NT - 23.05.1984, Blaðsíða 25
Miðvikudagur 23. maí 1984 25
riin
■ Mörg þúsund manns misstu heimiii sín í óeirðum í indvcrsku
iðnaðarborginni Bhiwandi í fvrradag en hún er í um 60 km fjarlægð
frá Bombay. Kofar, sem fólkið bjó í, fuðruðu upp í eldhafj eftir að
óeirðarseggir höfðu kveikt í þeim. Simamynd-POLFOTO
Ódýr mannslíf
á Indlandi
Indland-Rcuter.
■ Ekkert lát virðist á óeirðum
á Indlandi. Pvert á móti magn-
ast ókyrrðin og fleiri láta lífið.
Hátt á annað hundrað manns
höfðu dáið í óeirðunum á milli
múhameðstrúarmanna og
Hindúa á Maharashtrafylki í
Suðvestur-Indlandi í gær.
Yfirvöld neyddust til að setja
á útgöngubann í gær í sumum
hverfum í Bombay, í iðnaðar-
borginni Bhiwandi og á fleiri
stöðum til að reyna að hindra
öfgamenn í að fremja ofbeldis-
aðgerðir. Ofstækissinnar bæði í
röðum Hindúa og múhameðs-
trúarmanna hafa gripið til
stöðugt öfgakenndari aðgerða
til að ná sér niður á andstæðing-
um sínum í þessum átökum sem
nú hafa staðið í sex daga.
Nokkrir Hindúar vopnaðir
byssum réðust í gær á skóla sem
múhameðstrúarmenn reka og
skutu á fólk sem svaf þar. Þeir
myrtu þannig þrjá menn og
særðu aðra þrjá. Mörg hundruð
rnanns hafa særst og a.m.k.
6000 manns hafa neyðst til að
flýja heimili sín vegna elda sem
loguðu í íbúðarhverfum.
Forsætisráðherra Indverja ,
Indira Gandhi, kom í fyrradag í
heimsókn til óeirðasvæðanna til
að reyna að lægja öldurnar en
það virðist hafa lítil áhrif. Hún
lofaði því að ættingjar þeirra,
sem látist hefðu í átökunum,
skyldu fá í skaðabætur frá ríkinu
um það bil 2000 indverskar
rúbíur en það mun vera um
6000 íslenskar krónur. Þetta er
ekki há upphæð á íslenskan
mælikvarða en sjálfsagt koma
þessir peningar sér vel fyrir
eftirlifandi ættingja.
Á meðan óeirðirnar í Mahar-
ashtrafylki hafa blossað upp
hafa átökin í Punjabfylki haldið
áfram en þau átök hafa staðið
miklu lengur. Að minnsta kosti
13 manns létust þar í átökum á
sunnudegi og mánudegi í þess-
ari viku og svo virtist sem að-
skilnaðarsinnar hefðu hafið
nýja sókn gegn stjórnvöldum
þar.
Njósnarar A-Evrópu
reknir frá V-Evrópu
London-Rcutcr.
■ Bretar hafa rekið tvo tékk-
neska sendiráðsstarfsmenn og
einn sovcskan úr landi sem eru
grunaðir um að 'hafa stundað
njósnir í Bretlandi.
Tékkarnir voru reknir úr landi í
byrjun þessa mánaðar en þá var
ekki tilkynnt um brottrekstur
þeirra af ótta við að slíkt kynni að
leiða til þess að Tékkar rækju
breska sendifulltrúa frá Tékkó-
slóvakíu í hefndarskyni.
Sovétmaðurinn, semvarrekinn,
hét Arkadi Gouk og hann hafði
starfað lengi í sovésku utanríkis-
þjónustunni. Sovétmenn svöruðu
þegar í stað með því að reka
breska sendifulltrúann John Bur-
nett frá Moskvu.
Bretland:
Einkaaoilum seld
gróðafyrirtæki
London-Rculcr.
■ Breska ríkisstjórnin skýrði frá
því í gær að fyrirtækið sem fram-
leiðir Jaguarbíla yrði selt til einka-
aðila.
Jaguar er nú gróðavænlegasti
hluti bresku bílaverksmiðjanna
Leyland sem eru í einkaeign. Rík-
ið tók yfir rekstur Jaguarfyrir-
tækisins seint á síðasta áratug
vegna mikils tapreksturs sem þá
var á því. Ýmsar breytingar voru
gerðar til að tryggja betur gæði
Jaguarbíla og afgreiðslutími bíl-
anna var styttur. Þessar brcytingar
breyttu rekstrarstöðu fyrirtækisins
svo að í fyrra var hagnaður af
Jaguar um 55 milljón sterlings-
pund.
Því er spáð að salan á Jaguar til
einkaaðila verði hinum ríkisreknu
Leylandverksmiðjum dýr á næstu
árum vegna þess að Leyland mun
þá ekki geta notað hagnaðinn af
Jaguar til að greiða niður tapið af
öðrum hlutum rekstursins. En
stefna stjórnvalda er sú að minnka
umsvif ríkisins í atvinnurekstri
sem mest og þess vegna hefur
verið ákveðið að selja Jaguar þar
sem fyrirtækið er nú svo gróða-
vænlegt að einkaaðilar hafa fengið
áhuga á að reka það.
