NT - 24.04.1984, Qupperneq 22
Límmiðapreittsmiðjan LÍMMERKI
Annast:
LÍMMIÐAPRENTUN
Límmiðar eru vinsæl og hagkvæm
lausn til hverskonar merkinga Við
prentum allskonar sjálflímandi miða og
merki til vörumerkinga vörusendinga og
framleiðslumerkinga. Ennfremur ýmsar
gerðir adressumiða, varúðarmiða leið-
beiningamiða og margt fleira.
Leitið upplýsinga um verð og
afgreiðslufrest.
Við erum miðsvæðis I Reykjavík
Altt á rúllum í einum eða fleiri lltum
1
Þriðjudagur 24. apríl 1984 22
Utlönd
Mitterrand kvittar
fyrir skuld Napoleons
■ Svisslendingareruekkimik-
ið fyrir að gefa eftir skulda-
kröfur sínar og halda þeim lengi
til streitu eins og bæjarstjórnin
í smábænum Bourg Saint-Pierre
sannar. Árið 1800 lagði bærinn
fram skaðabótakröfu á hendur
franska ríkinu vegna skemmda
sem Napoleon Bonaparte ogher-
sveitir hans ollu er þær áttu
leið um bæinn fyrrgreint ár. Nú
hefur bæjarstjórnin fallist á að
þiggja táknrænar skaðabætur af
Mitterrand Frakklandsforseta
og telst skuldin þá að fullu
greidd og málið úr sögunni.
Skaðabótakrafan er byggð á
skriflegri skuldaviðurkenningu
sem Napoleon afhenti bæjar-
búum á sínum tíma. Krafan
nam um 43 þús. svissneskum
frönkum og átti að koma fyrir
skemmdir á 2037 trjám sem
hersveitirnar ollu, 80 pottum
og kastarolum sem hermenmrn-
ir fengu lánaðar hjá bæjarbúum
en láðist að skila aftur, 3150
timburplankar sem notaðir voru
til að flytja fallbyssur á og að
síðustu var krafist launa fyrir
veitta vinnu sem bæjarbúar
inntu af höndum fyrir Napoleon
og menn hans.
Fernand Dorsaz sóknarnefnd-
arformaður í Bourg Saint-
Pierre sendi Mitterrand reikn-
inginn áður en forsetinn lagði
upp í heimsókn til Sviss í fyrra.
Mitterrand viðurkenndi fúslega
að greiða ætti skuldina en það
yrði að gerast með táknrænum
hætti.
Frakkar kostuðu gerð vegg-
skjaldar sem settur verður upp
í svissneska bænum 19. maí n.k.
Á skildinum stendur að eftir-
leiðis viðurkenni Frakkar ekki
að skulda bæjarbúum neitt og
að bæjarbúar muni ekki gera
frekari kröfur til skaðabóta á
hendur Frökkum. Það ætti að
vera auðvelt að standa við þessi
heit því að Frakkar sömdu um
að greiða engar skuldir erlendis
vegna Napoleons mikla á Vín-
arfundinum 1815.
Drap Mikki mús Aquino?
■ Morðið á helsta forystu-
manni stjórnarandstæðinga á
Filippseyjum, Bengino Aquino,
síðastliðið sumar hefur grafið
mikið undan trú manna á stjórn-
völdum. Lögregluyfirvöld halda
enn fast við þá sögu sína að
smáglæpamaðurinn Rolando
Falman hafi drepið Aquino en
ákaflega fáir virðast trúa þeirri
sögu.
Nýlega var gerð könnun með-
al 458 háskólanemenda víðsveg-
ar um Filippseyjar á því hver
þeir teldu að drepið hefði
Aquino. Mikill meirihluti
nemendanna taldi að ákveðnar
háttsettar persónur í æðstu
stöðum bæru ábyrgð á morðinu.
Aðeins einn þátttakandi í skoð-
anakönnuninni sagðist trúa
sögu stjórnvalda um það hvern-
ig dauða Aquino hefði borið að.
Svo var líka einn þátttakandi
sem sagðist telja að Mikki mús
hefði drepið Áquino og annar
ásakaði ljósálf þann sem gefur
börnum pening fyrir tennur sem
þau missa fyrir glæpinn.
