NT - 23.05.1984, Qupperneq 6
líl'
Landssamband hjálparsveita skáta heldur:
Fjallamaraþon-
keppni í sumar
Athugasemd
blaðamanns
vegna „tann-
gómsins“
■ Af gefnu tilefni verð
ég að lýsa því yfir að
fréttaflutningur af „góm-
málinu1' fræga í tann-
læknadeild og hugsan-
legum uppgreftri látins
sjúklings, er mér algjör-
lega óviðkomandi og átti
ég engan þátt í meðferð
þess máls í fjölmiðlum.
Vegna þess að ég er sem
fulltrúi stúdenta í há-
skólaráði, bundin trúnaði
við þá stúdenta sem sækja
mál sín á þeim vettvangi,
þá hélt ég þann trúnað,
enda var mér allsendis
ókunnugt um aðra þætti
málsins en þá er snertu
tannlæknadeild beint. Pað
var á þeirri forsendu sem
ég gat ekki fjallað um mál
þetta, hvorki eins og það
kom fyrir í NT né á
nokkurn annan hátt.
Þess má hinsvegar geta
að þær upplýsingar sem
komu fram í umræddri
frétt voru þær upplýsingar
er lögfræðingur umrædds
stúdents lét NT í té, er til
hans var leitað. Voru þær
því álitnar ábyggilegar
heimildir og meðhöndlað-
ar sem slíkar.
Málning
gefur út
grafík-
möppu
■ í tilefni af 30 ára starfsaf-
mæli sínu fékk , Málning h.f.
grafiklistamanninn Björgu Þor-
steinsdóttur til að gera myndir í
sérstaka möppu, sem fyrirtækið
sendir helstu viðskiptaaðilum
og vildarvinum sínum. Vonast
fyrirtækið til að þetta framtak
muni mælast vel fyrir
■ Landssamband hjálpar-
sveita skáta gengst fyrir svokall-
aðri „Fjallainaraþon" keppni
fyrir starfandi féiaga í björgun-
arsveitum landsins, nú í fjórða
sinni á jafnmörgum árum.,
Keppnin felst í höfuðatriðum í
því að komast milli tveggja
staða innan ákveðinna tíma-
marka, og leysa ýmis rötunar-
verkefni á leiðinni.
Keppnin verður haldin á SV
landi helgina 25.-26. ágúst í
sumar. Keppnin hefst að morgni
laugardags á stað sem verður
tilgreindur keppendum með
skömmum fyrirvara og mun
ljúka síðdegis á sunnudag á
Laugarvatni. Upplýsingamið-
stöð verður á Laugarvatni báða
keppnisdagna þar sem aðstand-
endur keppenda og annað
áhugafólk getur fylgst með
framvindu keppninnar innan-
dyra.
Það er trú aðstandenda keppn-
innar að hún sé jákvæð ný-
breytni í starfi sveitanna og gefi
mönnum tækifæri til að reyna
sig og útbúnað sinn við krefj-
andi aðstæður. Þeir telja því
sérstaka ástæðu til að hvetja
alla starfandi björgunarsveitar-
menn, svo og þá nýliða sem
lokið hafa eins árs þjálfun, til að
vera með í keppninni. Utfyllt-
um umsóknareyðublöðum ber
að skila á skrifstofu LHS eða í
Skátabúðina fyrir 15. júlí 1984,
en umsóknareyðublöðin Iiggja
frammi á þessum stöðum.
■ Keppendur í Fjallamara-
þonkeppni blása mæðinni eftir
að komið er í mark.
Trúnaðarbréf til forseta
■ Þrír nýskipaðir sendiherrar erlendra ríkja, Keisuk Ochi frá Japan, Gerhard Waschewski frá
þýska alþýðulýðveldinu og Mesud Besniku frá Júgóslavíu, afhentu forseta íslands trúnaðarbréf sín
í vikunni sem leið að viðstöddum Geir Hallgrímssyni utanríkisráðherra.
Enginn sendiherranna hefur aðsetur hér á landi: Sá japanski er í Stokkhólmi en hinir tveir í Oslo.
■ Björg Þorsteinsdóttir með grafíkmöppu sína.
Kristinn G.
Jóhannsson
sýnir í
Alþýðu-
bankanum á
Akureyri
■ Kynning á verkum Kristins
G. Jóhannssonar, listmálara
stendur nú yfir í Alþýðubankan-
um á Akureyri. Er hún haldin í
samráði við Menningarsamtök
Norðlendinga og á að standa í
tvo mánuði.
Kristinn stundaði fyrst list-
nám á Akureyri, síðan í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
og í Edinburg College of Art
1956-59 og aftur 1977-78.
Hann sýndi fyrst á Akureyri
átján ára gamall árið 1954 og
síðan oft þar og í Reykjavík til
ársins 1968. Þá varð 12 ára hlé
á sýningarhaldi, enda Kristinn
þá önnum kafinn við skóla-
stjórn, sveitarstjórnar- og
menningarmál ýmisskonar í
Ólafsfirði. Síðan hefur hann
tvisvar sýnt á Akureyri og tekið
þátt í samsýningum heima og
erlendis.
Leiðrétting:
Lifibrauð í
stað atvinnu
-og lOOístað 200
■ Þau leiðu mistök urðu í
úttekt NT á fimmtudag að
þar segir að 160Ö0 íslending-
ar hafi atvinnu af framleiðslu
mjólkur og sauðfjárafurða.
Þetta er alrangt. Standa átti
að 16000 íslendingar hafi lifi-
brauð af þessarri framleiðslu
en einhver hefur viljað
bæta málfar greinarinnar og
fella út orðið lifibrauð. Svo
klaufalega vildi þá til að
viðkomandi setti ,orðið at-
vinnu sem í þessu tilfelli
hefur allt aðra merkingu.
Börn og skyldulið þeirra sem
vinna að landbúnaðarfram-
leiðslu hafa yfirleitt lifibrauð
eða framfærslu af launum
bóndans.
Önnur villa slæddist inn og
skrifast á reikning blaða-
manns. 1 texta með töflu
segir að þegar kaupendur
kindakjöts hafi borgað sitt
verð vanti 200 krónur upp á
að fullt verð fáist. Hið rétta
er að um það bil 100 krónur
vantar upp á. Verð bóndans
fyrir hvert kíló af fyrsta
flokks kindakjöti er í kring-
um 100 krónur.
Kristinn G. Jóhannsson, listmálari