■ Það er siður í Hollywood að frægar kvikmyndastjörnur fái
fótspor sín geymd í steypu fyrir komandi kynslóðir fyrir utan hið
kínverska leikhús Manns. Andrés Önd mun halda upp á fimmtíu
ára afmæli sitt þann 9. júní næstkomandi. Það þótti því vel við
hæfi að láta hann fylgja fordæmi annarra frægra kvikmynda-
stjarna. Hér sést Andrés festa fótspor sín í steypu í Hollywood
í gær. Símamynd-POLFOTO
■li í : S:'1 1
I11 i I: J, Í gj f t
mÍMá r ' ' Jis y Stflí . Á
■ Utanríkismálaráðherra Sovétríkjanna, Andrei Gromyko, ræddi
í gær við Hans-Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Ves'tur-Þýska-
lands, sem er nú í Sovétríkjunum í opinberri heimsókn. Hér sjást
ráðherrarnir takast í hendur af mikilli vinsemd þótt þeir kyssist ekki
eins og Rússar gera við sína allra nánustu vini. Símamvnd-poi.poio
„Stjörnustríð“
rædd í Moskvu
Moskva-Rcutcr.
■ Utanríkisráðherra Vestur-
Þýskalands, Hans-Dietrich
Genscher, er nú í opinberri
heimsókn í Moskvu þar sem
hann ræðir við sovéska ráða-
menn.
Ekki er búist við neinum
óvæntum breytingum í sanr-
skiptum Sovétríkjanna við
Fáir stúdent-
ar í flokknum
Varsjá-Rcutcr.
■ Kommúnistaflokkur Pól-
lands er ekki vinsæll meðal
pólskra stúdenta sem stendur.
Málgagn Kommúnistaflokks
Póllands kvartaði yfir því fyrr í
þessum mánuði að fáir stúdent-
ar gengju nú í flokkinn. Stjórn-
völd hafa líka talið sjg tilneydd
til að ónýta kosningar rektora
við þrjá pólska háskóla að
undanförnu á þeim forsendum
að þeir væru ekki nægjanlega
tryggir stuðningsmenn sósíal-
ismans.
Pólska ríkisstjórnin neitaði í
gær að samþykkja niðurstöðu
lýðræðislegrar kosningar á nýj-
um rektor við Háskólann í
Varsjá. Stúdentar og starfslið
skólans liöfðu kosið Klemcns
Kzaniawski sem rektor en hann
er þekktur fyrir frjálslyndar
skoðanir sínar.
Vesturlönd vegna þessarar
heimsóknar en sumir vonuðu
sanrt að Genscher tækist að fá
Sovétmenn aftur að samninga-
borðinu til að ræða við Banda-
ríkjamenn um takmörkun á
kjárnorkuvígbúnaði stórveld-
anna. Sovétmenn hættu þeim
viðræðum eftir að Vesturveldin
ákváðu að koma upp meðal-
drægunt eldflaugum í Vestur-
Evrópu. Ekkert bendir samt til
þess að Sovétmenn hafi breytt
þeirri afstöu sinni að NATO-
ríkin verði að taka niður þær
eldflaugar sern nú er verið að
setja upp til þess að viðræður
geti hafist að nýju. Þvert á móti
var Gromyko óvcnju harðorður
í garð Bandaríkjanna í ræðu
sern hann hélt í matarboði í
fyrradag sern var haldið í tilefni
af heimsókn Genschers.
Genscher ætlaöi í þessari ferð
sinni að ræða m.a. hugmyndir
um samningaviðræður milli
stórveldanna urn bann við víg-
búnaði úti í geimnum. Þar er'
Qenscher ekki að öllu leyti
sammála Reagan Bandaríkja-
forseta sem hcfur rætt um
„stjörnustríð1' sem hugsanlegt
framhald vígbúnaðarkapp-
hlaupsins sem muni leysa
Bandaríkjamenn undan ógn
skyndiárásar með langdrægum
kjarnavopnum. Genscher vill
að stórveldin semji um að halda
vígbúnaðarkapphlaupinu við
jörðina.
QGENERnL
í í)Teleton
GÆÐANNA VEGNA
PLOTUSPILARI 5.669,- PLÖTUSPILARI 6.933,- PLÖTUSPILARI 11.130,
MAGNARI 2 x 64 w ... 11.440,-
ÚTVARP FM-MW-LW . 6.645,- MAGNARI 2 x 75 w ... 12.730,
ÚTVARP FM-MW-LW . 4.562,- HÁTALARAR (pr. stk.) . 3.026,- ÚTVARP FM-MW-LW . 16.274,
MAGNARI 2 x 32 w ... 5.273,-
HÁTALARAR (pr. stk.) . 3.223,- -
Meö 1000,- króna útborgun getur
þú keypt eitthvert eitt af þessum
glæsilegu GENERAL-TELETON
hljómtækjaeiningum, sem héreru
boðnar á tilboðsverði.
Afganginn getum við samið um
þannig að þér henti vel.
$ SAMBANDSINS
ÁRMÚLA 3 SÍMAR 38900-38903