NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 04.07.1984, Qupperneq 24

NT - 04.07.1984, Qupperneq 24
Miðvikudagur 4. júlí 1984 24 Bretland: Viðræður við kola- námumenn að nýju London-Reuter. ■ Kolanámumenn í Bretlandi féllust í gær á að hefja samn- ingaviðræður við Kolaráðið til að leita leiða til að binda enda á 17 vikna verkfall sem einkennst hefur af harðýðgi og valdið sundrungu meðal verkalýðs- hreyfingarinnar. En leiðtogi kolanámumanna, Arthur Scargill kvaðst ekki fall- ast á samningaviðræður ef Kola- ráðið heldur til streitu þeirri stefnu að loka 20 námum. En deilurnar hófust er ákveðið var að loka námum sem ekki skila arði. Verkfallið hefur valdið því að 70% minnkun hefur orðið á kolaframleiðslunni og valdið erfiðleikum í stjórn efna- hagsmálanna og má rekja sífall- andi gengi pundsins til verkfalls- ins að einhverju leyti. Viðræðurnar munu hefjast síðar í þessari viku og er það þriðja tilraunin til að ná sáttum. Síðast fóru viðræður út um þúfur 13. júní s.l. Formaður Kolaráðsins sagði að námamenn yrðu að sætta sig við að námunum, sem ekki borgar sig að starfrækja, verði lokað því ríkisstjórnin geti ekki greitt uppbætur á kolaverðið. Um 4000 kolanámumenn hafa verið handteknir vegna óeirða sem brotist hafa út aftur og aftur í verkfallinu og verka- lýðssamböndin eru komin í hár saman vegna vinnustöðvunar- innar, en stáliðnaðarmenn hafa neitað að fara í samúðarverkfall og átök hafa orðið milli námu- manna og annarra starfstétta þegar hinir fyrrgreindu hafa ver- ið að framfylgja verkfallsvörslu. ■ Walter Mondale, sem að öllum líkindum verður tilnefnd- ur forsetaefni demókrata hef- ur rætt við nokkra aðila sem til greina koma sem vara- forsetaefni. A mánudag átti Mondale fund með Geraldine Ferraro sem á sæti í fulltrúa- deild þingsins fyrir New York. Hún hefur þótt koma mjög til greina sem varaforsetaefni og á fylgi meðal áhrifamanna í Demókrataflokknum til þess embættis. POLFOTO-Símamynd Lögreglu- stjóri í búð- arhnupli London-Reuter ■ Saudi-arabiskur lög- regluforingi, sem ekið var um verslunargötuna Ox- ford Street í Mercedes Benz, er stjórnað var af einkabílstjóra, varstaðinn að búðarhnupli í stórversl- uninni Marks og Spencer í gær. Hann var sektaður um 1.500 sterlingspund, sem greidd voru í bein- hörðum peningum á stundinni. Lögreglustjórinn, Far- ed Hadrawy,sem er 43 ára gamall, viðurkenndi að hafa stolið þrennum nátt- fötum i versluninni og sex vestum, að verðmæti 53 sterlingspund. Þegar mað- urinn framdi þjófnaðinn var hann með 1.400 ster- lingspund í vasanum. ■ UM síðustu helgi hófust orðsendingar milli stjórnanna í Moskvu og Washington, sem á þessu stigi gefa vísbendingu um að lítill áhugi sé hjá báðum á alvarlegum viðræðum um afvopnunarmál. Það var stjórnin í Moskvu, sem reið á vaðið. Hún sendi Bandaríkjastjórn orðsendingu síðastliðinn föstudag, þar sem lagt var til, að viðræður hæfust milli Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna um bann á geimvopn- um. Viðræður þessar skyldu fara fram í Vínarborg og hefj- ast ekki s_íðar en í september á þessu ári. Margt þykir benda til, að stjórn Sovétríkjanna hafi ekki búizt við jákvæðu svari af hálfu Bandaríkjanna, því að Reagan hafði látið á sér skilja hvað eftir annað að undanförnu, að hann hefði ekki áhuga á sér- i stökum viðræðum um geim- vopnin fyrr en Bandaríkin væru búin að ná meiri árangri á því sviði og stæðu a.nt.k. jafnfætis Rússum. Síðastliðinn sunnudag hélt Reagan garðveizlu fyrir ýmsa tigna gesti. Hann og Dobrynin sendiherra Rússa ræddust þá lengi við og er myndin frá þessum viðræðum þcirra. Skilyrt svar Reagans getur orðið deilumál í kosningunum Mondale vill taka tilboði Rússa án skilyrða Þetta var í samræmi við hina svonefndu Stjörnustríðsræðu, sem Reagan flutti fyrir rúrnu ári. Efni hennar var á þá leið, að