NT - 09.06.1984, Blaðsíða 6
Hans Georg Gundlach þjálfar kunnáttumenn í reiðmennsku:
AD FLÝTA SÉR HÆGT
Litið inn á námskeið tamningamanna í Dal
■ Hans Georg Gundlach reiðkennari: „Ef áhuginn er fyrir hendi
verð ég hreinlega að koma aftur.“
ópusambandsins í
framkvæmd.
- Gætir þú hugsað þér að
kenna víðar á landinu? Hyggst
þú koma aftur?
Fyrstu dagana var ég ekki
alveg viss, en samvinnan varð
betri með hverjum degi sem
leið. Ég gat skipulagt kennslu-
stundirnar mjög svipað og ég
geri erlendis og treyst því að
koma hlutunum til skila. Sam-
skiptin urðu náin ogmeð aukn-
um gagnkvæmum skilningi
jókst árangurinn. Ef áhuginn
er fyrir hendi þá verð ég hrein-
lega að koma aftur. Ekkert er
því til fyrirstöðu að ég kenni
annars staðar en í Dal svo
framarlega sem góð kennslu-
aðstaða er fyrir hendi.
Sala íslenska
hesta erlendis
- Hvað segir þú um hrossasölu
erlendis?
Áhuginn á íslenska hestin-
um fer enn vaxandi þótt salan
sé nokkru minni en á bestu
árunum. Hestaeign eykst enn
og þannig getur allt haldið
áfram í framtíðinni svo framar-
lega sem eigendur íslenskra
hesta, sem eru eins og ein
fjölskylda, halda áfram að aug-
lýsa hestinn eins og hingað til.
Það hefur verið einstakt og
mjög áhrifaríkt að allir sem
eiga íslenska hesta reyna að
sannfæra nágranna sína um
ágæti þeirra. Þess vegna er
íslenski hesturinn enn á upp-
leið.
- Hvað um gæði söluhrossa
erlendis?
Þau eru betur tamin en áður.
Léleg eða illa tamin hross eru
nánast óseljanleg. Auðveldast
er að selja hesta sem eru
aðeins betri en það sem við
getum kallað meðalhest, hest-
ar sem eru þægilegir og
skemmtilegir til útreiða og
henta einnig til þátttöku í
Iitlum mótum. Gæðingar eru
mjög hátt metnir ef þeir eru
vel tamdir og þjálfaðir, einnig
gæðingsefni. Það eru þó aðeins
fáir sem hafa ráð á að kaupa
slíka hesta. í viðtölum hér
finnst mér menn miða of mikið
við þennan kaupendahóp og
gera jafnvel ráð fyrir að geta
fengið hátt verð fyrir meðal-
hesta. Ég hef bent á að það er
misskilningur að í Þýskalandi
búi bara milljónamæringar.
Aðalsalan er í meðalhestum,
en þeir kosta á þessu ári frá
5.500 - 7.500 DM (55.000 -
75.000 kr.j.
- Er enn um innflutning að
ræða sem einhverju nemur?
Flestir eru hættir að kaupa
hesta hér eða innflutta hesta.
Aðalástæðan er sumarexemið.
Enn bíða allir eftir að loksins
takist að vinna bug á sjúk-
dómnurn. Kláðinn hefuraukist
á undanförnum árum og núna
veikjast 8 af 10 hestum sem
koma héðan. Fólk vill ekki
lengur þessa hesta þótt góðir
séu eða það fer fram á að fá þá
fyrir hálfvirði. Exemsjúkir
meðalhestar eru seldir á slátur-
húsaverði, hæst hef ég heyrt
nefnt 2.000 DM. Meðalhesta
er hægt að fá í Þýskalandi á
lægra verði en sams konar
hesta sem fluttir eru inn og
þýskfædd hross fá mjög sjaldan
sumarexem. Hestar héðan fá
að auki allflestir smithósta og
þurfa þá eins til tveggja mán-
aða algjöra hvíld. Það eykur
svo aftur kostnað innflytjand-
ans. Sumir hestar ná sér ekki
að fullu fyrr en eftir langan
tíma.
- Þá eru söluhorfur ekki
glæsilegar?
