Heimilistíminn - 20.10.1977, Blaðsíða 37

Heimilistíminn - 20.10.1977, Blaðsíða 37
Þótt kappsamlega hafi verið unnið að þvi að rifa gömul hús á Islandi er enn nokkuð eftir af þeim, og fólk er stöðugt áhugasamara um að flytja i þau, hressa þau við og gera þau upp. 1 þessum gömlu húsum er viða hátt undir loft, og jafnvel svo, að mönnum finnst nóg um. Hér er einföld hugmynd að þvi, hvernig lækka má undir loft i forstofu i gömlu húsi. Það, sem til þarf, eru tré- listar, sterkir krókar og kaðlar, af þeim sverleika, sem hverjum og einum finnst henta i sinni forstofu. Festið listana á vegina i þeirri hæð, sem ykkur finnst mátuleg, og þar sem þið viljið að nýja loftið byrji. Gætið þess, að nægilegt rúm verði fyrir ljósa- stæðið fyrir ofan nýja loftið. Þessu næst skrúfið þið krok- ana i listana. Þið getið ákveðið sjálf, hversulangt bil þið viljið hafa á milli krókanna, og fer það eftir þvi, hvort þið viljið, að snærið verði þétt eða gisið i loftinu. Krókarnir eru skrúf- aði i listana á langveggjunum, en með þvi móti að hafa böndin þvert,virðist stofan styttri. Ef þið þurfið að láta hana sýnast lengri, getið þið skrúfað krókana i endavegg- ina. Bregðið þessu næst snær- inu utan um krókana, eins og sýnt er á myndinni, sem fylgir með. Mjög skemmtileg lýsing kemur i forstofuna, þegar ljósið skin i gegnum þetta ,,net”. Þið getið annað hvort málað kaðlana eða haft þá i náttúrulegum lit, eftir þvi, hvað við á á hverjum stað. að ég dey ekki, þótt ég geti ekki sofið. Ef ég hins vegar halla mér aftur á bak og slappa af, sofna ég oftast fljótlega. Louise Dee, sem var ein af þeim fyrstu, sem tók þátt i Stanford-rannsókninni segir, að allt hafi þetta gengið upp og nio- ur til að byrja með. — bað komu ýmis bakföll. Það leið og minnsta kosti eitt ár, áður en ég gat með sanni sagt, að þetta væri farið að bera árangur. Svo gerðist það, fyrir tveimur árum, að mér varð allt i einu hugsað — en hvað það er gott að vera komin i rúmið. Nú segir hún, að slökunaraðferðirnar séu orðnar sér ómeðvitaðar: — Flest kvöld get ég slappað af, án þess að gera æfingarnar fyrst. Likama minum hefur lærzt að velta sér upp i rúmið og fara að sofa. Ef eitthvað kemur fýrir, sem fer i taugarnar á mér, verð ég að beita þeim aðferðum, sem ég hef lært, til þess að geta sofnað. Coates segir, að svefnvandamál byrji oft á tiðum á unglingsárunum. I rannsókn sem gerð hefur verið á nemendum i 11. og 12. bekk, sögðu 13% af þeir svæfu að jafn- aði illa. 30% sögðust oft sofa illa. Það er greinilegt, að flestir lita svo á, sem aðeins sé um timabundið vandamál að ræða. Það er þó alls ekki vist að svo sé. Samt sem áður er augljóst, að fljótlegra er að lækna svefnleysi, ef ráðist er gegn vandanum timanlega. .fb. SD0 sbe Konan sem stjórnar bílnum úr baksætinu, likist mannin- um> sem gefur góö ráð varð- andi matseldina — við kvöldverðarborðið. Það er gott að eiga vini... þar sem það veldur allt of mikilli streitu að eyða helg- inni með fjölskyldunni. Sá, sem lyktar lyktar bezt. minnst/ Stundum þegar kona brosir meinar hún það. Litlar stúlkur ættu að læra að borða morgunmatinn sinn, annars endar það með því að þær vaxa upp og likj- ast einna helzt sýningar- dömum. Sá, sem er of finn til þess að vinna er ekki fínn. Það er ekki kurteislegt að sofna á meðan konan manns er að tala... en á hinn bóginn er það rétt, að maður verður að fá einhvern svefn. Ef þú reykir sigarettuna þina styttra reykir þú hana lengur. 37 I

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.