NT - 09.06.1984, Side 1
Verða sex
þúsund ref*
ir skornir?
- stöðvist flotinn Austan-
lands er ekkert fóður til
■ Geri útgerðarmenn á Aust-
urlandi alvöru úr þeirri fyrirætl-
an sinni að hætta veiðum í
sumar verður lítið æti að fá fyrir
þá 6000 refi sem eru í 12 búum
á Fljótsdalshéraði en fæðuþörf
refanna er í hámarki um sumar-
tímann. Að sögn Guðna Þórar-
inssonar formanns loðdýra-
bænda á Austurlandi er alls
óvíst að búin stæðu undir flutn-
ingi fóðurs frá öðrum lands-
hlutum, en þar kemur Eyja-
fjörður helst til greina.
Meginuppistaða refafóðurs er
fiskúrgangur og er ekki talið
fært að fóðra þá að megni til á
neinu öðru. Fóðurþörf þeirra
12 búa sem hér um ræðir á
tímabilinu frá júlí til nóvember
er um 430 tonn en það er
tæplega 80% af ársþörf búanna.
Af þessum 430 tonnum eru um
300 tonn í formi fiskúrgangs.
Albert Guðmundsson, fljótur til:
Réð í stöðuna
áður en um-
sóknir bárust
■ Albert Guð-
mundsson fjármála-
ráðherra hafði ákveðið
að Sveinn R. Eiðsson
hreppti stöðu um-
dæmisfulltrúa Fast-
eignamats ríkisins á
Austurlandi, áður en
umsóknir um hana
bárust fjármálaráðu-
neytinu frá Fasteigna-
mati ríkisins.
Gunnlaugur Claessen ríkis-
lögmaður og tengiliður fjármála-
ráðuneytisins við Fasteignamat
ríkisins staðfesti það í samtali
við NT í gær.
Gunnlaugur sagði, að hann
hefði fyrir hádegi föstudaginn
1. júní tjáð starfsmanni Fast-
eignamatsins, að ráðherra hefði
ákveðið að ráða Svein R. Eiðs-
ton í starfið.
í auglýsingu um starfið, sem
birtist á Lögbirtingablaðinu
þann 16. maí sl. segir, að um-
sóknum skuli skila til Fasteigna-
matsins fyrir 1. júní. Umsókn-
irnar fóru hins vegar ekki í
fjármálaráðuneytið fyrr en und-
ir hádegi mánudaginn 4. júní.
Og heimildir NT herma, að
búið hafi verið að ganga frá
ráðningarsamningi við Svein,
áður en umsóknirnar lögðu af
stað niður í ráðuneyti Alberts.
Albert Guðmundsson hefur
því ekki aðeins horft framhjá
meðmælabréfi frá forstjóra
Fasteignamatsins um innan-
hússmann sem var meðal um-
sækjenda, heldur hefur hann
algjörlega hundsað aðrar um-
sóknir en Sveins um stöðuna.
Sjá nánar bls. 3
inni í gærkveldi á vit náttúr-
unnar um hvítasunnuh
frá Rifreiðastöð
Flestir stefndu á Lai
og Þjórsárdal, en
rgmennið mi
á sama tíma í fyrra.
Sjá nánar baksíðu.
Nl-mjndir Ámi Ujarn.
ASI fundar:
Griðrof á vinnumark-
aðinum 1. september
- ef ríkisstjórnin hverfur ekki af braut sinni.
■ „Snúi ríkisstjórnin ekki af þeirri braut sem
hún er á, er augljóst að forsendur samninganna
eru brostnar og þau griðrof á ábyrgð stjórn-
valda.“ Þannig hljóðar niðurlag ályktunar sem
samþykkt var á fundi samráðsnefndar ASÍ um
kjaramál í gær. Af þeirri ályktun má lesa að geri
ríkisstjórnin ekki sérstakar ráðstafanir til kjara-
bóta fyrir launafólk hljóti að koma til verkfalla
þegar samningar eru lausir með haustinu.
Aðspurður sagði Björn Þór-
hallsson varaforseti ASÍ að þessi
ályktun fæli aðeins í sér kurteis-
lega ábendingu til stjórnvalda
um að þau sjálf geti, hafi þau vit
til þess, komið í veg fyrir að
vandræði verði með haustinu.
