NT - 24.04.1984, Blaðsíða 25
ÍMi/wmi
IFIUI1 111%
Samúel Örn Erlingsson (áb), Gísli Ágúst Gunnlaugsson, Jón Ólafsson, Gylfl Kristjánsson
Stakk Einar af!
- Gottlieb Konráðsson vann í 30 km göngu á Landsmótinu
Frá Gylfa Kristjánssyni fréttaritara
NT á Akureyri:
■ Vegna skafrennings varð
að fresta keppni í skíðagöngu
■ Gottiieb Konráðsson -
þremur mínútum á undan Ein-
ari.
sem fram átti að fara á Skíða-
landsmótinu á páskadag.
Aformað var að keppnin færi
fram að morgni annars páska-
dags, en skafrenningur haml-
aði þá enn því að unnt væri að
keppa. Mótsstjórnin greip þá
til þess ráðs að færa keppnina
til Ólafsfjarðar þar sem hún
fór fram í gær. Brugðust Ólafs-
fírðingar vel við þessu þótt
fvrirvari væri enginn. Þokka-
legt veður var í Hlíðarfjalli
eftir hádegi í gær, þótt svo illa
hafi viðrað til mótshaldsins um
morguninn.
Urslit í göngukeppninni
urðu þau að í 30 km göngu
karla sigraði Gottlieb Kon-
ráðsson Ólafsfirði á 86,06
mín., annar varð Einar Ólafs-
son, Isafirði 89,28 mín. og Jón
Konráðsson, ísafirði, varð
þriðji á 92,39 mín.
15 km ganga 17-19 árapilta.
Fyrstur varð Haukur Eiríksson
Akureyri 45, 22 mín. Annar
varð Karl Guðlaugsson, Siglu-
firði, 49,03 mín. og þriðji varð
Bjarni Gunnarsson, ísafirði,
50,34 mín.
I kvennaflokki voru gengnir
7,5 km. Fyrst varð Guðrún
Pálsdóttir, Siglufirði, 27,17
mín., önnur varð María Jó-
hannsdóttir Siglufirði, 29,46
mín., og þriðja varð Guðbjörg
Haraldsdóttir, Reykjavík
32,07 mín.,
í flokki stúlkna 16-18 ára
voru gengnir 5 km og urðu
úrslit þau að fyrst varð Stella
Hjaltadóttir Akureyri 17,24
mín, önnur varð Svanfríður
Jóhannsdóttir, Siglufirði,
18,38 og þriðja varð Auður
Ebenesardóttir, ísafirði 19,24
mín.
í göngutvíkeppni karla sigr-
aði Gottlieb Konráðsson,
Ólafsfirði og Guðrún Pálsdótt-
ir, Siglufirði, varð sigurvegari
í kvennaflokki. Haukur Ei-
ríksson varð sigurvegari í
göngutvíkeppni 17-19 ára pilta
og Stella Hjaltadóttir, ísafirði
í flokki 16-18 ára stúlkna
Skipting gullverðlauna á
Skíðalandsmótinu varð sú að
Ólafsfirðingar fengu 7 gull-
verðlaun, Akureyri 6, Siglufj-
örður 6, ísafjörður 5, Reykja-
vík 1.
Bengtson
varð Evrópu-
meistari
■ Það var ekki einungis í
tennis sem Svíar voru sigur-
sælir um helgina. I Moskvu
varð Svíiinn Bengtson Evr-
ópumeistari í borðtennis
með sigri á Pólverjanum
Andrzei Grubba, sem fyrir-
fram þótti sigurstranglegast-
ur á mótinu. Ulf Bengtson
hefur um skeið leikið fyrir
vestur-þýskt félag, en var
vikið frá því fyrir skemmstu
þar sem hann þótti ekki
nógu góður.
Feyenoord
þokast nær
titlinum...
■ Feyenoord þokaðist nær
meistaratitlinum í Hollandi
nú um helgina er liðið gerði
jafntefli við Spörtu á heima-
velli. Þó að sigur hafí ekki
unnist þá kom það ekki að
sök því að næst efsta liðið,
PSV Eindhoven, tapaði í
Amsterdam á móti Ajax.
Feyenoord hefur þá þriggja
stiga forskot þegar fjórar
umferðir eru eftir.
Stórsigur FH
■ FH-ingar fóru vel af stað
í sínum fyrsta opinbera leik
á þessu knattspyrnutímabili.
