NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 10.07.1984, Qupperneq 26

NT - 10.07.1984, Qupperneq 26
Dauði á íþróttavellinum ■ Nýlega lést einn af betri rugby spilurum S- Afríku í leik og hefur lát hans valdið miklum deil- um um ágæti íþrótta og þá sérstaklega rugby. Tveir aðrir leikmenn hafa dáið í leik á þessu kepp- nistímabili í rugbyleik. Áhyggjur af meiðslum í leik sem þessum eru ekki ástæðulausar, því rugbyer einhver harðasta íþrótt sem leikin er og á ári hverju slasast fjöldi leikmanna alvarlega þó ekki hafi áður komið upp þrjú dauðatilfelli á sama keppnistímabili. Rugbysamband S-Afr- íku hefurmiklaráhyggjur vegna þeirra slæmu meið- sla sem nú fjölgar svo í leiknuni og hafa skipað nefnd til að vinna að endurskoðun reglna og dómgæslu til að reyna að stemma stigu við slysun- um. Þetta mun þó ekki reynast auðvelt því rugby er eiginlega hluti af dag- legu lífi í S-Afríku og nánast hluti af menningu þjóðarinnar þ.e. hvíta minnihlutans. Er oft sagt að rugby sé einn af þremur guðum sem S- Afríkubúar dýrka - hinir eru stjórnvöld og hollenska kirkjan. Þriðjudagur 10. júlí 1984 26 íþróttir Handboltastjörnur í Seljaskóla: Thiel Roch og Wunderlich leika með V-Þjóðverjum gegn íslend- ingum á miðvikudag og fimmtudag ■ Erhard Wunderlich- „LJndraljósið" þeirra Þjóðverja verður í sviðsljósinu í Seljaskól- anum á miðvikudag og fímm- tudag. Nær Þorbjörn að stoppa hann? sóknarleikurinn hjá þeim tekur okkar ekki fram“, sagði Bjarni Guðmundsson lands- liðsmaður í handknattleik í samtali við NT í gær. Bjarni sagði helstu stjörnur þeirra Þjóðverja vera mark- verðina þrjá, Ándreas Thiel frá Gummersbach, Siegfried Roch frá Grosswallstadt og Klaus Völler frá Berlín. „Svo eru þeir með „undraljósið" sitt, Wunderlich. Það er ekki gott að segja hvað kemur út úr honum, hann er nýkominn inn í þetta aftur“, sagði Bjarni. NT hafa borist þær fréttir, að Wunderlich hafi komið vel út í leikjum Þjóðverja gegn Bandaríkjamönnum nýverið, en liðin gerðu jafntefli 20-20. Hann er mikil skytta. Þá eru þeir markverðirnir, Roch og Thiel engir aukvisar. Thiel hefur oft verið nefndur hálft lið Gummersbach, risastór og góður markvörður. „Æfum á pöllunum ef rignir“ Eftir 10 umferðir af deildarkeppni karla á íslands- mótinu í knattspyrnu eru Skaga- menn efstir í deildinni með 25 stig, Keflvíkingar eru næstir með 21 stig, síðan kemur Vík- ingur með 13 stig. Skagamenn stenda því afar vel að vígi, í bili virðast Keflvíkingar einir geta ógnað þeim. Nýlega barst NT mynd af Skagamönnum á knattspyrnuæfingu, og sést þá, að íslands- og bikarmeistararn- ir æfa ekki við betri aðstæður en lið almennt, nema síður sé. „Ástandið í vallarmálum er vægast sagt mjög slæmt hér á Akranesi," sagði Hörður Helgason þjálfari