NT


NT - 23.05.1984, Side 18

NT - 23.05.1984, Side 18
Útvarp kl. 11.15: Miðvikudagur 23. maí 1984 1 8 3 ungar telpur lesa eigin sögur ■ Á dagskrá útvarps í kvöld kl. 20.00 er þátturinn Ungir pennar. Stjórnandi er Hildur Hermóðsdóttir. Við spurðum Hildi, hvaða efni yrði í þætt- inum í kvöld. „Ég fæ 3 ungar telpur í heimsókn. Þær lesa sögur eftir sjálfar sig og síðan spjalla ég við þær," segir Hildur. Rithöfunaarnir ungu heita Aðalheiður Sigurðardóttir og Guðrún Laufey Guðmunds- dóttir, báðar 8 ára, og Ólöf Ósk Kjartansdóttir, 10 ára. Þær eru allar frá Reykjavík. Saga Aðalheiðar heitir Pési prakkari og stelpurnar snjöllu, og er prakkarasaga, eins og nafnið bendir til. Guðrún Laufey Guðmunds- dóttir les sögu sína Skrítna landið. Það er hálfgerð bullu- saga segir Hildur, og er þar sagt frá undarlegu landi, þar sem allt er á hvolfi, þar er allt mjög skrítið og öfugsnúið. Ólöf Ósk Kjartansdóttir á þarna tvær sögur. Önnur þeirra heitir Óli nær í pabba og er þar sagt frá strák, sem fer að sækja pabba sinn niður að sjó, en pabbi hans er sjómaður. Hin sagan fjallar um kött. Þátturinn Ungir pennar hef- ur verið á dagskrá útvarpsins vikulega síðan í fyrrasumar í umsjá Hildar Hermóðsdóttur. Síðasti þátturinn verður 6. júní og er það jafnframt 40. þátturinn, sem Hildur sér um. ■ Hildur Hermóðsdóttir stýrir 40. þætti sínum af Ung- um pennum 6. júní nk. Það verður jafnframt síöasti þáttur hennar. (NT-mynd Kóbcrt) Franz-Gúnther Lamprecht fer með aðalhlutverkið í þáttunum Berlin Alexanderplatz. Sjónvarp ki. 21.35: Ætli fari að vænkast hagur Franz Biberkopf? ■ Sl. miðvikudagskvöld hóf- ust í sjónvarpi sýningar á framhaldsþáttunum Berlin Al- exanderplatz. í kvöld kl. 21.35 hefst svo sýning á öðrum þætti og stendur hún yfir næstu 60 mínúturnar. Heldur voru dómar manna um þesa mynd misjafnir að lokinni sýningu 1. þáttar. Margir máttu vart vatni halda af hrifningu, enda væri hér sjálfur meistari Fassbinder að verki. En svo voru aðrir, sem létu sér fátt um finnast. Þótti þeim of mikil áhersla lögð á alls kyns ólifnað og sóðaskap og horfa þeir með lítilli Dægurtónlist liðinna áratuga í Krossgátunni ■ Á Rás 2 í dag kl. 15.00 hefst nýr þátur, Krossgátan, sem Jón Gröndal stýrir. 1 NT í gær var krossgátan birt og er fólki bent á að hafa hana við höndina, þegar það hlustar á þáttinn í dag. En hvers konar þáttur er Krossgátan? Við spyrjum Jón Gröndal, sem svarar okkur greiðiega. „Þessi tónlistarkrossgáta er nýjung, sem hefur aldrei verið reynd hér áður. Hún byggist á sænskri fyrirmynd, en í Sví- þjóð njóta slíkir þættir mikilla vinsælda. Þetta er í cðli sínu tónlistarþáttur, þannig að fólk getur hlustað á hann og haft gaman af án þess að taka þátt í krossgátunni. En í stað þess- ara venjulegu hefðbundnu laga- kynninga, verður gefin vís- bending um ákveðinn hlut, sem fólk á að leita eftir í laginu, sem er verið að spila og gefið upp hvar á að setja lausnina niður í krossgátunni. Þessi vísbending getur verið allt frá skírnar- eða eftirnafni söngvarans eða söngkonu, þjóðerni viðkomandi, það get- ur verið spurt um land, sem þetta lag minnir á, eða borg t.d. Það eru eiginlega afskap- lega lítil takmörk fyrir því, hvað hægt er að spyrja um, segir Jón. Fastir póstar verða í þáttun- um. T.d. segist Jón alltaf munu hafa 1-2 spurningar úr vinsæl- unt óperettum. Þar með sé lagt út á þó braut á Rás 2 að kynna léttklassikina. Annar