NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 04.07.1984, Qupperneq 25

NT - 04.07.1984, Qupperneq 25
Ll Midvikudagur 4. júlí 1984 Sjálfsmark í áróðursstríðinu: Sovétmenn fara und an í flæmingi Moskva, Washington-Reuter ■ Sovétmenn fara undan í flæmingi eftir að Reagan Bandaríkjaforseti féllst á að ræða um friðun geimsins og bann við vopnabúnaði þar. Sov- éska stjórnin bauð að hefja samninga um friðun geimsins og skyldu þeir hefjast í sept- ember n.k. í Vínarborg. Svar kom um hæl að Bandaríkja- stjórn féllist á viðræðurnar en taldi réttast að hefja samtímis viðræður um takmörkun kjarn- orkuvopna á jörðu niðri. Síðan hefur hún fallið frá því og setur engar hömlur á viðræðurnar í Vín. Mál þessi voru mikið rædd í gær. Howe utanríkisráðherra Bretlands var í Moskvu og ræddi við Tsjernenkó forseta og Gromyko utanríkisráðherra. Hann lagði mikla áherslu á að Bandaríkjastjórn væri einlæg í viðbrögðum sínum og reyndi að koma þeim í skilning um að engin skilyrði væru sett til að þiggja boð Sovétríkjanna um Vínarviðræðurnar. Hann segist hafa haft sam- band við Hvíta húsið í Washing- Bakari hengdur fyrir smið ■ Bflaiðnaðurinn í Bandaríkjunum hefur hlotið þungar skráveifur vegna innflutnings á bflum, aðallega frá Japan. I háborg bflaiðnaðarins Detroit varð mikið at- vinnuleysi þegar japanskir bflar fóru að streyma á bandaríska markaðinn. Þeim í Detroit er því heldur illa við Japani. Fyrir skemmstu kom Asíumaður inn á bar í Detroit og ætlaði að fá sér einn lítinn. Tveir heima- menn viku sér að honum og húðskömmuðu fyrir að eiga sök á atvinnuleysinu í borginni. Svo hófust slagsmál og mönnunum þremur var hent út. Þar lömdu heimamenn As- íumanninn með kylfu og lést hann nokkrum dögum síðar á sjúkrahúsi. í Ijós kom að maðurinn sem þeir myrtu var Kín- verji og hafi engra hags- muna að gæta varðandi japanska bílaframleiðslu. Morðingjarnir voru dæmdir í tveggja ára fang- elsi, skilorðsbundið, og rúmlega 100 þús. kr. sekt. Dómnum hefur verið áfrýjað og þá geta morð- ingjarnir reiknað með að hann verði þyngdur til muna. Gromyko og Howe heilsast með bros á vör, en viðræður þeirra urðu árangurslitlar. POLFOTO-Símamynd. ton og fengið staðfestingu á að engin skilyrði væru sett fyrir viðræðum. Eftir fund með Gromyko sagði Howe að sov- éski utanríkisráðherrann hefði notað tímann til að úthúða Bandaríkjamönnum og sagði að þeir stefndu Vínarviðræðunum í voða með því að setja óað- gengileg skilyrði. Hann sagðist hafa sagt bæði Tsjernenkó og Gromykó að með þessari afstsöðu sinni væru þeir að skora sjálfsmark. Erlendir stjórnarerindrekar í Moskvu telja að svar Reagans við boði Sovétmanna um við- ræðurnar hafi komið þeim í opna skjöldu og að nú halli mjög á þá í áróðursstríðinu. En sovéska stjórnin mun ekki sjálf- viljug aðhafast neitt sem komið geti Reagan forseta til góða í kosningabaráttunni heima fyrir. En nú hafa vopnin snúist í höndum þeirra. Howe sagði við bróttförina frá Moskvu að sér virtist ráða- menn austur þar hafa meiri áhuga á að úthúða vissum ríkis- stjórnum á Vesturlöndum en að koma á raunhæfum samninga- Meðferð ísraels- manna var ekki góð Beirut-Reuter ■ Fimm líbanskir