NT - 23.05.1984, Blaðsíða 27
Miðvikudagur 23. maí 1984 27
Jón Erlendsson framkvæmdastjóri HSÍ:
„Gífurlegt
átak fyrir
sambandið“
■ „Þetta er gífurlegt átak fyr-
ir HSI, bædi undirbúningslega
og fjárhagslega. Við höfum
mjög góðan mann til að sjá um
undirbúning liðsins, þar sem
Bogdan er, og við þurfum að
setja það á oddinn að hjálpa
honum til þess að hægt sé að
undirbúa liðið fyrir Olympíu-
leikana eins vel og auðið er á
svo skömmum tíma. Því fylgir
gífurlegur kostnaður sem HSÍ
verður að taka á sig, og geysi-
lega mikið starf sem þarf að
inna af hendi svo sambandið
geti þetta fjárhagslega", sagði
Jón Erlcndsson framkvæmda-
stjóri og varaformaður HSÍ í
samtali við NT í gær.
„Ég set þetta framar öllum
innanhússdeilum hér, sem eru
smámál og skipta engu máli
þegar þátttaka á Olympíu-
leikum er annars vegar. Þetta
er gífurlega mikilvægt mál fyrir
okkur, ef við tækjum ekki þátt
í leikunum væri fjögurra ára
undirbúningur til einskis. Þetta
getur skapað okkur góða stöðu
í HM, og ekki skiptir minna
máli, að við verðum að gera
okkar til þess að hægt sé að
fylgja olympíuhugsjóninni,"
sagði Jón.
„Það sem við erum að vinna
í núna, er að reyna aö komast
inn í mót sem Tékkar halda
11.-16. júlí. Ég hef í samráði
við Bogdan sent skeyti til tékk-
neska sambandsins til að kom-
ast þar með. Svisslendingar
munu hafa dregið sig út úr því
móti, og eitt sæti er laust. Þar
mundu fást fimm leikir. Bog-
dan hefur sagt að hann þurfi
a.m.k. 6-8 leiki fyrir liðið fram
að leikunum, og við gerum eins
og við getum. Varamöguleiki
hjá okkur er að komast í
fjögurra liða mót sem Pólverjar
halda t byrjun júlí. Þá er í
deiglunni að ná samvinnu við
Svía um sameiginlegar æfinga-
búðir í sumar, og samvinnu við
þá um leiki,“ sagði Jón Er-
lendsson.
Bogdan Kowalczyk landsliðsþjálfari:
„Við eigum
möguleika"
■ „Þetta verður erfitt, >ið
eigum möguleika en þet a
verður erfitt. Við eigum bet i
möguleika í Los Angeles ei.
við eigum í Noregi í L-
keppninni að ári, því þar
verða allar Austantjalds-
þjóðirnar sem ekki verða á
OL,“ sagði Bogdan Kowalc-
zyk landsliðsþjálfari í hand-
knattleik á blaðamannafundi
Olympíunefndar Islands
„Lönd eins og Júgóslavía,
Rúmenía og Danmörk hafa
undirbúið sig fyrir Olympíu-
leikana síðustu 5 mánuði í
það minnsta. - Við höfum 6
vikur. Jákvæðu punktarnir
fyrir okkur eru hins vegar
þeir, að við höfum æft dag-
lega þessar þrjár vikur sem
eru liðnar af maí, nokkuð
sem landsliðið hefur ekki
gert áður. Allir leikmennirn-
ir sem ieika erléndis eru
tilbúnir að taka þátt í undir-
búningnum þessar sex vikur,
og þeir sem hér eru heima.
Það er jákvætt. reyndar
langur tími hér á íslandi, þó
þetta teldist enginn tími í
Austantjaldslöndunum,"
sagði Bogdan.
Bogdan sagði, að eins og
staðan væri í dag, ætti ísland
ekki möguleika gegn Júgó-
slavíu og Rúmeníu, en hin
löndin gæti íSlenska liðið lagt
að velli á góðum degi. Það
gæti reynst nóg fyrir íslenska
liðið að vinna einn leik í
riðlinum til að verða meðal 6
efstu.
