NT - 23.05.1984, Blaðsíða 14

NT - 23.05.1984, Blaðsíða 14
Miðvikudagur 23. maí 1984 1 4 ■ Því hefur verið haldið fram, að syrt hafi í álinn í atvinnumálum ungs fólks að undanförnu, þá einkum skólafólks og séu horfur ekki bjartar fyrir það er leita sumarstarfa um þessar mundir. Samdráttur í opinberum rekstri, sparnaður fyrirtækja, og kvótakerfi, ásamt ýmsum öörum hömlum eru m.a. álitin þess valdandi að atvinn- utækifæri ungs fólks eru færri nú, en oft áður. Það er því úr vöndu að ráða, nú þegar í hönd fer sá tími ársins er allar gáttir skólanna opnast og námsmenn streyma út á sólbakaðar göturnar í atvinnuleit. Sjálfsagt situr margur mennta- maðurinn og flettir örvænt- ingarfullur í gegnum atvinnu- auglýsingar dagblaðanna. Sumir þekkja mann sem þekk- ir mann, aðrir fara að vinna hjá pabba - og nú eða mömmu sem sennilega er sjaldgæfara - en aðrir leita til atvinnumiðl- ana eða gera allt þetta í senn. Þeir forsjálu og/eða heppnu hafa þegar fengið vinnu. Aðrir hafa e.t.v. fengið vilyrði eða góðar undirtektir. Þó eru alltaf einhverjir sem verða að halda leitinni áfram, upp á von og óvon. mannavinnu og „óvinsælli“ störf“ eins og starfsstúlka at- vinnumiðlunarinnar orðaði það. Samdráttur veldur minna framboði á atvinnu Asta Bárðardóttir: „Ég hef látið skrá mig hjá atvinnumiðiuninni, og hef auk hefði gjarnan viljað komast út á land í einhverja uppgripa- vinnu, því mér veitir ekkert af peningum enda er allt útlit K'rir að námslánin verði skert. Ég held að það sé mun erfiðara fyrir fólk að fá vinnu í sumar en í fyrra. Þó er ég ekki alveg vonlaus um að fá vinnu núna.“ Loks rákumst við á nokkra hjúkrunarfræðinema sem stóðu og ræddu prófin. Var gott í þeim hljóðið enda sögð- ust þær allar hafa fengið sumarvinnu á spítölum. Skammt frá stóðu nokkrir viðskiptafræðinemar, sem sögðu hinsvegar að þeim hefði gengið svona upp og niður í atvinnuleit. Nokkrir höfðu fengið vinnu á skrifstofu, einn hafði fengið verkamannavinnu og annar hafði alls enga vinnu fengið. „Erfitt fyrir skóla- fólk að fá vinnu“ Hjá vinnumiðlun Reykja- víkurborgar var NT tjáð að ekki væri komin full mynd á atvinnuhorfur ennþá, því skólum er víða ekki lokið enn. Hjá Hagvangi fengust þær upplýsingar að horfur væru ekki góðar fyrir þá er þangað leituðu og ekki nema brot af því fólki sem fengi vinnu. Þórir Þorvarðarson, skrif- stofustjóri tjáði blm. að fólk leitaði reyndar víðar, samtímis því að leggja inn umsókn hjá Hagvangi, enda hvatt til þess að hafa öll spjót úti. Hinsvegar væri því ekki að neita, að nú virtist minna um sumarstörf en oft áður. Taldi Þórir þetta líklega stafa af þeim samdrætti sem orðið hefði hjá fyrirtækj- um. Samdrátturinn leiddi til ákveðinnar hagræðingar sem hefði orðið þess valdandi að framboð á vinnu er mina en áður. Þannig hafi fyrirtækin e.t.v. haft full margt starfsfólk og í stað þess að segja upp góðu fólki með langan starfs- aldur, hafi sumarafleysingar verið skornar við nögl. Þórir taldi jafnframt að þeir stæðu best að vígi sem hefðu Þetta unga fólk hefur gripið til sinní „Okkur er alveg sama hvernig vinnu við fáum“ Rætt við nokkra skólanemendur um atvinnuhorfurnar í sumar _ þess sótt um vinnu á nokkrum stöðum, án árangurs. Kannske fór ég of seint á stúfana, því ég byrjaði ekki að leita fyrr en í • mars. Fólk byrjar hinsvegar oft að leita jafnvel í desem- ber.“ Ásta sagöi jafnframt að undanfarin ár hefði hún unnið á sama stað og því ekki þurft að hafa áhyggjur af sumar- vinnu. Nú hefði hún hinsvegar ætlað að skipta um sumarstarf og það gengi svona. Sif Gylfadóttir og Unnur Reynisdóttir, framhaldsskólanemar: „Við höfum mikið reynt til að fá vinnu, m.a. í Bæjarút- gerðinni, Samvinnutrygging- um, Hagkaup og Miklagarði. Við höfum áður unnið hjá Sambandinu, en nú fáum við ekki vinnu þar. Okkur er alveg sama hvernig vinnu við fáum.