póstur er sá, að alltaf verður spilað eitt lag, sem nrinnir á ísland, einhverja ákveðna sveit eða stað. Þá er þriðji fasti pósturinn, eitthvað, sem tengist kvikmynd, lag úr kvikmynd eða einhverjar efn- isspurningar, sem tengjast ákveðinni kvikmynd. Þá má Reykvískur verka maður leikur og syngur eigin lög - hefur líka gefið út Ijóðabók óþreyju til næstu 12-13 mið- vikudagskvölda. En auðvitað er það hlutverk sjónvarpsins að hafa eitthvað á boðstólum fyrir alla, og þeir, sem betur kunnu við Dallas en Berlin Alexanderplatz, verða bara að bíta á jaxlinn og bölva í hljóði um sinn. ■ í útvarpinu í dag kl. 11.15 hefst þáttur Guðrúnar Guð- laugsdóttur, Tónsmíðar í hjá- verkum. Að þessu sinni ræðir Guðrún við Jóhannes Benja- mínsson, sem leikur og syngur eigin lög. Guðrún segir okkur þau deili á Jóhannesi, að hann sé fæddur á Hallkelsstöðum á Hvítársíðu, en hafi búið í Reykjavík frá því um tvítugt. Hann hefur gefið út eina Ijóða- bók og fengist við að spila á harmóníku, m.a. fyrir gamla fólkið við Norðurbrún. „Hann er afar vel hagorður maður, sem sjá má af því að hann hefur gefið út ljóðabók, en það liggur líka mikið eftir hann af lausavísum," segir Guðrún. En Jóhannesi er fleira til lista lagt. Hann hefur t.d. leikið jólasvein í mörg ár! Jóhannes segir okkur ekki gleyma íslenskri tónlist og íslenskum listamönnum. Eins og áður er sagt ætlar Jón í þessum þáttum að hefja kynningu á léttklassikinni með óperettuverkum. En sú stefna ríkir einmitt í þessum þáttum, að tónlistin verður af eldra taginu, enda er tónlist fyrri áratuga sérgrein Jóns. Þetta verður sem sagt dægurtónlist sinna tíma, lög, sem allflestir þekkja, en þá tónlist segir Jón hafa mikið rutt sér til rúms í útvarpinu á síðustu árum. Spurningarnar sagði Jón verða léttar og alls ekki ætlaðar einhverjum sérvitringum, heldur eigi að vera við allra hæfi. Þeir, sem vilja og nenna, geta síðan sent lausnir sínar til Rásar 2 og þar dregur Jón úr réttum lausnum. Sá heppni fær síðan plötu að eigin vali í verðlaun. sjálfur, að hann hafi aldrei lært neitt til tónsmíða og aldrei hafi neitt komið út á prenti eftir hann á því sviði. Hins vegar hafi hann einu sinni, árið 1953, átt lag, sem komst til úrslita í danslagakeppni SKT. En Jó- hannes átti bara þetta eina eintak, sem hann sendi inn til keppninar, og hefur aldrei séð það síðan, það mun vera í vörslu SKT. Jóhannes segist helst leika gömlu dansana á harmónikuna sína, stundum einn en í önnur skipti með öðrum. T.d. spilar Gunnar Guðmundsson oft með honum, en hann var ein- mitt viðmælandi Guðrúnar í fyrsta þætti hennar um tón- smíðar í hjáverkum. Þessi þáttur er hins vegar sá 4. í röðinni. Jóhannes Benjamínsson er verkamaður í Reykjavík, vinn- ur á bensínstöð í Breiðholtinu. ■ Jóhannes Benjamínsson leggur gjörva hönd á margt. Hann semur lög og leikur þau sjálfur, hann yrkir Ijóð - og hann ieikur jólasvein! (NT-mynd Kóbertj Miðvikudagur 23. maí 7.00 Veöurlregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leiktimi. 8.00 Fréttir. 8.15 Veöurfregnir. Morgunorð - Anna Haröardóttir. 9.00 Frettir. 9.05 Morgunstund barnanna. „Af- astrákur" eftir Ármann Kr. Ein- arsson Höfundur les (3.). 9.20 leikfimi. 9.30 Tilkyningar. Tón- leikar. 9.45 Þingfreftir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. For- ustugr. dagbl. (útdr.) 10.45 fslenskir einsögnvarar og kórar syngja. 