Skagamanna í samtali við NT. „Fyrir utan það að æfingasvæðið er ónýtt, er völlurinn mjög lélegur, og varla hægt að láta bolta rúlla rétt á honum. Það er talandi dæmi um ástandið að ef rignir að ráði í meira en einn dag, eru áhorfendapallarnir eini staður- inn til að æfa á,“ sagði Hörður. Æfingasvæðið á Akranesi er hálfbágt. Það líkist lítið knatt- spyrnuvelli, utan að gras er uppistaðan í báðum. Svæðið er afar óslétt, og hlutar þess eru forarfen. Samkvæmt heimildum NT er fjármagn sem úthlutað er til vallarmála á Akranesi hvergi nærri nóg til þess að hægt sé að hefjast handa við markvissar framkvæmdir til að bæta knatt- spyrnusvæði ÍA. íslandsmeist- ararnir virðast því þurfa að búa við mýri og slæman völl enn um sinn.... ■ Skagamenn á æfíngu á þurrum degi. Eins og sjá má síga þeir talsvert ofan í æfíngasvæðið, þeir Bjarni Sigurðsson markvörður (lengst til vinstri), Hörður Jóhannesson (í miðið) og Sveinbjörn HákonarSOn. NT-mynd Árni Árnason ■ íslenska landsliðið í hand- knattleik leikur tvo landsleiki í handknattleik við V-Þjóð- verja í íþróttahúsi Seljaskóla í Breiðholti á miðvikudags- og fímmtudagskvöld. Auk þess sem íslenska liðið verður skip- að sterkustu leikmönnum sínum, verða margar stór- stjörnur Þjóðverja í sviðsljós- inu. Bæði liðin undirbúa sig nú sem mest fyrir þátttöku í Olymp- íuleikunum í Los Angeles, og ættu því að vera á svipuðu róli hvað þjálfunarstig snertir. í landsleikjunum við V-Þjóðverja ræðst væntanlega hverjir 15 af þeim 18 leik- mönnum íslenska liðsins, sem hafa æft sem fastast fyrir leik- ana, munu fara. Hætt er við að mikið muni reyna á sóknar- menn íslands, því Þjóðverjar eru þekktir fyrir sterka vörn og góða markvörslu. „Þetta ætti að vera svipað lið að getu og við erum, þeir eru líka að búa sig undir Ólympíuleikana. Ég tel að við séum mjög svipaðir að getu og þeir. Aðall þeirra er góð vörn og frábær markvarsla, en 4. deildin í knattspyrnu um helgina: Markaregn í B-riðli ■ Þeir slógu ekki slöku við knattspyrnumcnnirnir í 4.deild um helgina frekar en aðrar helgar og var tuðrunni sparkað og misþyrmt á fjölda valla víðs- vegar um landið. Sumir gerðu mörk, aðrir ekki, var grátið í sumum bæjum en á öðrum fór fram 17. júní-gleði og fögnuðu menn sigri. Höfum þetta spjall alls ekki lengra en rúllum tuðr- unni af stað og byrjum á A- riðli. ÚRSLIT í A-RIÐLI: Drengur-Augnablik 1-5 Ármann-Haukar 1-0 Víkverji-Hafnir 1-1 Afturelding-Árvakur 4-1 Drengirnir gáfu frekar ódýr mörk og að sjálfsögðu nýttu Kópavogspiltarnir sér það og alls fimm sinnum. Þeir sem versluðu fyrir Augnablik voru Sigurður Halldórsson 2, Birgir Teitsson, Albert Klemensson og Vilmar Pétursson. Fyrir Dreng skoraði Hjörtur Ingvars- son. Reynslan var Ármenningum dýrmæt gegn ungu liði Hauka og