“ Unnur bætti því við að hún væri alveg til í að fara út á land að vinna í fiski.eða einhverju tilfallandi. Sif og Unnur skrá sig hjá atvinnumiðlun stúdenta. NT-mynd Ámi Sæberg Ingvar Þórisson, sagnfræðinemi: „Ég hef sjálfur verið að reyna að koma mér á framfæri auk þess að skrá mig hjá atvinnumiðlun. f fyrra fékk ég starf hjá atvinnumiðluninni svo til strax, en það virðist ekki ganga alveg eins vel núna. Ég ............ ■ Hjúkrunarfræðinemar hafa ekki áhyggjur af framtíðinni enda allir búnir að fá vinnu. NT-mynd Ámi Sæberg HW „Hinsvegar er Ijóst að það er erfitt fyrir skólafólk að fá vinnu, því þetta er orðinn svo mikill fjöldi af námsfólki“ sagði einn starfsmanna vinnu- miðlunarinnar. Á þeim um- sóknum sem borist hafa mun ástandið svipað og undanfarin ár. Rúmlega tólfhundruð manns eru þegar komnir á skrá en í fyrra voru um fjórtán- hundruð skráðir í byrjun júní. Starfsmenn vinnumiðlunar- innar veittu jafnframt þær upp- lýsingar að fólki sé útvegað starf við allt mögulegt. En hjá borginni mun mest um ýmiss- konar útivinnu, gatnagerð og þessháttar, enda eru það þess- konar störf sem fólk sækist helst eftir. Eins og er munu úm þrjú- hundruð manns þegar tilbúnir til starfa, og eitthvað af því fólki hefur fengið vinnu. Það getur þó dregist fram eftir sumri að fólk fái vinnu að sögn starfsmanna vinnumiðlunar- Hjá atvinnumiðlun stúdenta fengust þær upplýsingar að strax fyrstu vikuna sem at- vinnumiðlunin starfaði, héfðu 230 manns komið til skráning- ar, en atvinnurekendur hefðu hinsvegar sýnt lítil viðbrögð til þessa. Þau atvinnutilboð sem bærust væru helst í verka- einhverja starfsreynslu. Sagði hann nokkuð um það að fólk hefði ekki reynslú, jafnvel þótt það væri menntað tií ákveð- inna starfa, því margir vinna við allt annarskonar störf yfir sumarið, launanna vegna „enda virðist fólk helst sækjast eftir uppgripavinnu á þessum árum“ sagði Þórir. Hann gat þess að lokum að það færðist talsvert í vöxt að fólk fari í framhaldsnám erlendis til að gerast gjaldgengara á vinnu- markaðnum „og segir það sína sögu.“ Oskar Hallgrímsson, deild- arstjóri vinnumáladeildar tók í sama streng. „Að vísu er erfítt að segja til um hváð verður, því fólk er rétt að byrja að stað- festa fyrri skráningu. Það fæst því engin heildarmynd af ástandinu fyrr en lengra er liðið á mánuðinn" sagði Oskar. Hann sagði jafnframt að menn hefðu orðið varir við það að fólk segðist hafa fengið afsvar í vor hjá fyrirtækjum sem í fyrra veittu jáyrði. Það er því mat manna að þyngra sé undir fæti nú en endranær að Óskars sögn. „Ein skýringin er sú, að meira aðhaldi er beitt í opin- berum rekstri en áður. Opin- berar stofnanir hafa fyrirmæli um að skera niður launakostn- að og það bitnar á afleysinga- fólki“ sagði Óskar að lokunv. Auglýst eftir fólki ífisk Fyrir nokkru auglýsti Bæjar- útgerð Reykjavíkur eftir starfsfólki í fískvinnslu. Hall- dór Pétursson, starfsmanna- stjóri tjáði blm. að u.þ.b. átta- tíu manns, á aldrinum 16-20 ára, hefði fengist til starfa með þessu móti. Sagði hann enn- fremur að fólk hefði leitað minna til Bæjarútgerðarinnar en áður um atvinnu og væri þetta í fyrsta skipti sem gripið hefði verið til þess ráðs að auglýsa eftir starfsfólki til sumarstarfa. í síldarvinnslunni í Nes- kaupstað er útlitið gott fyrir sumarið, að sögn starfsmanna, og allt útlit fyrir að þar verði nógur fiskur í sumar. Var þess jafnframt getið að sennilega yrði síldarvinnslan að fá að- komufólk til starfa. Sögðu starfsmenn Síldarvinnslunnar að skólafólk frá Akureyri kæmi gjarnan til sumarstarfa í Síldarvinnsluna og alltaf væri eitthvað um að fólk kæmi frá Reykjavík í sömu erindagjörð- um. Loks var haft samband við íshúsfélag ísfirðinga. Jón Kristmannsson, verkstjóri, tjáði NT að nóg vinna yrði þar í sumar. Kvað hann skólafólk ékki sækja eins stíft í frystihús- in og áður enda væru atvinnu-

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.