NT - 24.04.1984, Blaðsíða 28

NT - 24.04.1984, Blaðsíða 28
n Þ ðjudagur 24. apríi 1984 28 n Já, nú éreÖKat (( ■ „Já, nú er ég kát“ sagði skíðadrottningin Nanna Leifs- dóttir eftir að hún hafði tryggt sér öruggan sigur í stórsvigi á Landsmótinu. Þá voru þrír ís- landsmeistaratitlar í húsi hjá henni, hún hafði áður sigrað í sviginu og með sigrinum í stór- sviginu tryggði hún sér að sjálf- sögðu sigurinn í alpatvíkeppn- inni. „Þetta var æði“ sagði Nanna þegar við spurðum hana hvern- ig keppnin í stórsviginu hefði verið. Stórsviger hennar sterk- asta hlið og sigurinn var aldrei í hættu. En það glæsilegasta sem hún sýndi á þessu móti var án efa fyrri ferðin í svigkeppn- inni. Þá keyrði hún stórglæsi- lega og þeir sern á horfðu efuðust um að hún myndi haida út og sleppa við fall eða annað óhapp. En Nanna sigldi í gegn af öryggi og segja má að hún hefði getað tekið lífinu með ró í síðari feröinni. Það gerði hún, en fékk þó annan besta tímann - og langbestan samanlagt. Nanna er því enn ókrýndt skíðadrottning fslands. Hún hefur nú sigrað í stórsvigi á Landsmóti 4 ár í röð, í svigi 3 ár í röð og nálgast því metin. í sviginu hafa þær Jakobína Jakobsdóttir (1954-1957) og Árdís Þórðardóttir (1964-1967) oftast sigrað í röð eða 4 sinnum hvor, en Steinunn Sæmunds- dóttir og Nanna Leifsdóttir þrívegis. Steinunn Sæmunds- dóttir hefur oftast í röð unnið í stórsviginu eða fimm sinnum. „Ég var ansi leið og þreytt eftir Olympíuleikana í febrúar en eftir að ég tók mér frí í eina viku frá æfingum gjörbreyttist þetta. Mér hefur reyndar gengið illa í svigi að undanförnu svo ég varð að bíta á jaxlinn núna og taka á öllu og það nægði“ sagði Nanna. - Þess má geta að titillinn í stórsviginu var 12. íslands- meistaratitill Nönnu og sigur- inn í alpatvíkeppninni sá 13. Nanna var sammála okkur að það væri slæmt að hætta á þeirri tölu, og því má búast við henni á fullri ferð í brekkunum næsta vetur og sennilega mörg næstui ár. Hún er drottningin. , §§ Nanna Leifsdóttir, skíAadrottningin frá Akureyri sem vann þrenn guliverðlaun. Þorvaldur Jónsson hafði nokkra yfírburði í stökkinu „Stórsvigið er mín sérgrein - sagði Guðmundur Jóhannsson frá ísafirði sem sigraði í stórsviginu og alpatvíkeppni ii ■ Guðmundur Jóhannsson frá Isafírði varð sigurvegari í stórsvigi og alpatvíkeppni á Landsmótinu á Akureyri. Hann hafði umtalsverða yfir- burði, var með besta tímann í báðum ferðunum og vann með glxsibrag. „Stórsvigið er mín sérgrein, ég er miklu slakari í sviginu" sagði Guðmundur hress og kát- ur er við spjölluðum við hann. „Ég átti því von á að verða í fremstu röð hérna, en ég vann einnig stórsvigið á Landsmót- inu í fyrra." „Þettavargottmót“ - sagði Þröstur Guðjónsson mótsstjóri ■ „Allir þeir sem unnu að undirbúningi og framkvæmd þessa móts lögðust á eitt og ég held að ég geti fullyrt að útkom- an sé góð“ sagði Þröstur Guð- jónsson formaður Skíðaráðs Akureyrar og formaður Lands- mótsnefndar er við ræddum við hann í mótslok. „Þetta var gott mót og gekk vel, veðrið lék við okkur nema síðasta daginn og við reyndum í framkvæmd ýmsa nýja hluti sem gengu upp. Það eina sem ég er ekki ánægður með er frammistaða Sjónvarpsins. Þeir Sjónvarpsmenn gerðu að vísu góða hluti hér fyrsta keppnis- daginn en síðan ekki söguna meir. Þeir stóðu ekki við það sem við höfðum talað um þrátt fyrir að þeim stæði til boða öll aðstoð sem við vorum færir um að veita þeim.