þeim tókst að sigra í viður- eign liðanna með eina marki leiksins. Markið gerði Jens Jó- hannsson. Haukar fengu sín færi í leiknum en tókst ekki að nýta þau. Ármenningar eru nú lang efstir í riðlinum og stefna á 3. deiid. Víkverji og Hafnir gerðu jafntefli í Reykjavík og setur það Dreng á botninn. Mark Hafna gerði Sævar Pétursson en ekki komust við að því hver gerði mark Víkverja. Stórsigur Aftureldingar á Árvakri og sigurinn sanngjarn. Það voru þeir Sigurður Sveins- son tvö, Ríkharður Örn Jóns- son og Friðsteinn Stefánsson sem gerðu mörk Mosfellinga en Þorlákur Björnsson skoraði fyrir Árvakur. STAÐAN í A-riðli: Ármann....... 8 7 1 0 18-4 22 Haukar....... 8 4 2 2 16-10 14 Víkverji .... 8 4 2 2 12-6 14 Augnablik ....... 8 4 13 18-13 13 Afturelding.. 8 4 0 4 12-11 12 Árvakur...... 8 2 1 5 7-11 7 Hafnir ..... 8 1 2 5 6-15 5 Drengur...... 8 1 1 6 9-24 4 ÚRSLIT í B-RIÐLI: Hveragerði-Þór Þ 0-5 Hildibrandur-Drangur 8-1 Eyfellingur-Léttir 3-6 Hrikaleg markaskorun í þessum riðli og hafa marknetin þurft að þola ýmislegt. Þorlákshafnarbúar tóku nágranna sína í kennslustund og gerðu mörk á færibandi. Hvergerðingar voru hálflamað- ir og réðu ekkert við græðgi Þórsara. Mörkin gerðu Einar Haraldsson 2, Ármann Einars- son, Guðmundur Gunnarsson og Sveinbjörn. Hildibrandarnir gera það ekki endasleppt og skora bæði mörk og stig. Eftir 15. mín.var staðan orðin 3-0 en þá skoruðu Drangsmenn. Stað- an í hlé var 5-1. Þótt mörkin hefðu verið 8 þá voru marka- skorararnir aðeins 3. Sigurður Friðriksson og Böðvar Berg- þór'sson gerðu 3 hvor og Viðar Hjálmarson gerði 2. Fyrir að- komumenn skoraði Ragnar Guðgeirsson. Eyfellingum gekk illa að fóta sig á hálum grasvellinum undir Eyjafjöllum og runnu á rassinn í orðsinsfyllstu merkingu. Fyrir Eyfellinga skoruðu Bergþór Sveinsson 2 og Magnús Geirs- son en ekki fundust marka- skorarar Léttis. STAÐAN í B-RIÐLI: Hildibrandur ... 7 5 2 0 27-8 17 Léttir...-.... 7 4 2 1 22-10 14 Þór Þ ........ 7 4 1 2 21-10 13 Stokkseyri.... 6 4 0 2 19-12 12 Eyfellingur .. 7 2 1 4 15-20 7 Hverageröi ... 7 2 0 5 15-24 6 Drangur....... 7 0 0 7 3-38 0 ÚRSLIT í C-RIÐLI: Grundarfj.-Bolungarv. 1-5 Stefnir-Leiknir 3-1 Góður sigur hjá Bolvíking- um og urðu mörkin alls fimm. Annars var leikurinn, leikur hinna glötuðu tækifæra og fengu bæði liðin nokkurstykki. Bolvíkingar nýttu þó nokkur sinna og gerðu það Jóhann Kristinsson 2, Jón Ævarsson, Svavar Ævarsson og Páll Krist- insson. Stefnir með glæsisigur á sunnanmönnum. Leifur Harð- arson, þjálfari og blakari, gerði eitt mark og Ólafur Magnússon gerði hin tvö. Fyrir Leikni skoraði Atli Þorvaldsson. Úrs- litin þóttu sanngjörn. STAÐAN í C-RIÐLI: ÍR .......... 7 6 0 1 39-7 18 Bolungarvík .... 8 5 0 2 18-16 18 Grótta ...... 6 3 0 3 12-14 9 Reynir Hn ... 