„Ég er ánægður með liðið,
það hefur verið mikil stíg-
andi í því síðan ég tók við,
og við það bindast vonir
mínar. Ég get frekar tjáð
mig um möguleikana eftir
viku, þegar ljóst er hvað við
getum leikið marga leiki á
þessum 6 vikum sem eru til
leikanna. Þá skýrist einnig
hvernig fer með þá leikmenn
sem nú eiga við meiðsli að
stríða, en þeir Þorbergur
Aðalsteinsson og Sigurður
Sveinsson eru meiddir
núna“, sagði Bogdan Kow-
alczyk.
Friðrik Guðmundsson:
„Gæti þýtt fast
sæti í A-grúppu“
■ „Það að keppa á Olympíu-
leikunum í Los Angeles gæti
tryggt okkur öruggt A-sæti í
HM, því við hefðum getað
farið illa út úr B-keppninni í
Noregi. ef öll austantjaldsliðin
mættu þar“, sagði Friðrik
Guðmundsson formaður
Handknattleikssamband ís-
lands í samtali við NT í gær,
eftir að Olympíunefnd hafði
kynnt ákvörðun ’sína.
„Ég er að sjálfsögðu mjög
ánægður með það ef við fáum
tækifæri til að keppa á OL,
sérstaklega fyrir hönd leik-
manna. Það hlýtur að vera
æðsti draumur hvers íþrótta-
manns að keppa á Olympíu-
leikum, slíkt hlýtur að vera
toppurinn á ferli þeirra sem þar
keppa," sagði Friðrik Guð-
mundsson.
■ Ögmundur bjargar í horn eftir hornspyrnu Valsmanna.
Víkingssigur
í kuldalegum lei
■ „Ég er ánægður með þrjú
stig, hvernig sem þau koma“,
sagði Björn Árnason þjálfari
Víkings eftir að lið hans hafði
sigrað Val á Laugardalsvelli í
gærkvöldi með einu marki gegn
engu. „Kanttspyrnan á þessum
velli verður alltaf frekar þóf-
kennd vegna þess hve völlurinn
er lítill" bætti Björn við, „ og
því hafa þeir leikir sem hér eru
spilaðir ekki verið neitt auena-
yndi“.
Það er vissulega rétt hjá
Birni að leikurinn var ekki
mikið fyrir augað, mikil barátta
á báða bóga en lítið um netta
knattspyrnu.
Veðurguðirnir voru í frekar
slæmu skapi og bæði blésu og
kældu leikmenn og áhorfendur,
sem voru um 500. Það var ekki
fyrr en á 81. mín. sem örlítill
hiti slæddist að áhorfendum er
Kristinn Guðmundsson,
fyrrum Fylkismaður en nú Vík-
ingur, skoraði með góðu skoti
rétt fyrir utan vítateig.
Bæði liðin áttu þokkaleg
marktækifæri fljótlega í
leiknum en leikmenn virtust
ekki á skotskónum. Fyrsta
góða færið féll í hlut Víkinga
er Heimir Karlsson fékk stungu-
sendingu inn fyrir vörn Vals en
var aðeins of seinn að skjóta og
Guðmundur Kjartansson
bjargaði í horn. Á 12. mín.
skaut Valur Valsson yfir eftir
góða fyrirgjöf Gríms Sæmund-
sen. Víkingar vildu síðan fá.
vítaspyrnu á 13. mín. þegar
Heimi var brugðið innan víta-
teigs. Ámundi Sigmundsson
komst síðan einn í gegn á 27.
mín. en Stefán í marki Vals
bjargaði vel með úthlaupi.
Amundi var síðan aftur á ferð-
inni á 41. mín. er hann komst
aftur einn í gegn, en Stefán
bjargaði sem fyrr. Stuttu áður
hafði Valur komist á auðan sjó
við Víkingsmarkið en missti
boltann of langt frá sér, svo
færið rann út í sandinn.
