NT


NT - 24.04.1984, Side 16

NT - 24.04.1984, Side 16
 ..r”1...... Barbara Bach gaf fúslega upp kvikmyndaferil sinn til að gæta bús og barna ■ Hvað kemur til, þegar ung, fögur og upprennandi kvik- myndastjarna kastar frá sér öllum framavonum á hvíta tjald- inu og gerist einfaldlega hús- móðir og kona manns síns? Leikkonan Barbara Bach, sem m.a. vakti mikla athygli í Bond- myndinni „The Spy Who Loved Me“ en giftist síðar Bítlinum Ringó Starr og dró sig út úr skarkala kvikmyndaheimsins, svarar einfaldlega með orðum eins af hinum sígildu og frægu lögum Bítlanna: „All You Need Is Love“. Á þeim tíma, þegar John Lennon var myrtur á götu í New York, bjuggu þau Barbara og Ringó í Bandaríkjunum og sáu sér ekki annað fært en að um- kringja sig með lífvörðum undir alvæpni, ef það mætti verða til þess að þau kæmust hjá svipuð- um örlögum. -Þeim þótti þó, einsýnt, að þetta væri ekki full-' nægjandi vörn til lengdar og Ringo bendir á, að ef ekki er mögulegt að verja sjálfan for- seta landsins fyrir tilræðis- mönnum, sé lítH von til að almenningur geti verið öruggur og óhultur. Það varð því að ráði, að þau fluttust til Englands og settust að á herrasetri, sem þegar hafði.verið í eigu Ringos í mörg ár. Þar telja þau sig fullvarin með því að halda tvo stóra varðhunda og gefa þau fyrirmæli, að enginn skuli koma í heimsókn án þess að hafa gert boð á undan sér. Flutninguririn til Englands var dýr fjárhagslega, þar sem Ringo hafði upphaflega yfirgef- ið heimaslóðirnar af skattaá- stæðum. Reyndar átti það líka. þátt í þessari ákvörðun hans, að hann var um það leyti að skilja við konu sína, Maureen, sem hann hafði verið giftur í 10 ár og átt með 3 börn. Hann setti stefnuna á Monte Carlo til að byrja með og gerðist þar ríkis- borgari og síðar til Bandaríkj- anna. Fundum þeirra Ringos og Barböru bar saman, þegar þau léku saman í kvikmyndinni The Caveman. Sú mynd þótti engum aðstandenda hennar til fram- dráttar og það .eina góða og varanlega, sem hún skilur eftir isig, er hjónaband þeirra Bar- böru og Ringos, sem sagt er verða betra með hverju árinu, sem líður! í heimili hjá þeim hjónum eru, auk varðhundanna tveggja, tvö börn Barböru af fyrra hjóna- bandi, Francesca 14 ára og Gi- anni 9 ára. Barbara var í 10 ár gift ítalska kvikmyndaframleið- andanum Augusto Gregorini og bjó þá á Ítalíu. Það þótti henni merkilegur skóli, enda allar að- stæður og sjónarmið þar allt önnur en liún hafði vanist í uppvextinum í New York. Þar voru þá uppi alls kyns nýjar hugmyndir, á ítalskan mæli- kvarða, til að berjast gegn rót- gróinni íhaldssemi, hugmyndir, sem Barbara hafði alltaf vanist að væru í heiðri hafðar og kom spánskt fyrir sjónir að væru ekki álitnar alveg sjálfsagðar. kom henni þó á óvart, hvað erfiðlega gekk, og oftast alls ekki, að hrinda þeim í framkvæmd. Það var á Ítalíuárunum, sem hún tók að hasla sér völl í kvikmyndum. En sem sagt, henni var ósárt um þann frama- feril, miðað við að byggja upp Ertu orðinn eitthvað verri Hemmi Nei, ívið betri ■ - Við höfðum samráð um þessa steliingu ég og hann Burt Reynolds kunningi rninn, okk- ur fannst tími til kominn að við karlarnir létum ekki kvinnurn- ar um það einar að bjóða af sér góðan þokka. - Það er Her- mann nokkur Gunnarsson, íþrótta-, frétta-, söngva- og brandarakall sem svarar spurn- ingunni um það hvort hann sé orðinn eitthvað verri að láta • hafa sig útí svona myndatöku. Myndin sú arna þekur umslag- ið á fyrstu sólóplötu kappans sem nú er nýútkomin. - Það var líka orðin spurning með þessa fjóra sem aldrei hafa hneykslast á mér, heldur Hermann áfram, þetta ætti að duga í þá. Annars eru þetta páskabuxur, heiðgular og skemmtilegar. Það