Heimilistíminn - 20.10.1977, Side 13

Heimilistíminn - 20.10.1977, Side 13
Popp-kornið SUPERTRAMPS MEÐ NÝJA PLÖTU Tryggir og trúfastir aðdáendur söngflokksins Supertramps hafa þurft að biða nokkuð lengi eftir plötu frá flokknum, en nú er hún loksins komin. Þetta er fimmta albúm Supertrámps. Supertramps eru enskir, og ástæðan fyrir þvi, að nokkurt hlé varö á plötu- útgáfu þeirra, er sú, að þeim fannst timi til þess kominn að gera nokkurt hlé á samvinnu sinni. Þeir héldu hver til sins heima, og lögðu öll hljómleika- ferðalög á hilluna og héldu enga tón- leika yfir höfuð. Þeir höfðu sjálfir komizt að þeirri niðurstöðu, að þeir væru orðnir þurrausnir af öllum hug- myndum, og þess vegna væri rétt að taka sér smáhvíld. Einn af aðalmönnunum i hópnum, Roger Hodgson, hélt til Indlands, og greinilegt er, þegar hlustað er á hina nýju plötu Super- tramps, að hann hefur fengið ýmsar nýjar hugmyndir á meðan hann dvald- ist I Indlandi. Má þar t.d. nefna lagiö Enen In The Quitest Moments. Einnig má greina indversk áhrif á titillaginu og Babaje. Roger Hodgson og Rick Davies hafa samið þau sjö lög, sem á plötunni eru. Supertramps sendu frá sér slna fyrstu plötu árið 1970 — og vöktu þá enga sérstaka athygli. Næsta plata kom tveim árum siðar, og ekki tókst betur til þá, þvi hún vakti hvorki athygli né áhuga gagnrýnenda né þeirra, sem mest kaupa af plötum. Það var ekki fyrr en LP plata þeirra Crime Of The Century kom út árið 1974, að fólk virtist fara að veita þeim einhverja eftirtekt. Alls staðar var fólk sammála um ágæti þessarar plötu, og sagt var að Supertramps væru „súpergrúppa” áttunda áratug- arins. Næstu ár á eftir höfðu þeir nóg að gera við að koma fram i sjónvarpi, halda hljómelika og fara I hljómleika- feröalag. Næst á eftir Crime Of The Century kom LP platan Crisis? What Crisis?, sem færði mönnum enn betur heim sanninn um ágæti þessara tónlistar- manna. Þeir sönnuðu enn betur en áð- ur, að þeir láta ekkert gerast af tilvilj- un, heldur fullkominni yfirvegun — tónlist þeirra er þrauthugsuð og þaul- unnin. Nýjasta plata Supertramps, Even In The Quietest Moments, er nokkuð öðru vfsi en fyrri plöturnar, en þó sannarlega áheyrileg plata. I Supertramps eru sömu menn og áður en þeir tóku sér hvlldina: Roger Hodgson, söngur, gltar og piano. Rich- ard Davies, söngur, orgel, pianó og munnharpa, John Anthony Helliwell, saxofón, klarinett og söngur. Bob C. Benberg, trommur og rythmi og að lokum Dougie Thomson, bassi. 13

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.