Liðið lék gegn nágrönnum
sínum í Hafnarfirði, Hauk-
um, og vann stórsigur 7-0.
FH er þjálfað af Inga Birni
Albertssyni, sem einnig sá
um þjálfun þess fyrir fáum
árum. Ingi Björn var sannar-
lega á skotskónum á laugar-
dag. Hann skoraði tvö mörk
í ieiknum.
Keflavík náði
jöfnu við b-lið
Tottenham
■ Knattspyrnulið Keflvík-
inga er nú komið heim úr
Tottenhamferð sinni. Á
laugardag lék Keflavík við
b-lið Tottenham Hotspur, og
náði þeim góða árangri að
gera jafntefli, 3-3. Mörk ÍBK
skoruðu Ragnar Margeirs-
son, Helgi Sigurbjörnsson og
Óskar Færseth.
Ipswich á uppleið
Allmargir leikir fóru fram
í ensku knattspyrnunni á ann-
an páskadag og urðu úrslit
þessi í fyrstu og annari deild:
1. DEILD:
Birmingham-Arsenal . . 1-1
Everton-Wolverhampt . 2-0
Ipswich-Norwich...... 2-0
Stoke-QPR............ 1-2
WBA-Sunderland .... 3-1
2: DEILD:
Barnsley-Blackburn ... 0-0
Cardiff-Derby ....... 1-0
Crystal Pal.-Charlton . . 2-0
Fulham-Brighton .... 5-1
Grimsby-Cambridge . . 0-0
Man. City-Huddersf. . . 2-3
Newcastle-Carlisle .... 5-1
Ipswich á í harðri fallbaráttu
um þessar mundir en liðið náði
að treysta nokkuð stöðu sína
með sigri yfir nágrannaliðinu
Norwich City. Stoke er hins
vegar komið í harla erfiða
stöðu og úlfarnir féllu endan-
lega í aðra deild með tapi
liðsins gegn Everton.
Möguleikar Newcastle á að
endurheimta sæti í fyrstu deild
jukust hins vegar til muna við
stórsigur liðsins gegn Carlisle,
þar sem helstu keppinautar
norðanliðsins, Manchester
City, töpuðu illilega á heima-
velli sínum gegn Huddersfield.
Kevin Keegan var yfirburð-
armaður í liði Newcastle í gær,
eins og svo oft áður í vetur.
Hann skoraði tvö mörk í
leiknum f gær, en áhangendur
Newcastle urðu engu að síður
fyrir áfalli um helgina, er
hann gaf út yfirlýsingu þess
efnis að hann mundi ieggja
knattspyrnuskóna á hilluna
eftir þetta leiktímabil.
- Sjá stöðuna í ensku knatt-
spyrnunni á bls. 30-31.
Janussemóðast
að jaf na sig
eftir meiðslin
nýr þjálfari hjá
Fortuna
■ Janus Guðlaugsson er orð-
inn vél rólfær eftir meiðslin í
vetur, og verður að líkindum
kominn í leikæflngu fyrir
sumarið.
■ Janus Guðlaugsson er nú
sem óðast að jafna sig eftir
meíðsli þau er hann hlaut í leik
með Fortuna Köln gegn Frei-
burg fyrr í vetur og urðu þess
valdandi að hann varð að gang-
ast undir skurðaðgerð í febrú-
ar. Janus losnaði við gifsið
hinn 5. apríl og hefur nú verið
í meðhöndlun og æfingum til að
styrkja liðböndin sem slitnuðu
og sauma varð saman. f stuttu
spjalli við NT kvaðst Janus
vonast til að geta hafið
hlaupaæfingar nú í vikunni, en
sagðist ekki geta sagt um hvort
hann mundi leika meira með
liði sínu Fortuna Köln í vetur.
Það er nú ákveðið að núver-
andi þjálfari Fortuna Köln,
Heese að nafni, hættir með
liðið eftir þetta leiktímabil og
hefur stjórn liðsins þegar ráðið
einn af núverandi leikmönnum
þess, miðvallarleikmanninn
Hannes Linssen til að taka við
þjálfun liðsins fyrir næsta
keppnistímabil.
