Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 10.08.1978, Qupperneq 18

Heimilistíminn - 10.08.1978, Qupperneq 18
Uppskriftir frá 28. Pillsbury- bökunarkeppninni: Tómata-ost-pæiö. Grahams -hnetukaka og tómata- ost-pæ hlutu 25 þúsund og 5000 dollara verðlaun hvort Fyrir aiimörgum árum var keppt hér um þaö, hver gæti bakað bestu kökuna, og hlaut sigurvegarinn aö launum ferö tii Bandarikjanna á köku- baksturskeppni, sem þar fer árlega fram á vegum Phillsbury-hveitifyrir- tækisins. Keppni þessi er köllur Phills- bury Bake Off, og fær 28. keppnin fram I New Orleans f mars f vetur. Uppskriftin, sem valin var i fyrsta sæti var Kjúklinga og brokkoli pæi og kaka númer eitt var Grahamshnetu- kaka. Verðlaunahafarnir hlutu hvorki meira né minna en 25 þúsund dollara að launum fyrir þessar uppskriftir. Þaö var einkaritari frá Indianapolis, Linda L. Wood, sem átti pæ-uppskrift- ina, en Esther Tomich frá San Pedro i Kaliforniu átti uppskriftina að kökunni og hlaut hún einnig 25 þúsund dollara i verðlaun. Hér ætlum viö að þessu sinni að birta uppskriftina að kökunni. En það hlutu margir aörir verðlaun, og m.a. Paul nokkur Hill frá Long Beach I Kaliforniu. Hann fékk i sinn hlut fimm þúsund dollara fyrir það sem kallaö var Tómataost-pæ, og látum við þá uppskrift fljóta með hér á eftir. Grahams-hnetukakan. Kaka: 2 bollar af hveiti, 1 bolli af muldum Graham-kexkökum, 1 bolli dökkur púðursykur, 1/2 bolli sykur, 1 tesk. salt, 1 tesk. lyftiduft, 1 tesk. sódi, 1/2 lask. kanill, 1 bolli smjörliki eða smjör, lint, 1 bolli appelsinusafi, 1 matskeið rifinn appelsinubörkur, 3 egg, l bolli saxaðar hnetur. Krem: 2 matskeiðar púöursykur, 5 tesk. mjólk, 1 msk. smjörllki eða smjör, 3/4 bolli flórsykur 1/4 bolli saxaöar hnet- ur. Hitiö ofninn vel og hafið tilbúið hringform, sem hefur verið vandlega smurt aö innan. Blandið nú saman öll- um efnunum, sem fara eiga I kökuna, nema hnetunum. Hrærið I hrærivél á miðlungshraða i þrjár minútur. Hrær- iö siðan hneturnar saman við og hellið deiginu I formið. Kakan ætti að vera bökuö eftir 45 til 50 ménútur, en þiö getiö stungiö prjóni I hana til þess að finna hvenær hún ei fullbökuö. Látið hana kólna i forminu 15 mínútur, og hvolfið henni þvinæst á disk og látið hana kólna vandlega áður en kreminu er hellt yfir hana. Kremið er búið til meö þvi að setja i pott tvær matskeiðar af púðursykri, mjólk og smjör og láta þetta renna vel saman. Þá er potturinn tekinn af og flórsykrinum blandaö út i. Þetta er hrært þar til það er jafnt og mjúkt á aö sjá. Hellið þessu yfir kökuna og stráiö að siðustu hnetunum yfir allt saman. Kaka þessi er sögð nægja 12 til 16 manns. Af þvi má ráða að formið, sem hún er bökuð i er stórt, og segir I upp- skriftinni, að þaö eigi að taka 12 bolia. Ef þið eigiö ekki nógu stórt form er að sjálfsögðu hægt aö skipta deiginu i tvö form. Tómata-ost-pæ 1/3 bolli smjörllki eða smjör, lint, 3/4 bolli kartöflumúsarduft úr pakka, 3/4 bolli hveiti, 1/4 bolli rifinn ostur, 1/4 tesk. salt, 1/4 bolli vatn.

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.