NT


NT - 04.07.1984, Side 27

NT - 04.07.1984, Side 27
■ Þrjú efstu liðin í A-liðunum. Efstir eru Þór Ve. síðan FH og loks KA. NT-mynd Guðm. Sigfússon. Miðvikudagur 4. júlí 1984 Tommaborgaramót Týs: Hressilegt peyjamót Minolta Million ■ Fyrir stuttu fór fram í Grafarholti Minolta Million mótið, sem Júlíus P. Guðjóns- son, umboðsmaður Minolta- myndavéla á íslandi stóð að. Mótið var fjölmennasta golf- mót sumarsins til þessa eða 147 þátttakendur. Verðlaun voru hin veglegustu eða vand- aðar myndavélar af Minolta- gerð. úrslit urðu sem hér segir: 1. Hafþór Ólafsson GR 84-24=60 netto 2. JónÖ. Sigurðss. GR 76-11=65 netto 3. Björn Karlsson GK 83-17=66 netto 4. Árni Óskarss. GOS 89-23=66 netto Besta skor: Magnús Jónsson GS 72 högg. Veður var hið besta og fór mótið vel fram í alla staði. ■ „Bíddu nú við, átti ég að sparka í þennan knött eða er ég í vit- lausum leik. Nei, þjálf- arinn sagði við mig að hlaupa á eftir þessum bolta og reyna að koma honum í markið.“ Ekki vitum við hvað litli pilt- urinn á þessari mynd er að hugsa en eitt er víst að hann lagði sig allan fram um að gera eins og þjálfarinn sagði. Þau voru mörg skemmtileg tilþrifin sem sáust í Vestmannaeyjum þegar ó.flokks mótið stóð þar yfir og allir vildu vera bestir. NT-mynd: Guðm. Sigfússon Frá Sigfúsi G. Guðmundssyni fréttamanni NT í Vestmannaeyjum: ■ Um 300 peyjar á aldrinum 6-10 ára mættu til leiks á Tommahamborgaramót Týs í knattspyrnu 1984. Mótið var haldið í Vestmannaeyjum um síðustu helgi, dagana 27. júní- 1. júlí. Peyjarnir 300 voru frá 17 félögum, og sendu 12 félag- anna bæði A og B lið. Var þeim skipt niður í riðla, a,b og c hjá A-liðum, og a og b hjá B-liðum. Efsta lið í hverjum riðli komst svo í úrslit. í úrslit komust í flokki A- liða KA, FH og Þór Vest- mannaeyjum. Urslit urðu: Þór-FH 4-3, Þór-KA 1-1, og KA-FH 1-2. Þór vann því, og var vel að sigrinum kominn, liðið vann 5 leiki og gerði tvö jafntefli alls á mótinu. f B- flokki komust Akranes og Þór V i úrslit, og sigraði Akranes í úrslitaleik, 4-3 eftir víta- spyrnukeppni. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 0-0. Einnig var haldið innanhúss- mót, og sigraði FH í A-flokki, KR varð í öðru sæti og Breiða- blik í þriðja. í B-flokki sigraði ÍA, FH varð í öðru sæti, og Breiðablik í þriðja. í miklu lokahófi eftir mótið á sunnudag voru mörg verð- laun afhent. Markakóngur mótsins varð Þorvaldur As- geirsson (Elíassonar) Þrótti með 12 mörk, besti markvörð- ur mótsins var valinn Jón Ind- riðason KR og besti leikmaður úrslitakeppninnar var valinn ívar Bjarklind KA. Hlutu þeir verðlaunapening og innramm- aða mynd af Ásgeiri Sigurvins- syni sem verslunin Foto gaf. Prúðustu lið mótsins voru valin Víðir Garði og Reynir Sand- gerði, og Víðir Garði var einnig kjörið prúðasta liðið á matmálstímum á Bjössabar, þar sem Tommahamborgarar voru framreiddir á lipurlegan hátt handa keppendum mótsins. Fararstjórar utan af lands- byggðinni annars vegar og af Reykjavíkursvæðinu hins veg- ar léku síðan stuttan leik, svo hægt væri að sjá hvað þeir kynnu fyrir sér í íþróttinni. Þeim leik lauk með jafntefli. Fararstjórar og þjálfarar fengu allir bjórkönnu að gjöf frá Tý að loknu mótinu, og forstjórar Tommahamborgara gáfu Tý ap- ann víðkunna sem a meðan á mótinu stóð var kallaður Tommi Týrari. Skyldi Tommi verða framtíðarluickutröll fé- lagsins. í lokahófinu var einnig keppt í reiptogi, og voru Vals- arar þar sterkastir. Allir fararstjórar voru yfir sig ánægðir með stjórn mótsins, en hún var að mestu í höndum Lárusar Jakobssonar (Lalla). Týrarar báðu NT fyrir sérstakar þakkir til þeirra sem studdu mótið, sérstaklega til Tommahamborgara, sem studdu mótið dyggilega. ■ „Verður mark eða ekki?“ Úr leik Þórs Ve. og Víkings. NT-mynd Guðm. Sigfússon. „Draumurinn" ■ Nú er lokið í Bandaríkjunum svokölluðu „draft-pick“, en þá er körfuknattleiksliðunum í NB A-deild- inni gefið færi á að velja sér leikmenn úr háskólaliðunum sem síðan er boð- inn samningur hjá viðkomandi liði. Þegar valið byrjar þá velur það lið fyrst er hafði versta útkomu í NBA- deildinni á síðasta keppnistímabili og síðan koll af kolli; þannig á Boston Celtics síðasta val í þetta skipti. Yfirleitt skipta svo NBA-liðin inn- byrðis sín á milli. Að þessu sinni var beðið með eftirvæntingu hvaða lið myndi hreppa risann mikla frá Nígeríu, Akeem „The Dream“ Olajuwon. Olajuwon spilaði með Houston Cougars (há- skólalið) og stóð sig frábærlega. Hann kom til Houston frá Nígeríu fyrir 3 árum og ætlaði ekki að spila körfu- bolta, enda vissi hann ekkert hvað það var. Akeem, sem er 2,13 á hæð, hefur verið kallaður „Draumurinn“ og ver- ið maðurinn á bakvið velgengni Houston háskólans en hann hefur til úrslita á bandaríska háskólamótinu í körfuknattleik tvö ár í röð; að vísu tapað í bæði skiptin. Olajuwon mun ekki færa sig mikið um set í Bandaríkjunum því hann var valinn til að ^spila með Houston Rockets. Þar mun hann spila með Ralph Samson sem var kosinn besti nýliðinn í NBA-deildinni á síðasta ári. Sampson er 2,23 á hæð. Það er spá margra að Houston Rockets gætu náð langt í NBA-deildinni næsta vetur: enda hafa þeir hæð til þess. Til handhafá gjalabréfa Nú er komið að síðasta gjalddaga gjafabréfa SÁÁ, sem seld voru til að fjármagna byggingaframkvæmdir við sjúkrastöðina Vog. Um leið og við minnum handhafa gjafabréfanna á lokaátakið, viljum við þakka þeim svo og öðrum velunnurum SÁÁ, sem lagt hafa sitt af mörkum til að sjúkrastöðin Vogur yrði að veruleika. Dregið verður úr númerum allra gjafabréfanna 5. júlí. Gera má skil hjá öllum bankastofnunum og á skrrfstofu SÁÁ. Stjórn SÁÁ

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.