NT - 24.04.1984, Page 6
Þriðjudagur 24. apríE 1984 6
Franskir stórmarkaðseigendur á páskaráðstefnu Alberts:
■ vViðræðurnar eru á frumstigi
og það er því erfitt fyrir mig að
segja til um hvað muni koma út
úr þessari fyrstu heimsókn. En
heimsóknirnar verða fleiri og
það er víst, að við munum
stofna til nánara sambands við
einhverja þeirra, sem komu til
að kynna vörur sínar hér,“ sagði
Pierre Schmit úr viðræðunefnd
frönsku stórmarkaðakeðjunnar
Euromarché í samtali við NT.
Það voru tuttugu íslensk fyrir-
tæki sem sýndu framleiðslu sína
fulltrúum frönsku stórmarkaða-
keðjunnar á Hótel Sögu á föstu-
daginn langa, með það í huga
að koma íslenskum vörum á
neytendamarkað í Frakklandi.
Fyrirtækin sýndu aðallega mat-
vöru af ýmsu tagi, fisk, lagmeti,
kjöt, kökur og sælgæti.
Frakkarnir voru að leita að
vörum, sem þeir hafa ekki á
boðstólum í verslunum sínum
og mestan áhuga þeirra vöktu
fiskafurðir ýmis konar, svo og
avaxtagrautar. Euromarché
rekur rúmlega 50 stórmarkaði í
Frakklandi, auk verslana víða
um heim. Þarna er því um að
ræða mjög stóran markað fyrir
íslenskar vörur, en á þessu stigi
er erfitt að segja til um hvort af
samningum verður. Ljóst er þó
að hvorir tveggja aðilanna hafa
áhuga á að ná saman, og frekari
fundahöld eru fyrirhuguð, m.a.
í París í júní.
Pierre Schmit sagði, að þeir
hefðu einkum verið að kanna
útflutning á fiski til Frakklands,
bæði ferskum fiski og fiski til-
reiddum á ýmsan máta. „Við
erum að kanna hvort íslenskur
iðnaður hefur tök á því að svara
kröfum fransks markaðar hvað
varðar gæði fisksins, tilreiðslu
og verð,“ sagði hann.
- Er íslenskur fiskur á sam-
keppnisfæru verði miðað við
fisk t.d. frá löndum Efnahags-
bandalagsins?
„Ég tel enga ástæðu til að ætla
annað.“
Raymond Grevez innkaupa-
stjóri Euromarché sagði, að þeir
vildu hafa nána samvinnu við
framleiðendur, þannig að varan
yrði samkvæmt óskum neytenda
og til þess að tilkostnaðurinn
yrði sem minnstur, þannig að
bæði franski neytandinn og ís-
lenskir framleiðendur sæju sér
hag í þessum viðskiptum.
Aðspurðir sögðust þeir ekki
geta sagt til um hversu ntikil
viðskipti þarna væri um að
ræða. Áður þyrfti að kanna
betur verð, flutningskostnað og
pökkun fisksins.
„Að lokum langar tnig
'til að segja, að það er
áhuga og framtaki
Alberts Guðmunds-
sonarað
þakka að þessum fundi var kom-
ið á fót og ég tei, að hann muni
verða til hagsbóta fyrir íslenskt
efnahagslíf,“ sagði Pierre
-“'la>ekin uni;;™ «áttjólaborð
•Slonv°rp,hlj
■ Raymond Grevez og Pierre Schmit frá frönsku stórmarkaða-
keðjunni Euromarché voru hrifnir af íslenska fiskinum, sem
þeir skoðuðu á föstudaginn ianga. NT-mynd Róbert
„Kem til með
að halda þeim
við efnið"
COVENT GARDEN HJÓNARUM
Til í Ijósgráu og rústrauðu. Falleg hönnun á goðu verð,.
Verð kr. 10.519 með dynu
Fl
habitat
Laugavegi 13, sími 25808.
segir Albert Guðmundsson
■ Fundurinn með Frökkunum var
haldinn að frumkvæði Alberts Guð-
mundssonar fjármálaráðherra, sem
lagði áherslu á að hann gerði þetta upp
á eigin spýtur, en hvorki sem fjármála-
ráðherra né franskur ræðismaður.
Frakkarnir eru gamlir vinir Alberts og
koma m.a. hingað á hverju ári til
laxveiða.
Mér þótti því rétt að nota þessi
persónulegu sambönd mín til að kynna
þá fyrir íslenskum aðilum og vita hvort
ekki væri hægt að fá þá til að hafa
íslenskar vörur á boðstólum í þessum
stóra dreifingarhring,“ sagði Albert
Guðmundsson í samtali við NT.
Albert var spurður hvort það væri
honum mikið kappsmál að samningar
næðust við þessa frönsku aðila.
„Mér er það mikið kappsmál, því að
velmegun okkar byggir á því að við
seljum afurðir okkar. Það er hægt að
koma miklu í gegn með persónulegum
samböndum og ég vil hvetja alla íslend-
inga, sem þekkja áhrifamenn á ein-
hverju svona sviði að biðja þá um að
koma hingað og sjá hvað við höfum upp
á að bjóða. Það er miklu áhrifameira að
fá þessa menn hingað, en að fara út með
eitt og eitt sýnishorn.“
- Muntu beita þér frekar í þessu máli?
„Þetta eru vinir mínir og ég kem til
með að halda þeim við efnið. Þeir hafa
tekið ástfóstri við ísland og ég er
sannfærður um að þeir muni gera það,
sem þeir geta,“ sagði Albert Guð-
mundsson.
Jeppar á Vatnajökul
Komust
ekkiá
toppinn
■ Fimmtán manna hópur á fimm vel bún-
um jeppum lagði til atlögu við Hvannadals-
hnúk, hæsta tind íslands, í dymbilvikunni.
Ekki tókst ferðalöngunum að ícomast á topp
fjallsins, en þeir komust þó hærra en nokkr-
um hefur áður tekist að komast á vélknúnu
farartæki.
Þetta mun vera í annað sinn, sem farin er
ferð á jeppabifreiðum upp á jökul. Fyrri
ferðin var farin á Langjökul og þar áttu
franskir ferðalangar hlut að máli.
Mikið um
innbrot í
bifreiðar
■ Töluvert hefur borið á því
undanfarið í höfuðborginni að
brotist sé inn í bíla og stolið úr
þeim hljómflutningstækjum,
talstöðvum og útvörpum.
í samtali við NT sagði Helgi
Daníelsson rannsóknarlög-
reglumaður að í mörgum til-
fellum væri um verulegt tjón
að ræða. bæði eru tækin oft
verðmæt og einnig eru bílarnir
skemmdir þegar þeir eru
brotnir upp. Þó hefði einnig
komið fyrir að bílarnir væru
ólæstir.
Helgi sagði að ástæða væri
til að hvetja bíleigendur til að
vera á varðbergi gagnvart
þessu háttalagi og sérstaklega
að skilja bíla sína ekki eftir
óæsta.