NT - 24.04.1984, Page 10
KRISTJflfl
SIGGEIRSSOn HF.
LAUGAVEGI 13. REYKJAVIK. SIMI 25870
Þriðjudagur 24. apríl 1984 10
Hjátrúin bannaði
böð og fataskipti
■ Sveit Jóns Hjaltasonar með Islandsbikarinn. Frá vinstri eru Jón Hjaltason, Símon Símonarson, Jón Ásbjörnsson og
Horður Arnþórsson en l'óri Sigurðsson vantar á myndina. Þess má geta að Jón Hjaltason gaf þennan farandgrip á sínum
tíma og það fór vel á að hans sveit ynni þetta Islandsmót því nú er ekki pláss fyrir fleiri nafnskildi á fæti bikarsins.
NT mynd GSH.
Sveit Jóns Hjaltasonar vann íslandsbikarinn í bridge:
stigið í
vlTtÐ
I Nokía stígvélum
er óhætt að bjóða bleytu
og snjó byrgínn.
Nokía stígvél
eru þrælsterk og þolín,
og þau endast
von úr vítí.
Það er því vít í að kaupa
Nokía stígvél.
Handunnin
gæðavara frá Finnlandi
INIOKIA
JT
■ „Viðstaddir verða að
afsaka hvað við erum illa
til hafðir en við erum
hjátrúarfullir og þess-
vegna var stranglega
bannað að fara í bað í
inorgun og skipta um föt“,
sagði Jón Hjaltason þegar
hann tók við íslandsbik-
arnum fyrir hönd sveitar
sinnar sem varð Islands-
meistari í bridge á pá-
skadag.
Sveit Jóns endaði með
115 stig, 22 stigum fyrir
ofan sveit Runólfs Páls-
sonar sem varð í öðru sæti
með 93 stig. í þriðja sæti
varö sveit Þórarins Sig-
þórssonar einnig með 93
stig en liafði tapað inn-
byrðisleik fyrir sveit
Runólfs. Með Jóni Hjalt-
asyni spiluðu í sveitinni
Hörður Arnþórsson,
Símon Símonarson, Jón
Ásbjörnsson og Þórir Sig-
urðsson.
Strax í fyrstu úmferð
mótsins voru teikn á lofti
um úrslitin þegar sveit
Jóns fékk 20 stig meðan
sveit Þórarins tapaði 2-18
fyrir sveit Ármanns J. Lár-
ussonar en fyrirfram var
búist við að keppnin um
íslandsmeistaratitilinn
yrði milli þessara sveita.
Jón hélt síðan forustunni
til loka mótsins, tapaði
aðeins fyrir sveit Þórarins
13-7. Þrátt fyrir það átti
Þórarinn smá möguleika
fyrir síðustu umferðina ef
hann ynni sinn leik hreint
meðan Jón tapaði sínum
leik 6-14. Þetta gekk þó
ekki eftir þar sem Jón
fékk 20 stig í sínum leik en
Þórarinn aðeins 12. Run-
ólfur vann síðan sinn leik
með 20 stigum og komst
um leið upp að Þórarni.
Flensan sem er að ganga
í Reykjavík setti mark sitt
á þetta mót og hjó skörð í
raðir spilaranna. Á tíma-
bili voru tveir spilarar for-
fallaðir í sveit Þórarins og
Jón Hjaltason þurfti einn-
ig sjálfur að láta í minni
pokann og lúta í lægra
haldi fyrir flensunni á
tímabili.
Sú sveit sem mesta at-
hygli vakti á mótinu var
tvímælalaust sveit Ás-
gríms Sigurbjörnssonar
frá Siglufirði. 1 sveitinni
spila 4 bræður og þeir hafa
sýnt það áður að þeir eru
samkeppnisfærir þó þeir
hafi ekki spilað í úrslitum
íslandsmótsins fyrr. Eftir
fjórar umferðir af 7 hafði
sveitin unnið alla sína leiki
og var þá í öðru sæti. í
þrem síðustu leikjunum
þurftu bræðurnir að spila
við sveitir Jóns, Runólfs
og Þórarins og urðu að
sætta sig við stór töp.
Sveitin endaði samt sem
áður í 5. sæti með 57 stig.
„Gæti farið
að gjósa á
þessu ári“
- segir Ari Trausti Guðmundsson
um skjálftavirknina í Grímsvötnum
■ Skjálftavirkni hefur
aukist á ný í Gríms-
vötnum.\ NT hafði sam-
band við Ara Trausta
Guðmundsson jarðfræð-
ing og fékk hjá honum
ýmsar upplýsingar um
málið.
Ari sagði að upptök
skjálftanna hefðu færst í
vestur, og skjálftunum
hefði fjölgað. Þetta mætti
túlka sem svo að kviku-
þrýstingur í kvikuhólfi
sem þarna væri undir væri
að aukast, og gæti það
hugsanlega endað með
nýju gosi. Yrði það þá á
þessu ári. Ekkert væri þó
hægt að slá föstu um
þetta, kvikuflæðið gæti
hætt skyndilega og ekkert
meira gerst. Ef færi að
gjósa mundi það koma
fram sem tíðir smáskjálft-
ar.
Fylgst cr mcð skjálft-
unum,sem eru af stærð-
argráðunni 1 til tveir og
hálfur á Richter með
mælunt við Grímsvötn.
Þessir mælar eru sjálfrit-
andi og knúnir af rafstöð
sem framleiðir rafmagn
úr hverahita. Hitanum er
breytt með sérstökum
varmaskipti í rafmagn,
,sem knýr skjálftamælinn
■ Ari Trausti Guðmundsson
og litla sendistöð sem
sendir niðurstöðurnar
niður í Skaftafell.
Athuganir á skjálfta-
virkni í kvikuþróm hefur
verið að byggjast upp eft-
ir Kröfluelda, og er nú
fylgst með Kröflu,
Grímsvötnum, Kötlu og
Heklu, en vandræði hafa
verið með Heklumælana
sökum tíðra bilana.