Heimilistíminn - 10.08.1978, Blaðsíða 15
Aö þessusinni ætlum viö aö birta hér
mynd af þvl, sem kalla mætti blóma-
grind, þótt okkur detti sennilega ekki
þaö oröfyrst i'hug, þegar viö litum á
myndina. Þetta er reyndar stigi btiinn
til úr plexigleri. Blómapottunum er
svo raöaö á þrepin, fáum eöa mörgum
á hverja tröppu eftir þvi, hve mörg-
um pottum viö þurfum aö koma fyrir.
Flestir raða blómapott-
unum i gluggakisturnar,
margir eru þó famir að
hengja þau i hnýtt hengi
bæði úti i glugga og neðan i
stofuloft, og svo koma enn
aðrir þeim skemmtilega
fyrir i alls konar blóma-
grindum. Blómagrindurnar
geta verið margvislegar, og
ætti hver og einn að reyna
að láta sér detta eitthvað
nýtt og frumlegt i hug, svo
blómunum hjá honum sé
ekki nákvæmlega eins og
hjá nágrannanum.
Blómastiga þennangetiö þið búiö til
ámjög auöveldan hátt. Fariö bara og
kaupiö ykkur plexigler, sem hægt er
aö fá i ýmsum plastverksmiöjum. Þið
getiö ákveöiö s jálf hversu stór stiginn
á aö vera, og fariö meö málin meö
ykkur, þegar þiö pantiö gleriö. Þaö
ætti aö vera hægt aö fá þaö tilsniöiö.
Siöan væri réttast aö spyrja framleiö-
endurnahvernigauöveldaster aö lima
plexigleriö sama, og hvaöa lim ætti aö
nota.
Hliöarnar i stiganum ættu aö vera ca
12 cm breiöar og þrepin svo dálitiö
dýpri þannig aö þau standi Ut fyrir
hliöarnar. Hliöarnar eru i fjórum bút-
' um, sem skái er tekinn á. Þiö skuliö
ákveöa áöur en þiö leggiö af staö i
plastleitina, hversu háan þiö viljið
hafa stigann, og sömuleiöis nokkurn
veginn hvaöa mál þiö viljiö hafa á
hinum einstöku hlutum hans. Annars
er liklegt, að plastsölumennirnir geti
verið ykkur innan handar um útreikn-
ingana og einnig um valið á plastinu,
þ.e.a.s. hvaöa plastþykkt hæfir best,
svo stiginn fari ekki aö bogna eöa
svigna undan þunga blómapottanna.
Þessi blómastigi ætti aö sóma sér
hiö besta i hvaöa stofu sem er og á
hvaðaheimili sem er,hvort sem er hjá
ungum eöa gömlum. Gangi ykkur nU
vel aö Utbúa hann. Já, aö lokum þetta.
Ef þiö viljið ekki hafa hann úr plasti
má allt eins smiöa hann t.d. Ur
massífri furu eöa einhverjum öörum
viöi, sem ykkur likar betur.
Blómin okkar
BLOMASTIGI
ÚR PLEXIGLERI
15