borgarar, sem voru handteknir af ísraels- mönnum þegar farþegaferja á leið til Beirút var neydd til að halda til hafnar í Haifa komu til Líbanon í gær og sögðu frá þriggja daga löngum yfirheyrsl- um Israelsmanna. „Þeir yfirheyrðu mig nokkr- um sinnum og spurðu í sífellu hvort ég væri palestínskur skæruliði“ sagði Mohammed Jubbi, 33 ára heildsali í Beir- út. Jubbi sagði að meðferð Isra- elsmanna á föngunum hefði ekki verið góð en neitaði að ræða það nánar. Hann hafði áður sagt fréttamönnum, í ná- vist ísraelsks liðsforingja, að hann hefði fengið kurteislega meðferð. Annar farþegi, Ismael Ahmed Haidar, 31 árs gamall flugþjónn, sagði að eitt sinn hefði verið bundið fyrir augu farþeganna níu meðan þeir voru fluttir til yfirheyrslu. Hann sagði að ísraelsmenn hefðu ekki sak- að þá fimm farþega sem ; ppt var(um neitt, og bætti því . að ísraelsmenn hefðu ekki ; ans mati haft nægar ástæðui ui að handtaka farþegana. ísraels- menn hafa sagt að taka ferjunn- ar væri hluti af skipulagðri bar- áttu tsraelsríkis gegn hryðju- verkastarfsemi. Farþegarnir fimm töluðu aðeins stuttlega við fréttamenn ‘ við komuna til Beirút og sögðust vera þreyttir eftir ferðina frá ísrael. Þeim var ekið til Beirút af starfsmönnum Alþjóða Rauða krossins. Fjórum farþegum ferjunnar er enn haldið föngnum af ísra- elsmönnum. Menntramálaráð- herra Líbanon, Selin Al-Hoss, sem tók á móti fimmmenning- unum í gær, sagði að ríkisstjórn sín væri að reyna að fá þá látna lausa. Hann bað bandaríska sendiherrann um aóstoð í síð- ustu viku og sagði frétta- mönnum að hann hefði fengið jákvætt svar en talsmaður sendi- ráðsins sagði fréttamanni Reut- ers að taka ferjunnar kæmi Bandaríkjunum ekki við. Hann neitaði að svara því hvort bandarískir embættismenn hefðu gert ráðstafanir til að fá fangana látna lausa. Breskir læknar vilja banna hnefaleika London-Reuter ■ Leiðtogar breskra lækna kröfðust þess í gær að hnefaleikar yrðu bann- aðir þar sem þeir yllu heilaskemmdum. Sam- þykkt var á aðalfundi breska læknafélagsins að hefja baráttu fyrir stuðn- ingi almennings við bannið. Ritari læknafélagsins, John Harvard, sagði fréttamönnum að félagið stefndi að því að íþróttin yrði bönnuð innan fimm til tíu ára. Um 350 hnefaleikarar hafa látist vegna heila- blæðinga á síðustu 40 árum, þar af 11 Bretar. Hnefaleikar hafa þegar verið bannaðir í Noregi og Svíþjóð. til að koma íveg fyrir viðræður um friðun geimsins viðræðum um afvopnun og bætt samskipti. I Washington ræddu þeir Shultz utanríkisráðherra og Do- brynin ambassador Sovétríkj- anna saman í hálfa aðra klukku- stund, en hinn síðarnefndi er farinn til Moskvu til skrafs og ráðagerða. Þeir ræddu um af- vopnunarsamninga og sérstak- lega um viðræðurnar í Vín sem Sovétmenn buðu upp á. Amb- assadorinn fór með skilaboð frá bandarísku ríkisstjórninni til æðstu manna í Kreml, að því er upplýst var. I dag er þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna. Af því tilefni fór Hartman ambassador fram á að fá að flytja ávarp í Moskvu- sjónvarpið. Því var hafnað án þess að ástæða væri tilgreind. Howe utanríkisráðherra kvartaði einnig yfir því að fjöl- miðlar í Sovétríkjunum hafi sleppt