Svo virðist sem eini mögu-
leikinn fyrir íslendinga sé að
koma innanlandsverðinu niður
til að geta keppt við erlenda
framleiðendur og á ég þá við
meðalhesta - annað mál er um
■ Auðvitað eru til meistarar í reiðmennsku eins og
öðrum íþróttagreinum. Keppt er í ýmsum greinum
hestaíþrótta og gerðar mismunandi kröfur um kunnáttu
og leikni miðað við stund.og stað. Það er eftirsótt og
mikill heiður að því að ná meistaratitli á Evrópumótum
eigenda íslenskra hesta sem haldin eru annað hvert ár.
- Til hvers er þessi
kennsla? Fólk kemur langt aö
og eyðir tíma og fé. Er þetta
aöeins gert til aö skemmta sér?
Tilgangurinn er að læra að
fara vel með hestinn sinn í
víðtækustu merkingu. Óska-
draumurinn er að góður reið-
hestur líkist glæsihesti sem
hreyfir sig frjálst í náttúrunni.
Óþjálfaðan hest skortir jafn-
vægi, sama gildir um óþjálfað-
an reiðmann. Jafnvægi næst
ekki með því að setjast bara á
bak og láta hestinn bera sig
einhvern veginn. Til að ná
jafnvægi og hreyfinga-
sambandi við hestinn þurfa
maður og hestur að ná sam-
eiginlegu jafnvægi. Fyrst þegar
það hefur tekist getur fram-
haldsþjálfun hafist sem býr
hestinn undir að þola aukið
álag og gerir hann hæfan til
afkasta, án þess að bíða tjón
af. Við vitum að taumtog,
skak og framsperrtir fætur,
sem sagt rangar ábendingar,
gera hestinn stífan, öll þyngdin
er á framfótunumog hesturinn
lærir ekki að nota lend og
afturfætur. Slíkur reiðmóti
þreytir og ofreynir framfætur
■ Einar Örn Grant
Á Evrópumótinu í Þýska-
landi sl. sumar vann Hans-Ge-
org Gundlach í fjórgangs-
keppni og tölti á tólf vetra
þýskfæddum hesti. Gundlach
er alþekktur sem snjall reið-
maður og ágætur reiðkennari,
hann hefur tamið og kennt við
reiðskóla í Þýskalandi.
Nú hefur þessi faglærði hesta-
maður verið gestkomandi hér
á snærum FT, Félags tamninga-
manna. Félagið fékk hann
hingað til að kenna reið-
mennsku og kennsluaðferðir í
þeirri íþrótt. Kenndi hann
þessi fræði á tveim vikunám-
skeiðum þar sem verið var að
langan vinnudag. Námskeiðin
voru haldin í hestamiðstöðinni
Dal í Mosfellssveit við ágætar
aðstæður innan húss og utan.
Námskeiðin voru fullskipuð
þrautþjálfuðum hestamönnum
sem vanir éru keppni og sýn-
ingum á stórmótum og margir
þeirra hafa fengist við reið-
kennslu. Má nærri geta að
góður árangur varð af fræðslu
Þjóðverjans með svo rækilega
undirbúna nemendur.
Forvitnilegt þótti að grennsl-
ast nokkru nánar eftir hvað
hefði helst verið þarna á ferð-
inni. Var farið á stúfana og
leitað fregna hjá kennaranum
og þrem nemenda hans.
Hans-Georg
Gundlach reið-
kennari
Kennaraskipti
auka kynn-
ingu og sam-
starf
hestsins. Þetta þurfa nernend-
ur reiðskóla að skilja.
Byrjað er með nokkurs kon-
ar grunnskóla. Síðan ræðst af
hæfni manns og hests hve langt
þeir ná. Óskin er ávallt ánægj-
an á hestbaki, lipur, taumléttur
liestur og að knapinn hafi gott
jafnvægi, sé liðugur og mjúk-
hentur, rn.ö.o. innra og ytra
samræmi, mynd sem ánægju-
legt er að horfa á.
- Nú ertu beðinn um opinskátt
svar. Hvernig fellur þér við
Islendinga?