“ gk-Akureyri - Guðmundur er 21 árs og á því nóg eftir í skíða- brekkunum. „Já það eru mörg ár framundan ef maður vill. Ég er ekkert að hugsa um að setja skíðin upp á hillu en þó liggur ekkert á að vera að gera fram- tíðaráætlanir". - Ert þú í toppformi núna? „Ég er í nokkuð góðri æf- ingu. Það kom toppur hjá mér um áramótin, síðan datt ég nokkuð niður í mars en þetta kom svo upp aftur í apríl.“ - Nú varst þú númer þrjú í sviginu, gerðir þú þér vonir um að vinna einnig sigur þar? „Ekki beint, en ég stefndi að því að veita þeim harða keppni sem voru í slagnum. En þeir Árni og Atli voru einfaldlega betri og við því er ekkert að segja“ sagði Guðmundur. Hann var alls ekki óhress, enda hafði hann tvo gullpeninga með sér heim til ísafjarðar. gk-Akureyri Úrslit í svigi og göngu Stórsvig kvenna: 1. NannaLeifsd. A 68.85-58.65=127.50 sek 2. Slgne Vidarsd. A 69.13-60.42=129.55 sek 3. Guðrún Kristjánsd A 70.31-60.71=131.02 sek 4. Anna María Malmquist A 71.00-60.91=131.91 sek 5. Guörún JMagnúsd A 71.63-60.38=132.01 sek Eins og sjá má hafði Nann Leifsdóttir algjöra yfirburði og reyndar var hér ekki um neina keppni að ræða nema um þriðja sætið. En er það ekki íhugunar- efni að í stórsvigi kvenna á Skíðalandsmóti séu aðeins 11 keppendur, þar af 8 frá Akureyri, 2 frá Reykjavík og ein frá Dalvík? Svig kvenna: 1. NannaLelfsdóttir A 41.06-52.01=93.07 sek 2. Tinna Traustadóttir A 42.44-51.78=94.22 sek 3. Signe Viðarsdóttir A 42.27-52.27= 94.54 sek 4. Hretna Magnúsd A 44.02-52.14 =96.16 sek 5. Guörún J Magnúsd A 44.41-53.19=97.60 sek Fimm Akureyrarstúlkur í efstu sætunum og „drottningin" Nanna Leifsdóttir í nokkrum sérflokki. Svig karla: 1. Árai Þ. Áraason R 483443.10=91.48 sek 2. Atli Einarsson í 48.82-44.44=93.26 sek 3. Guðm. Jóhannss. i 48.74-44.55=93.29 sek 4. Daníel Hilmarsson D 49.38-44.14=93.52 sek 5. Björn Vikingsson A 49.61-44.62=94.23 sek Árni Þór í nokkrum sérflokki eins og sjá má. Hinsvegar hörku- keppni um næstu sæti þar sem hinn 17 ára ísfirðingur Atli Ein- arsson hafði vinninginn 3/100 úr sek. betri en félagi hans Guð- mundur Jóhannsson frá ísafirði. Stórsvig karla: 1. Gu&m.Jóhannss. ( 59.17-56.16=115.33 sek 2. Björn Víkingsson A 60.13-56.67=116.80 sek 3. Atli Einarsson í 59.64-57.17=116.81 sek 4. Daniel Hilmarsson D 60.05-56.78=116.83 sek 5. Árni G.Árnason H 60.34-57.26=117.60 sek Hörkukeppni þar sem 3/100 úr sek. skilja að annað og fjórða sætið. Hér var svo sannarlega hart barist og Björn Víkingsson tryggði sér 2. sætið með mjög góðri síðari ferð. Boðganga karla: 1. Ólafsfjörður 88.52 min (Haukur Sigurðsson 30.07 - Jón Konráðsson 30.06 - Gottlieb Kon- ráðsson 28.39) 2. ísafjörður 88.54 mín (Þröstur Jóhannsson 29.48 - Einar Ingvason 30.32 - Einar Ólafsson 28.34) 3. Siglufjörður 94.18 min (Magnús Eiríksson 32.02 - Karl Guðlaugsson 32.06 - Ólafur Vals- son 30.10). 4. Akureyri 94.43 mín. (Ingþór Eiríksson 31.59 - Sigurður Aðalsteinsson 33.01 - Haukur Ei- ríksson 29.43) 5. Ólafsfjörður 95.16mín (Finnur Gunnarsson 30.04 - Ingvi Óskarsson 31.55 - Sigurgeir Svav- arsson 32.17) Mest spennandi keppni mótsins. Þeir Gottlieb og Einar Ólafsson gengu samhliða 10 km og það var ekki fyrr en á síðasta metranum sem úrslitin réðust. Olympiufararnir Gottlieb og Ein- ar börðust þá um gullið, tóku á öllu sínu og eftir 30 km skildu aðeins 2 sekundur sveitir Ólafs- fjarðar og ísafjarðar. Boðganga kvenna: 1. Siglufjörður 39.52 mín. (Svanfríður Jóhannsdóttir 13.44 - Maria Jóhannsdóttir 13.21 - Guð- rún Páisdóttir 12.47) 2. Isafjörður 40.30 mín. (Svanhildur Garðarsdóttir 14.20 - Ósk Ebenesardóttir 