úr ræðu hans köflum um bætt samskipti og mannréttindi. Svíþjóð: Launþegasjóð- irnir kaupa hlutabréf Stokkhólmur-Reuter ■ Launþegasjóðirnir umdeildu í Svíþjóð eru þegar farnir að hafa áhrif á verðbréfamarkaði. Sjóð- irnir eru fjármagnaðir með 20% skatti af hagnaði fyrirtækja. Verðbréfasalar segja að verkalýðsfélögin hafi þegar hafið kaup á hlutabrefum í Volvo bíla- verksmiðjunum, Electrol- ux heimilisvélafyrirtækinu og rafeindafirmanu Er- icsson. Lög um launþegasjóð- ina voru samþykkt s.l. vetur, þrátt fyrir áköf mót- mæli atvinnurekenda og, stjórnarandstöðunnar. Kunnugir menn telja að verkalýðsfélögin hafi þeg- ar keypt hlutabréf fyrir um 20 millj. ísl. kr. Verðbréfasalar segja að þessi auknu kaup á hluta- bréfum hafi aukið eftir- spurnina og hleypt lífi í viðskiptin og verðið hækkar. Ekki er við því að búast að launþegasjóðirn- ir hafi annars mikil áhrif á verðbréfamarkaðinn á þessu ári eða eignarhlut- föll í fyrirtækjum yfirleitt. Funduferða- tösku fulla af kókaíni Göttingen-Reuter ■ Vestur-þýska lögreglan fann í gær ferðatösku fulla af kókaíni við stúdentagarð há- skólans í Göttingen. Kókaínið sem fannst er verðlagt á rúmlega 30 milljónir íslenskra króna. Talsmaður lögreglunnar sagði að taskan hefði fundist í húsagarði við heimavistina. Enginn hefur verið handtekinn en lögreglan rannsakar nú málið. Þetta er eitt mesta magn af kókaíni sem þýska lögreglan hefur fundið í einu. AIR FLORIDA GJALDÞROTA Miami-Reuter ■ Flugfélagið Air Flor- ida tilkynnti í gær að það hefði höfðað mál sam- kvæmt bandarísku gjald- þrotalögunum til að leita réttarverndar gegn skuldunautum, en sagði að vonir stæðu til að flugfélagið gæti starfað áfram. Samkvæmt gjald- þrotalögunum er hægt að fara fram á réttarvernd gegn skuldunautum og halda samt áfram starf- semi. Flugfélagið tilkynnti að það hefði aflýst öllum ferðum frá kl. 16.00 í gær en byggist við að taka upp áætlun að nýju á flugleið milli Miami í Florida og London og einnig á nokkr- um innanlandsleiðum. Það sagðist bráðlega myndu kynna nýju áætlan- irnar. Á fyrstu þrem mánuð- um ársins nam tap Air Bahama 8.4 milljónum dala, miðað við 11 milljón- ir á sama tímabili í fyrra. Veltan jókst á sania tíma úr 53,7 milljónum í 56,8 milljónir að sögn flugfé- lagsins. Þá tilkynnti það einnig um þriggja milljón dala hagnað í apríl, þar með talinn hagnað af sölu tveggja flugvéla. Flugfélagið fékk fimm milljón dala neyðarlán í síðasta mánuði til að bjarga við lausafjárskorti. Þrumulostinn bóndi: Alheill en berrassaður ■ Bóndi í Alberta í Kanada slapp með skrekkinn þegar eld- ingu laust niður í hann í óveðri. Harold Blankert var úti á akri þegar þrumuveðrið skall á. Hann hélt þegar heimleiðis á traktor sínum, en stöðvaði hann til að hughreysta hund sinn sem varð ofsahræddur. Þá sló eld- ingu niður í bónda og hann missti meðvitund. Þegar hann rankaði við sér lá hundurinn dauður við hlið hans. Hattur bónda, sem var úr plasti hafði bráðnað og hann var buxnalaus. Gallabuxur hans fóru í tætlur og nærbuxurnar voru kolbrunnar, en engin sár voru á húðinni. Annar fatnaður var óhreyfður á sínum stað.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.