NT - 24.04.1984, Side 26
Þriðjudagur 24. apríl 1984 26
Það vorar
Pallbílhús
Innréttingar i sendibila
Tjaldvagnar, danskir — þyskir
Hjólhýsi
Kerrur, 3 stæröir
Gisli Jónssop
Sundaborg 41
■ Ásgeir Sigurvinsson stjórnaði liði sínu, Stuttgart til sigurs
gegn Bochum á laugardag, og þar með í efsta sætið í
Bundeslígunni. Spurningin er bara, tekst Asgeiri og félögum
að klófesta meistara titilinn? Tímamynd Róbert
Frá Guðmundi Karlssyni, íþrótta-
frcttamanni NT í Þýskalandi:
■ Stuttgart skaust upp í
fyrsta sætið í vestur-þýsku
Búndeslígunni í knattspyrnu
um helgina er liðið bar sigur-
orð af Bochum á útivelli.
Helstu keppinautar Stuttgart
um meistaratitilinn, Bayern
Múnchen, töpuðu á sama
tíma gegn YVerder Bremen.
Mikil spenna ernú í deildinni
og fjögur lið eiga mjög góða
möguleika á að vinna titilinn
er ftmm umferðir eru eftir.
Urslt leikja í Vest-
Þýskalandi á laugardag urðu
þessi:
Bielcfeld-HSV ............ 0-1
Brcmcn-Bayem ............. 3-2
Dusscldorf-Frankfurt...... 4-2
Mannheim-Gladbach......... 2-3
Lcverkusen-Kaiserslautem . 2-0
Úrdingen-Dortmund ........ 2-1
Braunscheig-Köln ......... 2-2
Asgeiro
- unnu Bochum 1-0 - Bayern tapaði
Loks vann Dússeldorf
Bochum-Stuttgart ........ 0-1
OfTenbach-Númberg ....... 3-1
Stuttgart kom til leiks í
Bochum án tveggja mikil-
vægra leikmanna, þeirra
Karlheinz Förster og Rol-
eder markvarðar, sem báðir
eru meiddir. Bochum byrj-
aði leikinn af miklum krafti
og átti nokkur góð færi á
fyrstu 8 mínútum leiksins,
en Jaeger varamarkvörður
Stuttgart náði að koma í veg
fyrir að liðinu tækist að ná
forystu í leiknum. Smám
saman náði Stuttgart undir-
tökunum í leiknum, drifnir
áfram af sterku miðvallar-
tríói með Ásgeir Sigurvins-
son í broddi fylkingar. Á 9.
mínútu leiksins tók Ásgeir
Sigurvinsson aukaspyrnu
rétt við miðju vallarins og
gaf langa sendingu inn í
vítateig Bochum. Scháfer
tók við knettinum, gaf hann
aftur fyrir sig þar sem Andre-
as Múller kom aðvífandi og
þrykkti knettinum á blávink-
ilinn. Fleiri urðu mörkin
ekki í leiknum, en liö Stutt-
gart hafði allan leikinn yfir-
höndina og var nær því að
bæta við fleiri mörkum en
Bochum að jafna. Besta fær-
ið til að auka við fprystu
Stuttgartliðsins fékk Ásgeir
Sigurvinsson um miðbik síð-
ari hálfleiks, er hann einlék
frá eigin vallarhelmingi, lék
á þrjá leikmenn Bochum og
að lokum á markvörð liðsins,
en skaut svo naumlega yfir
úr þröngu færi. Eftir leikinn
tók þýska sjónvarpsstöðin
ZDF Ásgeir tali og spurði
hann um möguleika Stutt-
gart á að hreppa meistara-
titilinn. Ásgeir kvaðst bjart-
sýnn á að Stuttgart næði að
vinna titilinn. „Ef við vinn-
um í Núrnberg um næstu
helgi eigum við tvo heima-
leiki í röð og stöndum því
mjög vel að vígi“
Liðið í fímmta sæti deildar-
innar, Werder Bremen tók á
móti Bayern Múnchen um
helgina. Var sá leikur án efa
leikur helgarinnar í þess orðs
fyllstu merkingu. Góður
leikur, marktækifæri, bar-
átta og leikgleði einkenndi
leikinn. Pfaff, markvörður
Múnchen lék ekki með, en í
hans stað lék hinn 37 ára
gamli Manfred Múller. I
byrjun leiksins sótti Bayern
meira og varði Burdenski
varamarkvörður þýska
landsliðsins þá tvívegis vel
frá Karl-Heinz Rummen-
igge. Hægt og rólega náði
Bremen hins vegar undir-
tökum í leiknum og á 27.
mínútu skoraði Völlerfyrsta
mark leiksins með þrumu-
skoti af 14 metra færi eftir að