7 2 14 13-15 7 Leiknir...... 7 2 14 H-25 7 Grundarfj.... 7 2 0 5 12-24 6 Stefnir ..... 6 2 0 4 8-17 6 ÚRSLIT í D-RIÐLI: Reynir Á-Hvöt 2-0 Skytturnar-Svarfdælir 5-1 Hvatarmenn voru ekki ánægðir með dómgæsluna í þessum leik sínum gegn Reyni og voru reiðir. Fyrst skoraði Kristján Ásmundsson úr víta- spyrnu og síðan bætti Gísli Rúnar Jónsson við marki eftir að hafa náð boltanum úr hönd- um markvarðarins. Markvörð- ur Hvatar meiddist í þessu ati. Annars var leikurinn í járnum nær allan tímann. Skytturnar skutu Svarfdæli á bólakaf og virðist sem þeir hafi sérstakt tak á Svarfdælingum. Guðbrandur Ólafsson gerði tvö mörk en hin gerðu Jóhann Halldórsson, Baldvin Valtýs- son og Björn Bogason. Fyrir aðkomumenn skoraði Arnar Snorrason. Svarfdælir reyndu að spila rangstöðutaktík en gekk illa. STAÐAN í D-RIÐLI: Reynir ....... 5 4 10 18-3 13 Svarfdælir.... 5 2 12 12-15 7 Skytturnar ... 4 2 0 2 13-10 6 Geislinn ..... 3 1 0 2 3-5 3 Hvöt ......... 5 1 0 4 4-17 3 ÚRSLIT í E-RIÐLI: Árroðinn-Vaskur 1-1 Tjörnes-Vorboðinn 7-0 Árroðamenn voru heldur sterkari í leiknum en jafntefli gefur ekki ranga mynd af gangi mála. Staðan í hléi var 0-0. Helgi Örlygsson gerði mark Árroðans og Ari Torfason fyrir Vask. Stórar tölur hjá Tjörnes og leikurinn algjör einstefna. Framlínumenn Tjörness sáu um mörkin, Magnús Hreiðars- son gerði 4 og Friðrik Jónasson 3. STAÐAN í E-RIÐLI: Tjörnes ..... 5 4 0 1 15-2 12 Vaskur....... 5 3 11 12-8 10 Árroðinn .... 5 2 2 1 8-8 8 Vorboðinn.... 5 113 8-15 4 Æskan ....... 3 0 0 3 4-14 0 ÚRSLIT í F-RIÐLI: Leikið var á miðvikudag UMFB-Hrafnkell 5-0 Höttur-Súlan 3-6 Leiknir-Egill 6-0 Sindri-Neisti 2-2 Borgfirðingar í banastuði. Þorbjörn Björnsson 2, Pétur Örn Hjaltason, Jón Kjartans- son og Magnús Ásgrímsson gerðu mörkin. Vignir Garðars- son hjá Hrafnkatli var rekinn af velli. Stórsigur Súlunnar. Höttur yfir í hléi 3-1. Allt á fullt hjá Stöðvfirðingum í seinni hálf- leik. Ársæll Hafstcinsson gerði 2, Jónas Ólafsson gerði 2 og þeir Magnús Magnússon og Einar Björnsson eitt hvor. Fyr- ir heimamenn skoruðu Jón Kristinsson 2 og Árni Jónsson Leiknir heldur toppsætinu í riðlinum. Góður sigur á Agli rauða. Óskar Tómasson gerði 2, Gunnar Guðmundsson, Helgi Ingason, Þorgils Gunn- arsson og Jón Hauksson eitt hver. Hornfirðingar og Djúpvæ- ingar skildu jafnir. ÞrándurSig- urðsson og Ómar Bragason gerðu mörk Sindra en Gunn- laugur Bogason og Snæbjörn Vilhjálmsson fyrir Neista. Leiknir F ..... 9 7 2 0 31-3 23 Súlan ......... 9 6 1 2 24-14 19 Höttur......... 9 4 2 3 20-16 14 Neisti ........ 8 4 1 3 24-15 13 Sindri......... 9 3 3 3 15-19 12 Borgarfjörður ..8 3 0 5 14-19 9 Hrafnkell...... 9 3 0 6 9-27 9 Egill rauði ... 9 0 1 8 7-28 1

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.