13.40 - Stella Hjartardóttir 12.30) Aðeins tvær sveitir tóku þátt og þrátt fyrir stórgóðan sprett Stellu undir lokin tókst ísfirsku stúlkun- um ekki að hrifsa gullið, það kom í hlut Guðrúnar Pálsdóttur og þeirra Maríu og Svanfríðar að hafa verðlaunin fyrir 1. sætið með sér heim. Ganga stúlkna (3.5 km): 1 Stella Hjartard í 12.36 mín 2. Svanhildur Garðarsdóttirte I 13.36 mín 3. Ósk Ebenesard. ( 13.37 mín 4. Auður Ebenesard í 13.45 mín 5. Svanfríður Jóhannsdóttir S 14.28 mín Sannkölluð „fsafjarðargrein". Stella í sérflokki en sekúndubrot skildu í næstu sætum. Ganga kvenna (5 km): 1. Guðrún Pálsdóttir S 18.23 mín 2. María Jóhannsd. S 19.05 mín 3. Guðbjörg Haraldsdóttir R 20.39 mín Ganga pilta (10 km): 1. Olafur Valsson S 30.08 min 2. HaukurEiríksson A 30.24 mín 3. Ingvi Óskarsson Ó 30.30 mín 4. Karl Guðlaugsson S 30.31 mín 5. Bjarni Gunnarss. f 31.23 mín Barátta piltannna um efstu sæt- in var geysileg sem sést best á því að9sek. brot skilja2. og4. mann. Ganga karla (15 km): 1. GottliebKonráðs Ó 42.13 mín 2. Einar Ólafsson j 43.34 min 3. Haukur Sigurðss. Ó 44.13 mín 4. Jón Konráðsson Ó 44.41 mín 5. Þröstur Jóhannss f 46.10 mín Olympíufarinn Gottlieb Kon- ráðsson geysiiega sterkur og því aðalbaráttan um næstu sætin þar sem hinn olympíufarinn Einar Ólafsson hafði vinninginn. Norræn tvíkeppni 17-19 ára: 1. ÓIafurBjörnsson Ó 424,7 stig 2. Sigurgeir Svavarsson Ó 336,2 stig Hér var Sigurgeir betri í göng- unni, en Ólafur hinsvegar miklu sterkari í stökkinu og tryggði hann sér sigurinn. Norræn tvíkeppni 20 ára og eldri: 1. Þorvaldur Jónss. Ó 446.5 stig 2. RúnarGunnarss. Ó 412,6 stig 3. Björn Þór Ólafss. Ó 399.55stig Sigur Þorvaldar var aldrei í hættu. Hann var bestur eftir göngukeppnina og jók enn við forskot sitt í stökkinu sem vænta mátti enda er hann óumdeilanlega besti skíðastökkvari landsins. Flokkasvig karla: Llsafjörður 296,97 sek (Atli Einarsson 70.69 - Rúnar Jónatansson 77.99 - Guðjón Ólafsson 75.96 - Guðmundur Jó- hannsson 72.33) 2. Húsavík 366.21 sek (Stefán G. Jónsson 75.96 - Björn Olgeirsson 115.89 - Sveinn Aðal- geirsson 101,75 — Árni G. Árnason 72.61) Sveitir Reykjavíkur og Akur- l eyrar voru úr leik. ; Flokkasvig kvenna: 1. AkureyriB 229.31 sek j (Guðrún J. Magnúsdóttir 76.08 - Hrefna Magnúsdóttir 77.83 - Anna María Malmquist 75.40) 2. Akureyri A 229.68 sek (Tinna Traustadóttir 77,56 - Guð- rún H. Kristjánsdóttir 75.71 -Signe Viðarsdóttir 76.41) 3. Reykjavík 243.46 sek (Bryndís Viggósdóttir 93,26 - Snædis Úlriksdóttir 76.11 - Þórdís Jónsdóttir 74.10) Stökk 20 ára og eldri: 1. Þorvaldur Jónsson Ó 258,7 stig (49,5 m - 49,5m - 49,5m) 2. Björn Þór Ólaf sson Ó 217.1 stig (44,5m - 44,Om - 45,5m) 3. Guðmundur Konráðsson Ó 201,9 stig i (44,Om - 43,Om - 42,Om) 4. Haukur Hilmarsson Ó 186,1 stig (47,Om - 48,Om - 47,5m) 5. Róbert Gunnarsson Ó 176,1 stig (42,5m - 44,Om - 44,5m) Stökk 17-19 ára: 1. Helgi K. Hannesson S 216.4 stig (44,5m - 42,5m - 45,Om) 2. Ólafur Björnsson Ó 207,7 stig (44,5m - 40,Om - 42,Om) 3. Randver Sigurðsson Ó 180,2 stig (39,5m - 39,5 m - 39,Om) 4. Sigurgeir Svavarsson Ó 103,1 stig (25,5m - 31.5m - 25,5m) Alpatvíkeppni kvenna: 1. Nanna Leifsdóttir A 20,00 2. Signe Viðarsdóttir A 22.01 3. Hrefna Magnúsdóttir A 58.85 4. Guðrún J. Magnúsdóttir A 64.15 Alpatvíkeppni karla: 1. Guðmundur Jóhannss. f 15,27 2. Atli Einarsson f 24.96 3. Daníel Hilmarsson D 27.26 4. Björn Víkingsson A 32.96 5. Árni G. Árnason H 38.79

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.