-rb
■ Mitterrand forseti
■ Napoleon keisari
'
I M
Nú
' e'í eft\rta\dar vorur a *eQund\0
u bióðum v* háttdósum ^t^und\r)
* SÍSfl w«»SSJi
Fyrrverandi bandarískir hermenn
Kæra eiturnotkun
■ Bandarískir hermenn í frumskógum Víetnams.
Margir þeirra önduðu að sér eiturefnum.
■ í Víetnamstríðinu not-
uðu Bandaríkjamenn m.a.
sterkan illgresiseyði til að
eyða skógum í Vietnam.
Um 20.000 fyrrverandi
hermcnn, ekkjur her-
manna og afkomendur
hafa nú kært bandaríska
efnafyrirtækið Dow sem
framleiddi eitríð. Þeir
halda því fram að fyrirtæk-
ið beri ábyrgð á margs
konar illkynja sjúkdómum
sem hrjáð hafa hermenn-
ina meira eða minna alla
tíð síðan.
Eitrið gengur undir
nafninu Agent Orange og
það hefur nú verið bannað
í Bandaríkjunum vegna
þeirra skaðlegu áhrifa sem
það getur haft á heilsu
manna. Það var notað í
Vietnamstríðinu allt frá
árinu 1961. Eitrinu var
dreift á skóga og akra úr
flugvélum í gífurlegu
magni.
Markmiðið með notkun
eitursins var að svipta
skæruliða kommúnista
því skjóli sem þeir höfðu
af skógunum og eyðileggja
uppskeru bænda. Sam-
kvæmt víetnömskum
heimildum urðu margir
bændur fyrir varanlegu
heilsutjóni vegna þessa eit-
urs og óeðlilegur fjöldi van-
skapaðra barna á sumum
svæðum í V íetnam er einn-
ig rakinn til eitursins Ag-
ent Orange.
Stundum var eitrinu
dreift yfir bandarískar
stöðvar fyrir mistök og því
var líka venjulega dreift í
miklu magni í kringum
bandarískar herstöðvar til
að koma í veg fyrir skyndi-
áhlaup skæruliða. Margir
bandarískir hermenn
önduðu þess vegna að sér
Agent Orange og urðu fyr-
ir heilsutjóni vegna eitur-
áhrifa þess. Eftir mikið
málþóf við opinbera aðila
ákváðu margir þessara
hermanna og aðstandend-
ur þeirra því að höfða mál
gegn efnafyrirtækinu Dow
sem framleiddi eitrið.
Dow-fyrirtækið neitar
alls ekki skaðlegum áhrif-
um eitursins en fullyrðir á
móti að ríkisstjórn Banda-
ríkjanna hafi verið full-
kunnugt um hættuna sem
fælist í notkun þess. Yfir-
völd hafi vitað að í eitrinu
hafi verið Dioxin sem vald-
ið hafi krabbameini og
vansköpun við fæðingu
hjá tilraunadýrum. Efna-
fyrirtækið heldur því fram
að bandarísk stjórnvöld
beri ein ábyrgð á heilsu-
tjóni hermannanna. En
samkvæmt bandarískum
lögum geta hermennirnir
ekki krafið bandaríska rík-
ið um skaðabætur. Þess
vegna hafa þeir aðeins
kært framleiðandann í von
um að fá að einhverju leyti
bættan skaða sinn.
Málið kemur fyrir dóm-
stóla í New York þann 7.
maí næstkomandi en hætt
er við að nokkur tími liði
þar til hægt verður að
dæma í því þar sem miklar
fjárhæðir eru í húfi.
-rb.
15 mínútna
krossfesting
■ Listamaður í Kenya,
David Mugo, bauðst til
að greiða sjö mönnum
15 dollara hverjum til að
krossfesta sig um pásk-
ana. Mugo sem er 31 árs
að aldri vill láta negla sig
gegnum hendur og fætur
á krossinn og hanga þar
í 15 mínútur. Hann lét
ekki uppi hvar krossfest-
ingin átti að eiga sér stað
til að lögreglan gæti ekki
komið í veg fyrir hana.
Bæði lögreglan og
kirkja hafa lýst sig and-
víga fyrirætlan lista-
mannsins, en síðast þeg-
ar til fréttist sat hann
fastur við sinn keip og
ætlaði að láta krossfesta
sig í þakklætisskyni fyrir
að guð hefur bjargað lífi
hans þrisvar sinnum.
Fréttir hafa ekki borist
af því, hvort varð úr
framkvæmdum.