NT - 04.07.1984, Page 5

NT - 04.07.1984, Page 5
Miðvikudagur 4. júlí 1984 Stigahlíðarlóðir: ■ Salóme Þorkelsdóttir: Það verður að beita öllum ráðum til að stöðva innflutning fíkniefna. að það hreki ekki fólk til óhæfu verka gegn sjálfu sér og öðrum. Hinsvegar tel ég að fræðsla sé eitt af því sterkasta baráttutæki sem við höfum yfir að ráða. Það er mjög erfitt að koma við öflugum lögregluaðgerðum þegar fólk hefur ánetjast þessu á annað borð, þannig að fyrirbyggjandi aðgerðir á borð við fræðslu, eru þær aðgerðir sem við til langs tíma hljót- um að stefna að. Hvað varðar um- mæli yfirvalda, þá er það vansalegt í meira lagi ef framkvæmdavaldið verð- ur uppvíst að þvi að fara ekki eftir því sem löggjafinn hefur lýst sem vilja sínum. Maður spyr sig að því hvort það eigi að verða örlög þessarar þingsályktunartillögu eins og svo margra annarra, að þegar til kastanna kemur, þá virðast þeir sem eiga að framkvæma vilja Alþingis, stinga mál- um undir stól og fara eftir eigin geðþótta um framkvæmd. Salóme Þorkelsdóttir, fors. efri deildar Alþingis: Óafsakanlegt að láta tímann líða með hendur í skauti Það sem mér kom fyrst í hug við lestur þessara greina og úttektarinn- ar, það varðar innflutning og sölu þessara eiturlyfja. Það verður með öllum hugsanlegum ráðum að stöðva innflutninginn, og í þeim efnum ætt- um við að vera betur sett en margar aðrar þjóðir, vegna legu landsins og fámennis. Það er óafsakanlegt að láta tímann líða án þess að grípa til róttækra og samræmdra aðgerða. Menn sem gera sig seka um sölu og innflutning fíkniefna, þeir eiga ekki 'V-------- I Guðrún Agnarsdóttir: Andvara- leysið er alvarlegast. að ganga lausir, t.d. á meðan þeir bíða dóms og halda uppteknum hætti. Auk þess tel ég að ekki veitti af nánara samstarfi á milli heimila og skóla. Þeir sem þekkja þessi mál hvað best, eins og t.d. læknar, gætu bundist samtökum um að taka á þessu vanda- máli; leiðbeina foreldrum og skóla- mönnum. Það er ljóst að það nægir ekki að samþykkja þingsályktunartil- lögur eða setja lög, það þarf að framkvæma þau. Guðrún Agnarsdóttir, alþingismaður: Aðgerða er þörf- umræðan ein ekki nóg Ég tel mjög mikilvægt að athygli manna sé haldið vakandi fyrir þeim vágesti sem vaxandi neysla vímuefna er. Þó að umræða sé af hinu góða, þá er hún ekki næg ein saman, því aðgerða er þörf. Við stöndum á því stigi nú hér á landi, að við getum lært af reynslu annarra þjóða og getum e.t.v. komið í veg fyrir að fjöldi barna og unglinga bíði tjón á heilsu sinni eða týni lífi. Því er brýnt að grípa til samræmdra aðgerða þar sem þeir eiga hlut að máli sem best til þekkja og mesta reynslu hafa. Við getum aldrei bannfært vímugjafa endanlega því þeir koma úr ríki náttúrunnar. Það sem við getum gert er að beita fræðslu og félagslegum aðgerðum til að styrkja börn okkar og unglinga þannig að þekking þeirra og sjálfs- traust ráði því hvort þau neyta vímuefna eða ekki. Það er ekki síður brýnt að sinna þeim sem þegar hafa orðið þessum efnum að bráð og það mál þolir enga bið. Texti: Ólína Þorvarðardóttir Miroslav kom- inn í steininn stal erni í fyrra og tengist fleiri málum ■ Þýski fálkaeggjaþjófurinn Mir- oslav sem slapp úr greipum íslend- inga fyrir skemmstu var um helgina handtekinn í Köln. Ástæðan er grunur um að hann hafi stolið fullorðnum erni úr villidýragarði skammt frá Köln fyrir ári síðan. Þá er Miroslav grunaður um að tengj- ast fleiri hliðstæðum málum en arnarstuldurinn einn er þó til- greindur sem ástæða handtökunn- ar. Samkvæmt heimildum NT á lögreglan að hafa látið þau orð falla við blaðamann Kölnarblaðsins sem birti frétt um málið að engar líkur væru á að honum yrði sleppt í bráð, en gæsluvarðhaldsúr- skurður hefur enn ekki verið staðfestur. Ástæða þessaá lögreglan að hafa tilgreint að of mikil hætta væri á að hann reyndi að fela sig eða spilla rannsókn málsins á annan hátt. Lítið hefur verið fjallað um handtök- una í þýskum fjölmiðlum, flestir þeirra ekki minnst á hana einu orði. Aftur á móti vakti flótti hans frá íslandi gífurlega athygli þar ytra og var fjallað um hann í öllum helstu stórblöðum Þýskalands. ■ „Ég lít ekki svo á að við séum bundnir trúnaði með það hvert hið endanlega kaupverð lóðanna við Stigahlíð hafi verið", sagði Kristján Benediktsson borgarráðsmaður í samtali við NT. „Það var aðeins kveðið á um það að kaupverðið væri trúnaðarmál meðan á samningum stæði, en ekki lengur. Ég mun að minnsta kosti ekki kynna mér þessar tölur með þeim skilyrðum að þarna sé um trúnðarmál að ræða.“ Á borgarráðsfundi í gær lét borgar- stjóri bóka: „Borgarráðsmenn geta hver um sig kynnt sér samninga við einstaka lóðarhafa við Stigahlíð. Gert er ráð fyrir að virtir verði þeir skilmál- ar sem lýst var að giltu í samskiptum borgarinnar og bjóðendum við sölu lóðanna". „Ég lít svo á“ sagði Gunnar Eydal skrifstofustjóri borgarinnar aðspurð- ur um hvort þetta þýddi að söluverð lóða og heimilisföng lóðarhafa yrðu ekki gefin upp. NT hefur áður skýrt frá því að söluverð lóðanna hafi verið á bilinu 16-19 hundruð þúsund. Nú er óvíst hvort þær tölur fáist'nokkurn tíma staðfestar. Ekki náðist í borgarstjóra í gær, þar sem hann þeysti burt úr bænum strax eftir borgarráðsfund. snmyiHHM SOLUBOÐ • • MILDA ÞVOTTADUFT 5Kg \W> ÞAÐ HRESSIR! '''í'iíli lRg ..vöruverð í lágmarki

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.