NT - 23.05.1984, Blaðsíða 3
■ Friðrik Ólafsson skákmaður valinn skrifstofustjóri Alþingis.
Já, rétt að huga
að öðrum málum
■ - Já ég hef látið það koma fram að ég
tel rétt að huga að öðrum málum. Því að
þetta er nú búinn að vera ansi langur ferill
allt að fjörutíu árum ef ég tek allt. Ég
lærði að tefla þegar ég var átta, níu ára.
Svoleiðis að þetta er orðinn langur kafli í
lífinu.
Þig hefur ekki langað í Fide-slag aftur?
- Nei, þetta var út af fyrir sig nokkuð
lærdómsríkur kafli að vera þar. Eg kynnt-
ist nokkrum öðrum hliðum á lífinu heldur
en því sem kemur fyrir hér a Nlandi og
það náttúrlega er mikill lærdómur.
Hvenær tekurðu til starfa?
- Það er miðað við 1. september í
haust. Að ég taki þá við störfum áður en
Alþingi kemur saman.
Hvernig líst þér á þetta nýja starf?
Þetta er mikil ábyrgð sem fylgir starf-
inu, en ég mun leggja mig allan fram til
að gegna því sem best. Ég hef undanfarið
ár unnið við Lagasafnið og aflað mér
vitneskju þar, og gert mér grein fyrir því
hvernig svona löggjafarstarfscmi fer
fram. Ég vænti mér alls góðs af þessu.
Hvað er sameiginlegt með skák og
skrifstofustjóm á Alþingi?
-Skákin kennir manni ýmislegt sem
komið getur að gagni. Hún kennir manni
rökrétta hugsun og þolinmæði. Skákin er
lítil mynd af lífinu. Þar þarf svona viss ráð
og vissar framkvæmdir til að koma sínum
málum fram. Ég efast ekki um að margt
sem ég hef öðlast reynslu af í skákinni á
eftir að koma mér að góðu gagni bæði á
Alþingi og í lífinu.
Færeyski báturinn:
Grefst í sandinn
■ Nú er búið áð ákveða að engar
tilraunir verða gerðar til að bjarga fær-
eyska bátnum Birita, sem strandaði á
Skeiðarársandi um helgina. Björgunar-
menn úr Frama, björgunarsveit Öræf-
inga, fóru um borð í bátinn í gær og náðu
úr honum ýmsum verðmætum, svo sem
ratsjá, loran og fleiri siglingatækjum.
Að sögn Ólafs Sigurðssonar, formanns
Frama, stendur báturinn ennþá á réttum
kili í fjöruborðinu. Þó mun vera farið að
grafa undan honum öðrum megin en um
leið hefur hlaðist undir hann á hitt borðið.
Bíða Birtu nú örlög fjölda skipa sem
strandað hafa á Skeiðarársandi í aldanna
rás - hún mun grafast í sandinn á örfáum
árum.
Leiðangurinn í gær var farinn að beiðni
færeyska tryggingafélagsins sem þarf að
bera tjónið af strandinu. Friðjón Guð-
röðarson, sýslumaður á Höfn, fylgdi
björgunarsveitarmönnum á strandstað og
tók þátt í björgunaraðgerðum.
Eins og komið hefur fram í blaðinu
leiddu sjópróf vegna strandsins, sem
haldin voru í Reykjavík á mánudag, í Ijós
að loraninn, staðarákvörðunartækið sem
sjómenn styðjast mjög við, var bilaður.
Mun það hafa leitt þann sem stýrði
skipinu af réttri stefnu.
Sportbíll meðeinstaka
aksturseiginleika
ogútlitsem vekur
aðdáun
Úrvals stýris-ogfjaðrabúnaður, 5 gíra skipting, læst
mismunadrifog lítil loftmótstaða(0.35cd) gera Corolla
Coupe sérlega lipran og þægilegan í akstri.
^ ■ Vélin er að mörgu leyti sérstök.
Hún er létt, tveggja knastása, 16
ven^a me^ f'afeindastýrðri bensín-
innspýtingu og kveikju.
Corolla Coupe GT 2 dyra 418.000.-
Corolla Coupe GT 3 dyra 430.000.-
Corolla Coupe er óvenjulegur bíll á einstöku verði
TOYOTA
Nýbýlavegi 8 200 Kópavogi S. 91-44144
inni. í Barðastrandahreppi búa
nú 175 manns og binda menn
helst vonir við útgerð þar í
hreppnum sem komið gæti í veg
fyrir fólksflótta.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um semm fengust hjá Sigurði
Sigurðssyni dýralækni að Keld-
um sem hefur haft með rann-
sókn málsins að gera þá er
niðurskurðurinn í haust aðeins
fyrsta skrefið í víðtækari að-
gerðum gegn riðuveiki sem
menn óttast að sé orðin út-
breiddari um Vestfirði en talið
hefur verið til þessa. Lengi hef-
ur verið vitað af riðuveiki í
Barðastrandahreppi og hefðu
bændur þar sætt sig þolanlega
við búskap með henni. „En nú
er ekki margra kosta völ“, sagði
Einar Guðmundsson „þegar
tekin hefur verið sú ákvörðun
að verja Vestfirði fyrir riðu
voru flestir hér í hreppnum
ásáttir um þessar aðgerðir. Á
því voru þó undantekningar."
Hjá Sigurði Sigurðssyni dýra-
lækni fengust þær upplýsingar
að þegar hefði verið kallað til
samráðsfundar fulltrúa allra
sveita í Vestfjarðahólfi. Grunur
leikur á að riðunni hafi þegar
skotið niður í Dýrafirði en svæð-
ið sem rannsakað verður er allt
sunnan og vestan ísafjarðar
innst í Djúpinu og Kollafjarðar
við Breiðafjörð.
■ Riða í fé er nú orðin alvarlegt vandamál á Vestfjörðum og benda
rannsóknir til þess að hún sé útbreidd um mestallar ísafjarðar- og
Barðastrandasýslur en áður var álitið að hún væri einungis á mjög
takmörkuðum svæðum.
Þýðir þetta að þú
hafirsagt skilið
við skákina?
COROLLA COUPE
Verðuröllu fé fargað i
Barðastrandahreppi?
- riðuveiki orðin alvarlegt vandamál á Vestfjörðum
Miðvikudagur 23. maí 1984
■ „Það má vel á málum halda
ef það á ekki að verða úr þessu
einhver burtflutningur á fólki
og þetta getur orðið feiknalega
erfitt“, sagði Einar Guðmunds-
son oddviti í Barðastranda-
hreppi en þar hefur verið ákveð-
ið að farga öllu fé vegna riðu-
veiki sem menn óttast nú að
kunni að hafa breiðst út um
Vestfirði. Um er að ræða 16 bæi
en þegar hefur verið skorið
niður á nokkrum bæjum í sveit-