NT - 23.05.1984, Page 16
Miðvikudagur 23. maí 1984 1 6
■ Donna Mills segist vera ánægð með að búa ein, þá geti hún haft allt eftir sínu höfði og borðað það sem hún sjálf vill og þurfi ekki að
taka tillit til annarra.
■ Donna í hlutverkinu sem Abby í sjónvarpsþáttunum
Knotts Landing, en Abby er stundum kölluð „JR í
kvcnmannslíki!“ <
gerir það gott!
■ Donna Mills - „konan í
JR-hlutverki í Knotts Landing"
(bandarískum sjónvarpsþátt-
um) segist vcra „konan sem allir
elska að hata“. Donna hefur
alveg blómstrað í þessu hlut-
verki sinu, og er nú frægasta
„vonda konan" í kvikmynda-
heiminum. Hún slær meira að
segja út Joan Collins, „vondu
konuna í Dynasty", sem þykir
þó í sérflokki sem slík.
„Knotts Landing og hlutverk
mitt í þeim sjónvarpsþáttum
hefur gertmig ríka og sjálf-
stæða, og mér finnst égsjálf
verða betri persóna af því að
leika hina illgjörnu Abby.
Kannski fæ ég útrás fyrir það
illa í sjálfri mér sem Abby“.
Þau urðu mikil vonbrigði fyrir
Donnu Mills þegar hún fór að
leika Abby. Áður hafði hún
einkum verið til kölluð í hlut-
verk þar sem hún lék einhver
fórnarlömb. Sú gerð leik-
persóna byrjaði með myndinni
Misty (Play Misty For Me). Pá
var Donna tekin af mann-
ræningja (sem reyndar var
kona) og höfð í haldi og sætti
illri meðferð.
„Svo í hlutverk einhverrar
vesalings konu sem átti að verða
fyrir árás, nauðgað eða myrt,
þá var þetta talið hlutverk fyrir
mig“, sagði Donna nýlega í
viðtali við leikarablað vestra.
Donna er fædd í Chicago og
byrjaði í dansnámi sem ung-
lingur, og hugsaði ekki um ann-
að en dans, eftir því sem hún
segir. Þegar hún var 18 ára fór
hún til New York og fékk fljót-
lega hlutverk í dans- og söngleik
á Broadway sem gekk í 3 ár.
Síðan fékk hún smárullu í mynd
með Burt Reynolds og hún
leiddi til þess að Clint Eastwood
valdi Donnu til að leika kærust-
una sína í spennumyndinni
Misty.
Donna er glæsileg og það var
strax farið að orða hana við
meðleikara hennar, en hún
segir: „Burt var með annarri
þegar við lékum saman og upp-
tekinn af því ástarsambandi og
Clint var giftur þá, svo við
urðum aldrei annað en góðir
vinir og enn eru þeir báðir góðir
vinir mínir“.
Donna býr ein, en „fastur
vinur" hennar er Richard
Holland, sem er 33 ára (sjálf er
hún 37), Richard skrifar kvik-
myndahandrit. Þau hittust í
Mexíkó 1980 og hafa haldið
föstu sambandi síðan, en búa
þó ekki saman. „Okkur líkar
báðum vel að búa ein, svo þess
vegna höfum við ekki breytt
neinu, -enhverveit hvað verður
í framtíðinni.“
„Vonda konan"