kemur að vísu ekki alveg nógu skýrt fram á svarthvítri mynd, en þá reynir á hugmyndaflugið. Nútímalistin síðar - Mér líður bara þrælvel. þeir hafa verið að pressa á mig með þetta, Geimsteinsmenn, síðustu tvö árin. Ég ákvað að slá þessu bara uppí kæruleysi og láta slag standa, enda verð- ur ekki aftur snúið, frekar en hjáGunnariLangbrókarmanni forðum. Hermann bætti því við að platan væri ekki hugsuð sem einn af þessum milljón listviðburðum, heldur bara partýplata eins og þær gerast geggjaðastar. - Nei ég er ekki farinnútí að semja lögin sjálfur, það skellur á síðar og mun þá ef að líkum lætur flokkast undir NÚTÍMA-list. Bleeess- aaðuur. ■ Það mætti halda að þessar tvær konur byggju hvor á sinni plánetu, svo ólíkar eru þær og lífskjör þeirra. Samt er ýmislegt líkt með þeini og afdrifaríkasta atvik ævi þeirra beggja er órjúf- anlega tengt. Þær búa báðar í New York. Önnur þeirra er 32ja ára gömul, venjuleg, útivinnandi eiginkona, sem býr nú ein í lítilli íbúð, sem hún deildi áður með manni sínum. Hin er51 árs gömul, margmilljónamæringur, valdamikil og heimsfræg. Þær eru báðar japanskar og hvorug þeirra getur hlustað á plötu með Bítlunum, án þess að í huga þeirra komi skelfilegasta augnablik ævi þeirra. Önnur þeirra var gift frægri rokk- stjörnu, sem féll fyrir morðingja hendi, hin er gift morðingjan- unt. Samúð alls heimsins hefur beinst að þeirri fyrrnefndu, Yoko Ono Lennon, ekkju Johns Lennon. Sú, sem er heim- inum gleymd og grafin, nema þeim, sem hafa megnustu skömm á henni og manni hennar, er Gloria Chapman, kona Marks Chapman, óhappa- mannsins, sem hleypti af ban- vænum skotum í átrúnaðargoð sitt í geðveikiskasti. Konurnar tvær hafa aldrei hist. En Gloria hefur skrifað Yoko til að segja henni, að hún taki þátt í sorg hennar. „Ég elskaði John líka,“ skrifaði hún. Yoko fann sig ekki knúna til að svara og segir einfaldlega: -Ég er ennþá reið. Ég get ekki fyrirgefið ennþá. Gloria hefur ekki í huga að skilja við mann sinn, sem enga von hefur um að losna úr fang- elsi fyrr en í fyrsta lagi árið 2001. Þau skrifast á oft í viku, en ýmsum eiginkonum fyndist það ekki fullnægjandi hjóna- band í 20 ár. Hún hefur hins vegar tekið þá afstöðu að halda tryggð við hann, vegna þess, eins og hún segir: - Þegar ég kynntist honum, eignaðist ég ekki bara mann, heldur einnig frelsandi vin. Það var hann, sem kynnti mér trúna á Jesúm. Hvað Mark Chapman snerti, eignaðist hann ekki einungis einhverja eiginkonu, heldur lif- andi sönnun þess, að sitthvað væri líkt með honum og þeirri persónu, sem hann dýrkaði ■ Yoko Ono segist nú einungis lifa fyrir son sinn, Sean. Einnig hefur tekist náið og gott samband með henni og syni Johns af fyrra hjónabandi, Julian. Það fer sérstaklega vel á með þeim bræðrum, og það er ósjaldan, sem Sean hringir í bróður sinn yfír Atlantshafíð og skeytir þá ekkert um, hvort það er að degi eða nóttu! mest í lífinu og átti síðan eftir að ræna lífinu. Þegar Gloria giftist hægláta náunganum, sem var vanur að færa henni kleinuhringi á ferða- skrifstofuna, þar sem hún vann á Hawaii, árið 1979, grunaði hana lítið hvað í vændum var. Það var ekki fyrr en eftir voðaat- burðinn í desember 1980, að fór að renna upp fyrir henni Ijós, að ekki hafði allt verið með felldu með hann. Ekki vill hún þó taka undir það álit verjanda hans í málaferlunum, að honum hafi ekki verið ljóst, hvað hann var að gera sökum geðveiki. - Mark gerði sér seinna ljóst, hvað hann hafði gert og fann til sektar, segir hún. Hannihefur líka sýnt sektareinkenni í garð konu sinnar á stundum, vegna þess, hvað hann hefur á hana lagt. Þá hefur

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.