biða lengi. Úað var ekki fyrr en i Österby, sem karlmennirnir tveir fóru úr og kvöddust en hurfu siðan i sinn hvorn bílinn, sem beið þeirra á bilastæðinu. Hún sá i hvaða átt hann hélt, og lagði vel á minnið útlit og númer bilsins. Það var það eina sem hún gat gert i bili. í nánd við stöðina var verzlunarmiðstöð, og þar sem þetta var föstudagur, voru flestar búð- irnar opnar fram til klukkan sjö. Hún gekk hægt og að þvi er virtist rólega fram hjá þess- um litlu búðum. Engum sem sá hana hefði get- að dottið i hug, hversu hjarta hennar hamaðist, og að einungis ein hugsun komst að i huga hennar. Nú eftir hálfs árs örvæntingu og leit var hún að nálgast takmark sitt. Fljótlega rakst hún á Iitlu sportvöruverzlun- ina, sem að sjálfsögðu var i hverri verzlunar- miðstöð. Hjól voru óskaplega dýr, svo miklu dýrari heldur en hún hafði getað látið sér detta i hug. Samt var hjólið notað. Það var þó með bremsur og ljós, og hún þurfti á hjólinu að halda til þess að ná takmarki sinu. Laugardagurinn og sunnudagurinn voru hreint viti fyrir Helenu, þar sem hún gat ekkert gert. Hún fór til Österby báða dagana og hjól- aði fram og til baka án þess þó að finna mann- inn eða bilinn, sem hún var að leita að. Á MÁNUDAGINN fór hún að lesa vinnuaug- lýsingarnar. Það vildi svo vel til, að hún fann fljótt auglýsingu, þar sem óskað var eftir vél- ritunarstúlku hjá leikfangaverksmiðju i öster- by. Hún hafði allt það til að bera, sem óskað var eftir, en launin voru ekki há, en samt hringdi hún og fékk viðtalstima. Fullorðin koma tók á móti henni og prófaði hana vandlega bæði i vélritun og hraðritun. Siðan kipraði hún ofurlitið saman varirnar og sagði svo: Frökenin getur fengið vinnuna, ef hún getur byrjað strax þann fyrsta. Lengur getum við ekki beðið, þar sem daman sem var hér á undan fór burtu i skyndi til þess að búa á einshvers konar samyrkjubúi i Hálsingland. Unga fólkið nú til dags hefur enga ábyrgðartil- finningu. Þann fyrsta. Það voru aðeins þrir dagar þangað til. Helena hefði getað kastað sér um hálsinn á konunni og sagt, að hún gæti byrjað á stundinni. Hún hélt þó aftur af sér. Þegar hún var aftur komin niður i bæinn fór i Kaupfélagsbúðina og hugðist líta þar á auglýs- ingatöfluna. Það höfðu verið auglýsingatöflur i öllum kaupfélagsbúðum, sem hún hafði nokkru sinni komið inn i. Svo var einnig hér, og mitt i meðal allra auglýsinganna um týnda ketti, dagmömmur og ræstingakonur kom hún einnig auga á eina auglýsingu, þar sem auglýst var til leigu smáibúð á efri hæð i einbýlishúsi. Hún skrifaði hjá sér heimilisfangið og náði i hjólið sitt á jarnbrautarstöðina. Húsið var nokkuð fyrir utan aðalbæinn, i ró- legu hverfi, sem áreiðanlega hafði verið inni í miðjum Österby fyrir nokkrum árum. Þetta var stórt hús, vel við haldið með bilskúr og trjágarði. Trjágarðurinn var stór og fallegur, 33

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.