Tony Knapp í V-Þýskalandi:
Ræddi við alla
„útlendingana“
■ Eins og fram kom í fréttum
íslenskra blaða i síðustu viku
stóð til að Tony Knapp mundi
eiga fundi með íslensku at-
vinnumönnunum í knatt-
spyrnu í Vestur-Þýskalandi og
Belgíu á næstunni
Samkvæmt heimildum NT
mun Knapp hafa rætt við ís-
lensku leikmennina í Vestur-
Þýskalandi á fundi í Dússel-
dorf nú umhelgina.Mun hinn
besti andi hafa ríkt á fundinum
og knattspyrnumennirnir vera
ánægðir með að fá Knapp
aftur í landsliðsþjálfarastólinn.
Einhver bið mun þó verða á
því að Knapp taki við stjórn
landsliðsins, þar sem hann er
samningsbundinn liði sínu í
Noregi fram á haust. í fram-
haldi af fundinum í Dússeldorf
hélt Knapp til Belgíu sl. sunnu-
dag, til að ræða við íslensku
leikmennina þar.
Forest neitaði
50 milljónir ísl. króna. Hann
hefur ekki náð að vinna sér
fast sæti í liði Nottingham
Forest í vetur. Samningur hans
við Forest rennur út í júní n.k.
- tilboði frá Brest í lan Wallace
■ Enska fyrstudeildarfélagið
í knattspyrnu, Nottingham
Forest, neitaði um heigina til-
boði sem franska fyrstudeild-
arliðið Brest gerði í skoska
landsliðsframherjann Ian
Wallace. Tilboðið frá franska
liðinu hljóðaði upp á 86 þús-
und sterlingspund, 3 og hálfa
milljón ísl. kr.
Ian Wallace var keyptur frá
Coventry árið 1980 fyrir 1,2
milljónir sterlingspunda, um
Brian Clough, fram-
kvæmdastjóri Nottinghamliðs-
ins sagði eftir að tilboðinu var
hafnað: „Tilboðið frá Brest er
eina tilboðið sem ég hef fengið
í Wallace, og mér dettur ekki
í hug að taka því.“
Skiptir Lárus um félag?
„Verður líklega
á hreinu í maí“
■ „Ég vil ekki á þessu stigi
tjá mig um hvort ég fer frá
Waterschei, ég býst frekar við
að fara til annars liðs, en það
skýrist á næstu dögum hvað
verður,“ sagði Lárus Guð-
mundsson knattspyrnumaður
í Belgíu, er NT innti hann eftir
því hvort hann færi frá Wat-
crschei er samningur hans
rennur út í vor.
„Fyrst í maí veit ég nokkuð
örugglega hvar ég leik næsta
keppnistímabil", sagði Lárus,
en ýmis félög innan og utan
Belgíu hafa sýnt honum áhuga
undanfarið.
Illa gekk hjá Lárusi og fé-
lögum um helgina, liðið tapaði
fyrir Courtrai 2-3, enda vant-
aði 8 af fastamönnum liðsins,
5 í leikbanni vegna mútumáls-
ins og 3 voru meiddir. Wat-
erschei komst þó í 1-0, en hélst
ekki á því. Anderlecht, lið
Arnórs Guðjohnsen vann FC
Liege 3-1, og er í öðru sæti
þremur stigum á eftir Beveren.
Sævar Jónsson og félagar hjá
CS Brugge töpuðu 1-3 fyrir
Seraing.
Víðavangshlaup IR:
ÍR átti flokkakeppnina
■ IR-ingar áttu hreinlega
Víðavangshlaup ÍR sem fram
fór á skírdag, sumardaginn
fyrsta. Þeir sigruðu í öllum
flmm flokka-hlaupunum. í
karlaflokki var keppt í 3, 5
og 10 manna sveitum og alls
staðar komu ÍR-ingar fyrstir í
mark. í kvennaflokki var
keppt í 3 manna sveit og þar
sigraði ÍR og í flokki 16 ára og
yngri karla sigraði ÍR.
I einstaklingskeppninni
náðu ÍR-ingar þó aðeins að
sigra í sveinakeppninni. Það
gerði Steinar Jóhannsson. í
karlaflokki var hörkukeppni
og þar sigraði Sieuvður P. Sig-
mundsson, en á"'næla honum
komu þeir Hafsteinn Óskars-
son og Sigfús Jónsson, Haf-
steinn á undan. í kvennaflokki
sigraði svo Unnur Stefánsdótt-
ir HSK, en í öðru sæti varð
Rakel Gylfadóttir FH. Elsti
keppandinn í Víðavangshiaup-
inu var Jón Guðlaugsson,
tæplega sextugur að aldri, en
síhress að vanda. Milli 50 og
sextíu manns tóku þátt í hlaup-