Bandaríkin yrðu að koma sér upp vopnabúnaði í himin- geimnum, sem gæti grandað öllum geimvopnum, sem beint væri gegn Bandaríkjunum, áður en þau næðu í mark. Síðan hefur Reagan farið fram á, að þingið veitti miklar fjárveitingar í þessu skyni. Rússar brugðust hart við Stjörnustríðsræðunni og hertu áróður fyrir því, að samið yrði um bann á geimvopnum. Til að árétta þennan ásetning sinn, lýsti Andropov yfir því í ágúst- mánuði síðastliðnum, að Rúss- ar hefðu stöðvað allar tilraunir varðandi vopn, sem yrðu not- uð til að granda geimhnöttum eða eldflaugum. A því stigi var talið, að Rússar væru öllu lengra komnir á þessu sviði, en Bandaríkjamenn væru á góð- um vegi að fara fram úr þeim. SAMKVÆMT því, sem hér hefur verið rakið, telja margir fréttaskýrendur, að stjórnin í Kreml hafi reiknað með því, að Bandaríkjastjórn myndi svara með öllu neikvætt tilíögu hennarum áðurnefndar Vínar- viðræður. Hún gæti síðan not- að það til áróðurs. Sé þetta rétt, hefur stjórnin í Moskvu ekki gætt þess nægi- lega, að Reagan er kominn í kosningabuxurnar, en aðal- einkenni þeirra eru þau, að hann telur sig nú hafa hinn mesta áhuga á viðræðum við Rússa og þó alveg sérstaklega á fundi þeirra Chernenkos. Bandaríska stjórnin taldi því sjálfsagt að svara þessu tilboði Sovétstjórnarinnar jákvætt, en þó ekki nema að hálfu leyti. Hún kvaðst fús til umræddra viðræðna í Vín, en lagði jafnframt til, að dagskrá þeirra yrði þannig, að rætt yrði í fyrsta lagi um takmörkun langdrægra og meðaldrægra Mondale kjarnavopna og í öðru lagi um takmörkun vopna, sem væru notuð til eyðingar á geim- hnöttum og eldflaugum. Bandaríkjastjórn gerði það þannig að skilyrði fyrir við- ræðum um geimvopnin, að hafnar yrðu að nýju viðræður um takmörkum eldflauganna, en Rússar hafa sett það að skilyrði fyrir því, að þær verði teknar upp að nýju, að hætt verði við staðsetningu banda- rískra meðaldrægra eldflauga í Evrópu. Það var því auðvelt fyrir Sovétstjórnina að telja svar hennar neikvætt. Bandaríkja- stjórn, sem af pólitískum ástæð- um vill nú hefja einhverjar viðræður við Rússa, reyndist of klók í gagnsvari sínu, ef hún hefur þá í raun viljað einhverj- ar viðræður. Eftir að stjórnin í Moskvu hefur hafnað svari Bandaríkja- stjórnar, hefur Bandaríkja- stjórn lýst yfir því, að hún geri Þcrarinn Þórarinsson, ritstjóri, skrifar ekki viðræður um takmörkun eldflauganna að skilyrði, en hins vegar vilji hún að hægt væri að ræða um, hvernig þeim verði komið á að nýju. Þessu munu Rússar vafa- laust einnig hafna og ekki vilja viðræður nema um geimvopn- in ein. Þeir sætta sig ekki heldur við það svar Banda- ríkjastjórnar, að aðeins skuli rætt um takmörkun geimvopna í stað þess að ræða um bann á þeim, eins og lagt er til í upphaflegri tillögu Rússa. VAFALAUST mun þessu þófi halda eitthvað áfram og æskilegt væri, að því gæti lokið þannig, að viðræður um bann á geimvopnum gæti hafizt. Náist ekki samkomulag um slíkt bann, ersennilega í vænd- um mesta vígbúnaðarkapp- hlaup sögunnar. Þótt umrædd- ar viðræður í Vín yrðu vart meira en málamyndaviðræður fram að þingkosningunum í Bandaríkjunum, gætu þær samt orðið upphaf að öðru meira. Líklegt er, að þetta mál eigi eftir að verða mikið á dagskrá í Bandaríkjunum. Mondale, sem bersýnilega verður fram- bjóðandi demókrata í forseta- kosningunum, hefur lýst þeirri skoðun sinni, að Reagan hefði átt að taka tilboði Rússa skil- yrðalaust. Jafnframt hefði hann átt að lýsa yfir því, að Bandaríkin hættu tilraunum með geimvopn meðan á við- ræðum stæði, en það hafa Rússar gert. Hugmyndir Reagans um hugsanlega geimstyrjöld eða stjörnustríð hafa sætt mikilli gagnrýni í Bandaríkjunum. Sennilega hafa Rússar orðið þess valdandi með áðurnefndu tilboði, að þær verða enn meira á dagskrá en ella.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.