NT - 23.05.1984, Blaðsíða 9

NT - 23.05.1984, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 23. maí 1984 9 var sýndur hér i íslenska sjónvarpinu hér áður fyrr. Þar vókiu þau mikla athygli, líklega fyrst og fremst af því hvað þau voru ólík þeirri músik s'ém hafði komið út úr Newu Deutsche Welle, sem mestan part var byggð á trommuheilum og síóppum danslögum. Nena var raun- veruleg rokkhljómsveit sem krakkarnir fundu sig í, og boltinn byrjaði að rúlla. I Ameríku náðu þau vin- sældum m.a. vegna þess að videóið 99 Luftballons, sem fjallar um kjarnorkustríð, var sýnt skömmu eltir að íhe Day After var synd. Textinn í 99 Luftbailons tjallar nefnilega um kjarn- orkustríð sem fer af stað vegna þess að 99 bióðri r lljúga inn yTir Austur-Berlín og koma fram á ratsjár- skermum Austanmanna sem innrás. Nena segist vera undir inestum áhrifum IVá Kolling Stones og hefur heyrst muldra: Eg elska Mick Jagger. Þetta er örugglega mjög övenjulegt, liklega eru fáar rokkhljómsveitir íengur undir áhrifum frá Kollingun- um. ■ Þýskaland hefur alltal getið af sér ýmsa góða hluti í poppmúsík. Það var þó ekki fyrr en Nena kom fram á sjónarsviðið að Þjóðverjar eignuðust raunverulega poppstjörnu. l.ag þeirra, 99 Lufthallons hefur náð fyrsta sætinu í hverju landinu á fætur ,öðru, fyrst í Þýska- landi, siðan í flestum Evrópu- löndum, Japan, Bandaríkj- unum og síðast í Bretlandi. Það merkilegasta er kannski að lagið var alls staðar nema i Bretlandi sungið á þýsku. Hingað til hafa íög á öðrum máliim en ensku ekki átt upp á pallborðið á hinum alþjóð- lega vinsældamarkaði. Hljómsveitin á rætur sínar i tónlistarbylgju mikilli sem flæddi yfir Þýskaland fyrir svo sem eins og 3-4 árum og fékk nafnið Neue Deutsche Wclle. Meðlimirnir voru i hlIjómsveitum eins og Stripes og Extrabreit og tóku þátt í hreyfingunni af lífi og sál. Þessum flokkum gekk hálf illa, þannig að ákveðið var að stofna nýja hljómsveit og halda til Berlínar. Þar komst hljómsvcitin í kynni við mann að uafni Jim Rakete, sem áður hafði séð um feril stjarna eins og Ninu Hagen og Spliff, og tekist hafði að fa samning fyrir þessar stjörnur hjá CBS. Rakete tókst einnig að lá samning fyrir Nenu hjá CBS. Hljómsveitin fékk fyrst at- hygli í Þvskalandi út á kvik- mynd sem söngkonan. Nena, sem hljómsveitin heit- ir eftir lék í. Hún hét Gib Gas lch Will Spass. Þetta var léleg mynd, en vakti athygli, og það var gott fyrir hljómsveitina. Næst fékk hljómsveitin að koma fram i þýska sjónvarpsþættinum Musikladen, sem stundum Það nýjasta fra Nenu er lagið Just A Dreain og þykir ekki komast i halfi.'isti við 99 Luftballons. En liljóni- sveitin er gifurlega vinsæl og ferðast nú um Evrópu og alls staðar er uppselt þar sem þau spila. í Bretlandi hala þao verið gagnrynd fyrir að vera á cftir timanum, én þau segja það vera venjulcga breska hræsni og ölundsýki. Alla vega er Ijöst að þau hafa gert það sem ýrnsar aðrar frumlegri og skemmti- legri þýskar rokkhljómsveit- ir hala ekki gert, att vinsæll lag og halað inn stórar fjar- túlgur. NENA: Drottning þýskra hljómsveita Útsýn + Broadway - Oxsmá = Oxtor: Skemmtileg sýning í Tjarnarbíói ■ Sýningin Oxtor í Tjarnar- bíói, sem skírt hefur verið upp og nefnist nú Svarthol, er að mörgu leyti skemmtileg. Þó hefur maður það á tilfinning- unni að hér séu menn enn að prófa sig áfram og betri hlutir eigi eftir að koma seinna. Gamanið hefst þegar keyptur er miði. Miðasalan hefst klukkustund fyrir sýn- ingu, kl. 20.00. Fólk kemur í anddvri Tjarnarbíós, og þar hefur verið komið upp ferða- skrifstofu. Þrjár stúíkur sitja við ritvélar, ein við tölvu og svo er skrifstofustjórinn til hliðar. Manni er vísað á eina af ritvélastúlkunum, sem yfir- heyra mann um nafn, nafn- númer, heimilisfang o.fl., og eftir að þetta hefur veriðtölvu-1 unnið fær maður miðann sinn. Auk áðurgreindra upp- lýsinga eru á farseðlinum upp- lýsingar um háralit viðkom- andi, augnalit og varalit, auk þess sem séreinkenni eru skráð. í mínu tilfelli sfóð í reitnum fyrir séreinkenni: Greinilega gagnrýnandi. Eftir þetta er farið í portið við hlið Tjarnarbíós, þar sem er afgreiðsluborð, bar og stólar fyrir farþega að bíða í. Síðan eru farþegar kallaðir upp eftir þeim númerum sem á farseðln- um eru. Tekið er fram að farþegar fari algjörlega á eigin ábyrgð, en hægt sé að kaupa tryggingu. Eftir að hafa verið kallaður upp fer maður að afgreiðslu- hiiðinu. Þar stendur maður sem setur mann í stellingar, og illileg stúlka stimplar miðann. Síðan er fólki vísað upp stiga og upp í dularfullt op sem minnir á þotuhreyfil. Þar skríður maður í gegn, og tekur þá við rennibraut eins og á leik- völlum. Síðan fer maður í gegn um alls konar ranghala, og til hliðar og kring um mann eru alls konar ógnir. í stiga skömmu innan við rennibraut- ina er maður sem káfar á farþegum, að vísu ekki öllum. Þegar niður stigann er komið sér inn á klósett, og þar liggur manneskja, að því er virðist í dauðateygjunum. Blóð flýtur þar út um allt. Síðan er gengið áfram og sjást þá hendur koma út úr veggjum, en að lokum er gengið inn í salinn í gegn um tjald, og er maður þá staddur á sviðinu og sterku kastljósi beint að manni. Þarna taka við manni ógeðs- legar verur, klæddar í tötra, með alls kyns dularfullar grím- ur og tól, og grútskítugar. Þessar verur eru hreyfihamlað- ar og spastískar og virðast hafa orðið fyrir alvarlegri geislun einhverntíma á lífsleiðinni. Þessar verur beina manni til sætis. Við fengum sæti í „kúlu“ niðri í salnum. Fyrir framan okkur var alveg eins kúla, sem hafði sprungið, og lá þar sviðin og tætt mannvera. Allt í kring hljómuðu undarleg hljóð. Sviðið er líkt hefðbundnu sviði í næturklúbbum og salurinn er allur gjörbreyttur. Hefst nú sýningin. Fyrst kom ó'peru- söngvari og söng aríu. Þá kom feitlagin dægurlagasöngkona og söng eitt lag, og síðan önnur söngkona í fjólubláum kjól. Á milli þessara atriða kom kynnir í fínum jakkafötum og kynnti atriðin á óskiljanlegu hrogna- máli. Allan tímann voru geim- verurnar eða óhugnaðurinn sem minnst var á í upphafi niðri í sal með ýmis læti. Um miðja sýningu, sem fram að því hafði helst minnt á lélega kabarettsýningu á Hótel Sögu, komu fjórar manneskjur á