NT - 09.06.1984, Qupperneq 27
- áttu stórleik gegnKR
■ Frá Gylfa Kristjánssyni á Akureyri.
„Við spiluðum til sigurs, þetta var
stórskemmtilegur leikur fyrir áhorfendur
og við vorum góðir“ sagði Gústaf Bald-
vinsson þjálfari KA og var að vonum
ángæður með sína menn því þeir sigruðu
KR í leik liðanna í 1. deild í gærkvöld á
Akureyri með tveimur mörkum gegn
engu.
Pað voru þó KR-ingar sem byrjuðu
betur og eins og Hólmbert þjálfari KR
komst að orði „við gátum komist í tvö
núll í upphafi leiksins en fengum í staðinn
á okkur mark og urðum að endurskipu-
leggja okkur og það dæmi gekk ekki
upp“. KR-ingar fengu tvö mjöggóðfæri í
upphafi leiksins. Fyrst komst Óskar Ingi-
mundarson upp vinstri kantinn og kom
Þorvaldur markvörður á móti en Óskar
renndi knettinum undir hann og þurfti
Friðfinnur Hermannsson að bjarga á
línu. Síðan átt Willum Þórsson þrumu-
skot en Þorvaldur varði með tánum.
Eftir þetta komast KA menn meira inn
í leikinn og skora á 35. mín þegar Njáll
Eiðsson besti maður KA þrumaði í slána
og inn alveg út við stöng. Fallegt mark.
Eftir þetta mark var aðeins eitt lið á
vellinum, KA, og tóku þeir öll völd í
sínar hendur. Á 41. mín. gefur Hafþór
fyrir mark KR-inga og Steingrímur Birg-
isson kastar sér fram og skallar fallega að
marki en framhjá. Stuttu seinna skora
KA-menn sitt annað mark og var þjálfar-
inn, Gústaf Baldvinsson, þar að verki.
Aukaspyrna var tekin af hægri kanti og
boltinn gefinn yfir á fjær stöngi þar
skallaði Mark Duffield á markið og
Stefán ætlaði að slá knöttinn yfir en sló í
þverslána og þaðan datt boltinn niður til
Gústafs sem nikkaði honum inn.
í síðari hálfleik héldu KA menn áfram
að sækja og hefðu hæglega geta bætt við
mörkum en það tókst þó ekki. Þeir
yfirspiluðu KR-inga langtímum saman
og áttu þarna einn sinn besta leik í langan
tíma. Svo virðist sem KA-liðið sé að ná
saman en talsverðar mannabreytingar
urðu á liðinu í vor.
Hjá KA var Njáll mjöggóður og var í
sérflokki. Aðrir góðir hjá KA voru
Steingrímur, Mark og Ormarr. I KR-lið-
inu voru allir svipaðir en þá vantaði
bæði Ottó og Sæbjörn. Helst bar á
Gunnari Gísla og Stefáni Péturssyni.
Leikurinn var hin besta skemmtun
fyrir þá fjölmörgu áhorfendur er lögðu
leið sína á völlinn á Akureyri og voru
KA-menn svo sannarlega í essinu sínu.
Fyrir leikinn voru Steingrími Birgissyni
afhent verðlaun fyrir fallegasta mark 4.
umferðar íslandsmótsins og ef að líkum
lætur þá mun Njáll Eiðsson, félagi hans
hjá KA, hrifsa til sín verðlaunin fyrir
mark 5. umferðar en mark hans í
gærkvöldi var sérlega glæsilegt. Njáll átti
einnig stórleik og dreif sína menn áfram
með krafti sínum.
KA er nú meðal efstu liða í deildinni
en KR-ingar rétt fyrir neðan miðja deild.
■ Stórskemmtilegur ieikur
að minnsta kosti tyrir um 600
áhangendur KA. Besti leikur
KA á keppnistímabilinu.
Mörk KA skoruðu Njáll Eiðs-
son á 35.min.og Gústaf Bald-
vinsson á 48.mín.
Einkunna*
gjöf NT:
KA
Þorvaldur Jónsson......3
Ormarr Örlygsson .......2
Friðfinnur Hermannsson . 3
Ásbjörn Björnsson......4
Erlingur Kristjánsson .... 3
Njáll Eiðsson...........1
Steingrímur Birgisson ... 2
Gústaf Baldvinsson.....3
Hinrik Þórhallsson .....4
Mark Duffield...........2
Hafþór Kolbeinsson.....3
KR
Stefán Jóhannsson ......3
Stefán Pétursson .......3
Willum Þórsson .........4
Haraldur Haraldsson .... 4
Jakob Pétursson ........3
Gunnar Gíslason ........3
Ágúst Már Jónsson ......4
Óskar Ingimundarson ... 3
Jón Bjarnason ..........4
Elías Guðmundsson .... 4
Jónsteinn Einarsson .... 4
VERKTAKAR
VÖRUBIFREIÐAEIGENDUR
BIFREIÐAEIGENDUR
Hjólbarðatilboð okkar í júní er:
6 stk. 1000x20 - 14 pl. í pakka á kr. 52.000,-
4 stk. 1100x20 - 14 pl. í pakka á kr. 41.000,-
4 stk. 520x12 - í pakka á kr. 4.500,-
4 stk. 560x13 - í pakka á kr. 6.500,-
4 stk. 600x13 - í pakka á kr. 7.700,-
4 stk. 650x13 - í pakka á kr. 8.200,-
Öll veröin miöast við staðgreiðslu.
BEIN LÍNA HJÓLBARÐAR ER SÍMI 83490
BÍLVANGUR st=
HÖFÐABAKKA 9 IB4 RGYKJAVÍK • SÍMI 687300
Laugardagur 9. júni 1984 ‘ 27
Ert bú að leita að hillum í stofuna,
barnaherbergið, geymsluna, laqerinn
eða verslunina? Þetta er lausnin.
FURUHILLUR
' *
■ 4*
Hilli iQtaarðir- 3HYftn nn RflYftn r '
>1, Stofuhillur á geymsluhilluverði.
Útsölustaðir: REYKJAVÍK: Liturinn, KÓPAVOGUR: BYKO. Nýbýla-
vegi 15, HAFNARFJÖRÐUR: Málmur, Reykjavíkurvegi, AKRANES: Verslunin
Bjarg, BORGARNES: Kaupfélag Borgfirðinga, STYKKISHÓLMUR: Húsið,
PATREKSFJÖRÐUR: Rafbúð Jónasar, BOLUNGARVÍK: Jón Fr. Einarsson, ISA-
FJÖRÐUR: Húsgagnaverslun Isafjarðar, BLÖNDUÓS: Kaupfélag Húnvetninga,
EGILSSTAÐIR: Verslunartélag Austurlands, SEYÐISFJÖRÐUR: Verslunin
Dröfn, REYÐARFJÖRÐUR: Verslunin Lykill, FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: Verslunin
Þór, VlK I MÝRDAL: Kaupfélag Skaftfellinga, VESTMANNAEYJAR: Þorvaldurog
Einar, SELFOSS: Vöruhús K.Á.
sRmpifitm
^Oluboð
...vöruverð
í lágmarki