íslendingum kynntist ég
fyrst í hestakaupaferðum hér
áður fyrr og seinna sem vinum
á mótum erlendis. St'ðar kom
stundum í Ijós að einstaka
maður átti það til að breytast
úr kunningja í harðan, óvægan
viðskiptaaðila sem var ekki
ætíð eins orðheldinn og
vænst hafði verið. Þá féll dá-
lítill skuggi á kunningsskapinn
og það var í og með ein
ástæðan fyrir því að ég dró mig
smám saman úr versluninni.
Nokkur ár liðu án þess að ég
kæmist til íslands, en þá var
mér skyndilega boðið að halda
hér námskeið og nú kynntist
ég þriðja hópnum, íslenskum
nemendum. Þeir hafa vérið
einstaklega námfúsir, mjög
hestelskir og þeir þreyttust
aldrei á að spyrja. Ég þykist vita
að ég hafi eignast nýja vini
einmitt í þessum hóp og held
jafnframt að það sé upphaf að
góðu samstarfi. Kennaraskipti
eins og þessi og starf íslenskra
tamningamanna erlendis eru í
raun hugsjón og markmið Evr-
gæðingana. Nefnt hefur verið
að bjóða fram unga, efnilega,
ótamda hesta, mannvana og
þæga, sem teymast vel. Slíkum
hestum væri safnað saman á
fáa staði svo að kaupandinn
þyrfti ekki að fara á ótal bæi til
að velja hrossin. Þannig gæti
e.t.v. verið hægt að vekja
áhuga að nýju.
Ingimar Ingimars-
son kennari á Hól-
um
- Þú kemur frá kennslunni
á Hólum í nemendahópinn í
Dal. Hvað veldur?
Alltaf er hægt að bæta við
sig þekkingu í hvaða starfs-
grein sem er. Endurhæfing er
öllum nauðsynleg og þá ekki
hvað síst þeim er tekið hafa að
sér að miðla öðrum einhverju
af þeim fróðleik sem þeir hafa
aflað sér. Við lifum á hröðum
breytingatímum og þörf er á
að komast í snertingu við það
besta sem völ er á hverju sinni
og þarna gafst óvænt, gullið
tækifæri.
- Hafa þessi námskeið skil-
að árangri sem þú ert ánægður
með?
Alveg tvímælalaust. Ég tók
þátt í báðum námskeiðunum.
Síðari vikan nýttist mér jafnvel
enn betur en sú fyrri eins og oft
þegar gott og margþætt efni er
endurtekið. Fræðsla Gundlach
og kennsluaðferðir hafa hvort
tveggja í senn aukið á þekk-
ingu mína og bent á nýjar
leiðir í vissum atriðum um leið
og staðfesting fékkst á því að
ég hef þó verið á réttri leið í
meginatriðum. Það gefur vissa
öryggiskennd sem öllum kenn-
urum er nauðsynleg.
Hér voru höfuðatriðin dreg-
in fram með skipulegri ná-
kvæmni. Röðun atriða við
þjálfun hestsins virðist mjög
heppileg og auðsjáanlega þaul-
hugsuð. Framsetningin var
hnitmiðuð og námsefnið komst
því vel til skila. Öll vinnubrögð
voru markviss og ákveðin.
Kemur slík fyrirmynd kennur-
um og kennaraefnum í hesta-
mennsku mjög að notum.
- Þú kennir reiðmennsku,
tamningar og sýnir gæðinga á
mótum. Hefur þetta allt notið
góðs af þátttöku þinni í nám-
skeiðunum?
Það er alveg augljóst að
þetta fléttast allt saman og
byggist á sama grunni. Við-
fangsefnið á námskeiðunum
hjá Gundlach kom öllum þess-
um þáttum jafnt til góða. Ég
sem reiðmaður og kennari í
tamningum geri mér grein fyrir
hversu mikils virði er að fram-
kalla árangur á réttum tíma
með skipulegum vinnu-
brögðum. Þennan skilning og
starfshætti verð ég að ieitast
við að færa yfir til nemenda
minna á þann veg að þeim
nýtist sem best í sjálfstæðu
starfi og ég tel að ég hafi
tileinkað mér eitt og annað til
þess hjá þessum ágæta þýska
reiðkennara.
- Hverjir eru veikustu
hlekkirnir í hcstamennsku ís-
lendinga?
Þeir eru að við styttum skref-
in um of að lokamarki, byggj-
um ekki nógu traustan