svið, tvær stúlkur og tveir strákar , með ísskáp. Annar strákanna réðist á ísskápinn með exi, en tók síðan út úr honum brennivínsflöskur. Drukku þeir félagar úr flösk- unum, en réðust síðan hvor á annan með miklum öskrum. Þegar þeir lágu báðir meðvit- undarlausir á sviðinu, fóru stúlkurnar tvær að hugsa sér til hreyfings og réðust á þá og skáru þá á háls. Síðan réðust þær hvcr á aðra og upphófust mikil slagsmál og öskur. Á meðan þær slógust var farið að spila dynjandi dans- tónlist, og sex go-go girls í hippaklæðum, ótrúlega hall- ærislegum, komu upp á sviðið og dönsuðu lengi. Að lokum hrundu þær niður, og var þá komið að hijómsveitinni. Til þessa hafði hljómburður- inn verið sæmilegur, ekki meira, en nú versnaði hann úr öllu hófi. Tónlistin varð lítið annað en hávaðavegg- ur.Hljómsveitin var skipuð þeim Oxsmá-félögum, Hrafn- keli, Axeli og Óskari, og auk þeirra voru trommuleikari, bassaleikari, tveir blásturs- hljóðfæraleikarar og tveir fiðluleikarar. Þeirfélagar tóku ein 3-4 lög,öll í rokk og ról stil. Utlit hljómsveitarinnar minnti, eins og söngvararnir áður, á lélega kabaretthljóm- sveit. Þegar hljómsveitin hafði lokið leik sínum fór að rjúka úreinni kúlunni niðri í salnum. Skömmu síðar fóru sírenur í' gang með miklum hávaða, og bakgrunnstónlistin eða hávað- inn, sem hafði verið á allan tímann, magnaðist úröllu hófi. Tjald féll niður í miðjan salinn og huldi atburði á sviðinu. Áhorfendur þoldu brátt ekki við, héldu að máské væri kom- ið hlé, en síðan kom í Ijós að sýningin var búin. Menn fóru almennt út með hellu fyrir eyrum. Þetta var rcynsla scm ég hefði ekki viljað missa af. All- ur sviðsbúnaður og umgjörð var svo mikið fram úr liófi, að sjálf sýningin varð nánast aukaatriði, eða náði ekki að fylla nægilega vel út í umgjörð- ina. Ferðin í gegn um inngang- inn er mögnuð, og eins við- tökur í salnum. Ferðaskrifstofuatriðið er líka mjög vel gert. Það atriði er nýr þáttur í sköpun Oxmá fyrir- tækisins, en aðrir þættir í sýn- ingunni, geislamenguðu geirn- verunar og lélega kabarettsýn- ingin er vel þekkt úr öðrurn Oxmápælingum. Þetta eru alls ekki venjulegir hljómleikar, og ekki heldur Venjulegt leikhús. Þeim félögum hefur tekist að skapa sýningu, eða skemmtun, sem á ekki sinn líka. En, eins og áður segir, þá koðnar sýn- ingin örlítið niður um miðbik og í lok. Sérstaklega var það vegna lélegs hljómburðar, en einnig vegna þess, eins og áður segir, að kabarettatriðin voru einfaldlega ekki nógu út í hött og mögnuð til að fylla út í sýninguna. Tónlistin hefði þurft að vera miklu brjálaðri til þess. Spurningin er hvort þetta hafi ekki verið ætlunin, að búa til áhrifamiklar umbúðir utan um nánast ekki neitt. Að minnsta kosti má túlka sýning- una þannig, og þá er hún orðin eins konar öfgakennt og útúr- snúið, vanskapað Broadway. Manni fannst eins og það vant- aði bara fegurðarsamkeppni til að fullkomna úrkynjunina og brjálæðið. í heild var þetta áhrifámikið og vandað, en með nokkrum göllum. Búast má við miklu frá Oxsmá-fyrirtækinu á næstu árum.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.