11.15Tónsmiðar í hjáverkum IV. þáttur Guröún Guðlaugsdóttir ræöir viö Jóhannes Benjamíns- son, sem leikur og syngur eigin lög. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn- ingar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.30 Vinsæl popplög frá árinu 1983. 14.00 Ferðaminningar Sveinbjarn- ar Egiissonar; seinni hluti Þor- steinn Hannesson les (30). 14.30 Miðdegistónleikar. Ilja Hurník og Pavel Stephan leika fjórhent á pínaó „Litla svítu" eftir Claude Debussy. 14.45 Popphólfið-JónGústafsson. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. 17.00'Fréttiráensku. 17.10 Síðdegisvakan. 18.00 Snerting. Þáttur Arnþórs og Gísla Helgasona. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Við stokkinn. Stjórnendur: Margrét Ólafsdóttir og Jórunn Sig- uröardóttir. 20.00 Ungir pennar Stjórnandi: Hild- ur Hermóðsdóttir. 20.10 Kvöldvaka a. Fjórir búanda- menn Baldur Pálmason les fjögur söguljóö eftir Guömund Frimann. b. Karlakórinn Vísir á Siglufirði syngur Stjórnandi: Geirharöur Valtýsson. c. „Drengur" Guöm- undur Þóröarson les brot úr óbirtri ævisögu. 21.10 Erna Sack syngur 21.40 Útvarpssagan: „Þúsund og ein nótt“ Steinunn Jóhannedóttir les valdar sógur úr safninu i þýöingu Steingríms Thorsteins- sonar (16). 2.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins Orð kvöldsins. 22.351 útlöndum Þáttur i umsjá Emils Bóassonar og Ragnars Baldurssonar. 23.15 íslensk tónlist Margrét Egg- ertsdótlir syngur við pianóleik Jón- ínu Gísladóttur, Þorsteinn Hann- esson syngur meö Sinfóníuhljóm- sveit islands, undir stjórn Páls P. Pálssonar og Jóhanns Konráös- son syngur viö pianóleik Guörúnar A. Kristinsdóttur. Miðvikudagur 23. maí 10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn- endur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir Tómasson og Jón Ólafsson. 14.00-15.00 Allrahanda Stjórnandi: Arnþrúður Karlsdóttir. 15.00-16.00 Krossgátan Stjórnandi: Jón Gröndal. (Hlustendum eígef- inn kostur á að svara einföldum spurningum um músík og ráöa korssgátu um leið). 16.00-17.00 Nálaraugað Stjórnandi: Jónatan Garöarsson. 17.00-18.00 Woodstock-hátíðin Stjórnandi: Sveinn E. Magnússon. (Fyrir um 15 árum síðan var haldin ein stærsta og mestumtalaða popphátíö fyVr og siðar - Wood- stock-hátíöin. sjonvarp Miðvikudagur 23. maí 19.05 Fólk á förnum vegi Endur- sýning - 25. og 26. þáttur. Loka- þættir enskunámskeiösins. 19.35 Söguhornið Sefsláin Sögu- maöurSigurður JónÓlafsson. Um- sjónarmaður Hrafnhildur Hreins- dóttir. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 í kjölfar Sindbaðs Þriðji hluti - Ferðalok Bresk kvikmynd i þremur hlutum um ævintýraferö til Austurlanda. Þýöandi Gylfi Pálsson. Þulur Friörik Páll Jónsson. 21.35 Berlin Alexanderplatz Annar þáttur. Þýskur framhaldsmynda- flokkur í fjórtán þáttum, geröur eftir samnefndri skáldsögu eftir Alfred Döblin. Leikstjóri Rainer Werner Fassbinder. Efni fyrsta þáttar. Berl- in 1928 - Franz Biberkopf er leystur úr fangelsi. Hann er staö- ráöinn i aö lifa heiöarlegu lífi en gengur illa aö koma undir sig fótunum. Hann vonar samt að úr rætist meö hjálp nýrrar vinkonu, Línu aö nafni. Þýöandi Veturliði Guönason. 22.35 Úr safni Sjónvarpsins Við Djúp - Selir, salt og saga Sjón- varpsmenn feröast um Vatnsfjörö og Reykjafjörð sumariö 1971 og staldra viö á Reykjanesi. Umsjón- armaður Ólafur Ragnarsson. 23.05 Fréttir í dagskrárlok

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.