„Annar hefur svart og hinn
hefur hvítt í þessu eins og allri
skák“, sagði Björn en hann
stýrði fundinum í gær í afleys-
ingu fyrir Ásmund Stefánsson
sem er í sumarleyfi.
Athygli vakti á fundinum að
Guðmundur J. Guðmundsson
mætti en það er í fyrsta sinn sem
hann kemur á fund hjá Alþýðu-
sambandinu síðan snemma á
þessu ári.
Skipulögð vændisstarfsemi starfrækt í Reykjavík:
Lögreglan með fjölmargar
játningar undir nöndum!
talið að miðstöð blíðusólunnar sé á Hlemmi
■ Samkvæmt heimildum NT er starfrækt
skipulögö vændisstarfssemi í Reykjavík. Eru
þaö aðallega ungar stúlkur sem lent hafa í klóm
manna sem hafa fíkniefni undir höndum sem
selja sig mönnum og ijármagna þannig áfengis-
eða fíkniefnaneyslu sína.
Upphæð sú er stúlkurnar
taka fyrir blíðu sína er, sam-
kvæmt heimildum blaðsins,
mjög misjöfn. Er til í dæminu
að greitt sé með áfengi eða
fíkniefnum en einnig með pen-
ingum. Flafa heyrst mjög mis-
jafnar tölur í því sambandi,
upp í yfir 2000 krónur.
Jóhannes Viggósson, lög-
reglumaður, sagði í viðtali við
NT að lögreglan teldi sig hafa
nokkrar sannanir í höndum
vegna máls þessa og að tugir
einstaklinga hefðu verið yfir-
heyrðir í vetur. Sagði Jóhannes
að fjölmargir, bæði stúlkurnar
sjálfar, melludólgar og við-
skiptavinir hefðu játað ásökun-
um.
Þess má geta að vændi er
ekki bannað samkvæmt íslensk
um lögum. Hins vegar er bann-
að að þriðji aðili hafi tekjur af
vændi. í tólfta kafla almennra
hegningalaga sem fjallar um
skírlífisbrot er hvergi sagt að
konu sé óheimilt að þiggja
gjald fyrir samræði.
Samkvæmt heimildum
blaðsins er miðstöð blíðusöl-
unnar á Fllemmi. Að sögn eins
viðmælanda okkar, sneri sér
ung stúlka þar að honum og
bauð samfarir fyrir 100 krónur.
Sagði hann stúlkuna vart
fimmtán ára gamla.
Samkvæmt heimildum
blaðsins er aðallega nefndir
tveir menn sem dólgar, en
aðrir segja þá mun fleiri. Einn-
ig segja heimildir að oft sé
málinu þannig varið, að ekki
sé um skipulagða starfsemi að
ræða heldur bjóði menn blíðu
vinstúlkna sinna fyrir fé þegar
þá vanti peninga fyrir fíkniefn-
um. Séu þá stúlkurnar oft mót-
fallnar en láti undan - kannski
af hræðslu við „vini“ sína eða
vegna löngunar í fíkniefnin.
■ Miðstöð blíðusölunnar er
sögð vera á Hlemmi, en þar
hafa menn komist upp með
neyslu áfengis og annarra
sterkra vímuefna, eins og þessi
mynd af ungmennum frá því í
ga i ber með sér.
NT-inynd: Árni Bjama
- -
Laugardagur 9. júní 1984-139. tbl. 68. árg.
Ashkenazy
feðgarnir
koma í dag
á Lista-
hátíðina
■ í dag kemur leigu-
flugvél Flugleiða til
Keflavíkur með Fílharm-
óníuhljómsveit Lund-
úna, rúmlega 100 manns
innanborðs, og í farar-
broddi verða feðgarnir
og píanósnillingarnir,
Vladimir og Stefán Ash-
kenazy, en þeir leika
báðir einleik á tón-
leikum, sem Listahátíð
gengst fyrir í Laugardals-
höll í kvöld og annað
kvöld. Sjá um dagskrá
Listahátíðar um helgina
bls. 2.