í síðari hálfleik byrjaði Ingv-
ar Guðmundsson í Val, á því
að dúndra yfir af stuttu færi og
stuttu síðar renndi Hilmar Sig-
hvatsson samherji hans knett-
inum framhjá. Á 68. mín. skall-
ar Andri Marteinsson framhjá
HNOT'
SKURN
■ Leikurinn bauö uppá
nokkur góö færi, en aðeins
einu sinni fór boltinn í
netiö. Kuldi og vindur
skemmdu leikinn, sem
annars heföi getaö oröið
þokkalegur. Víkingar áttu
ekki frekar skiliö aö vinna
en Valsmenn, þótt Víkingar
ættu fleiri góð færi. Markið
skoraöi Kristinn Guö-
mundsson á 81. mínútu.
Áhorfendur 516.
úr stórgóðu færi eftir fyrirgjöf
frá Ámunda. Það var svo á 8I.
mín. sem Víkingum tekst að
skoraeinsogfyrrsagði. Heimir
Karlsson renndi þá knettinum
til Kristins sem skaut ágætu
skoti alveg út við stöng sem
Stefán átti ekki möguleika að
verja.
í Víkingsliðinu bar einna
mest á Andra og Ámunda en
aðrir leikmenn voru þeim ekki
langt að baki. Hjá Val var
Guðmundur Þorbj., Guðm.
Kjartans. og Hilmar Sighv.
einna bestir. Dómari var Þor-
varður Bj. og dæmdi vel.
BHKUHHAGJOFHT:
Víkingur
Ögmundur Kristinsson 3
Unnsteinn Kárason 4
Ragnar Gislason 5
Magnús Jonsson 3
Andri Marteinsson 3
ÓmarTorfason 3
Ámundi Sigmundsson 3
Heimir Karlsson 5
Kristinn Helgason 4
Einar Einarsson 5
Kristinn Guðmundsson 3
Gylfi Rútsson 5
Skiptingar: Ólafur Ólafsson
meiddist á 21. mín. og Kristinn
Helgason kom í hans stað. í leikhléi
skipti Ragnar Gislason viö Gylfa
Rútsson, sem kom inná.
Valur
Stefán Arnarson 3
Grimur Sæmundsen 4
Guðmundur Kjartansson 3
Þorgrímur Þráinsson - 3
Guöni Bergsson 4
Jóhann Þorvaröarson 5
Guðmundur Þorbjörnsson 3
Bergþór Magnússon 4
Valur Valsson 3
Hilmar Sighvatsson 3
Ingvar Guðmundsson 5
McGeetil Hamborgar
■ Gengið hefur verið frá
samningi Aberdeen og Ham-
burger SV um kaup Hamburg-
er á sóknarmanninum mark-
heppna, Mark McGee. Kaup-
verðið er 1.1 milljón marka og
búist er við því að McGee þéni
um 300 þúsund mörk hjá
Hamburger. McGce er annar
Brctinn sem fer til Hamburger.
Englendingurinn Kevin Keeg-
an lék með liðinu 1977-1980.
Christie til Man. City
■ Annarrar deildar lið Man- Christie. Christie er mjög
chester City hefur fest kaup á marksækinn leikmaður, og
■niðherja Notts County, Trevor verður City vafalaust styrkur.
Siggi Sv.
meiddur!
■ Sigurður Sveinsson, hand-
knattleiksmaðurinn kunni, sem
leikið hefur með Lemgo í V-
Þýskalandi í vetur, er kominn
til landsins, til æfinga með
landsliðinu. Sigurður verður að
öllum líkindum frá æfingum
næstu vikurnar, því gömul
meiðsl í olnboga hafa tekið sig
upp.
Vonandi er að meiðsl Sigurð-
ar séu ekki alvarleg og hann
geti æft á fullu fyrir Olympíu-
lcikana í í Los Angeles í sumar,
en allt útlit er nú fyrir að
handknattleiksmcnnirnir okk-
ar verði meðal keppenda þar.
■ Sigurður Sveinsson