Heimilistíminn - 20.10.1977, Qupperneq 15
Blómin okkar
Gardeníur hæfa vel heitum
íslenzkum stofum
Gardcnia er velþekkt planta þótt hún
sé ef tii vill ekki mjög útbreidd. Það
mun meðai annars stafa af þvi, að
heldur erfitt er að rækta hana, og sagt
er, aö þeir sem það geti séu meö svo-
kallaöa „græna fingur”, en þaö er
virðingarheiti þeirra, sem duglegir
eru aö rækta blóm. Stærsta vandamál-
ið við ræktun gardeniu er að fá hana til
þess aö blómstra. Venjulega er hún
seid iblómaverzlunum i fullum blóma,
eða að minnsta kosti með mikið af
háifútsprungnum og óútsprungnum
knúppum.
Venjulega tekst fólki að fá gardeni-
una til þess aö bera mikið af grænu og
fallegu laufi. Ef meöferð hennar er
hins vegar ekki rétt hættir laufinu til
þess að gulna og falla af. Margar
ástæður geta legið til þess. Þeirra á
meðal er vökvunin, næringarefna-
skortur, eða þá að hún hafi fengið of
sterka blöndu af blómaáburði.
Gardenian má aldrei þorna, og hún
verður að vera i sirakri mold. Ef hægt
erað halda moldinni jafnrakri alla tiö,
ætti það að tryggja góðan vöxt hennar.
Gardenia þarf einnig að vera i nokkuð
miklum hita, og helzt á hitastigið
aldrei fara niður fyrir 18 stig. Ætti hún
þvi að henta vel i heitum islenzkum
stofum. Ef ykkur langar til þess að
reyna að fá gardeniuna ykkar til þess
að blómstra um jólaleytið ættuð þið að
taka hana úr stofunni og geyma hana i
14 til 16 stiga hita frá þvi i ágústmán-
uði. Ef þið hins vegar viljið láta hana
blómstra undir vor, skulið þið setja
hana i kælinn i janúar, þá blómstrar
hún i april. Strax og knúpparnir eru
farnir að sýna sig, er plantan tekin úr
kalda geymslustaðnum, og látin inn i
stofu aftur.
Ef hitinn fer yfir 22 stig, þegar plant-
an fer aö fá meiri lýsingu, geta
knúpparnir dottið af. Þess vegna er
mjög þýðingarmikið aö hún fái sem
allra mest ljós að vetrinum.
Ef ykkur langar til þess að gera til-
raun með aö taka græðlinga af
gardeniu, skuluð þið setja þá á heitan
stað, þar sem hitinn kemur neðan að
þeim og hann má ekki vera neðan við
25 stig, svo ræturnar myndist. Róta-
myndunin tekur um það bil einn mán-
uð. Þegar ræturnar eru farnar áð
sjást, er plantan látin á kaldari stað.
Gardeniur vaxa villt I Kina og Suður
Afriku. Blóm gardenianna eru annaö
hvort gul eða hvit. fb
r
*