NT - 10.07.1984, Síða 27
Þridjudagur 10. júlí 1084 27
fþróttir
íslandsmótið 1. deild, 10. umferð:
NT-LIÐ UMFERDARINNAR:
Guðjón Þórðarson
Akranesi (2)
Ásbjörn Björnsson
KA (1)
Þorvaldur Jónsson
KA (1)
Óskar Gunnarsson
Þór (3)
Erlingur Kristjánsson
KA (3)
Jónas Róbertsson
Þór (4)
Mark Duffield
KA (1)
Kristinn Guðmundsson
Víkingi (1)
Árni Sveinsson
ÍA (3)
Bjarni Sveinbjörnsson
Þór (2)
Heimir Karlsson
Víkingi (5)
■ Islenska landsliðið í handknattleik undirbýr sig nú að krafti fyrir Ólympíuleikana. í gærkvöld lék
landsliðið æfingaleik innbyrðis. Þ.e.a.s. landsliðshópnum var skipt í tvö lið og leikinn æfingaleikur. Alfreð
Gíslason átti góðan leik í gærkvöld og skoraði 9 mörk. Lið Alfreðs tapaði þó fyrir dekkra liðinu 20-30.
NT-mynd: Árni Bjama.
Bearzot velur Olympíuhópinn
Landsliðsþjálfarinn ítalski,
Enzo Bearzot, hefur valið 17
manna hóp fyrir keppni í
knattspyrnu á Olympíuleikun-
um í Los Angeles. Italir náðu
reyndar ekki að tryggja sér
þátttökurétt, en var boðið að
vera með þegar A-Evrópu-
þjóðirnar hættu við að mæta,
svipað og íslenskum hand-
knattleiksmönnum.
Hætt er við að flestir þeirra
leikmanna sem þarna mæta
fyrir hönd Ítalíu séu atvinnu-
menn í íþróttinni, þrátt fyrir
að reglur um Ólympíuleika
segi annað. Þrátt fyrir það
sleppa ítalir með það eins og
V-Þjóðverjar að líkindum, þar
eð leikmennirnir í hópnum
voru allir áhugamenn þegar
undankeppnin hófst.
Liðið er þannig skipað: Sal-
vatore Bagni, Napólí, Fra-
nchinop Baresi, Sergio Battist-
ini og Filipo Galli, AC Mílanó,
Massimo Briaschi og Beniam-
ino Vignola, Juventus, Pierino
Fanna og Roberto Tricella,
Verona, Riccardo Ferri, Ant-
onio Sabato og Waíter Zegna,
Inter Mílanó, Maurizio Iorio,
Sebastino Nela og Franco
Tancredi, Róma, Daniele
Massaro og Aldo Serena, Tór-
ínó, og Pietro Vierchowod,
Sampdoria.
Massaro, Vierchowod og
Baresi voru allir í hópnum hjá
ítölum á Spáni 1982, er þeir
urðu heimsmeistarar, en léku
ekki með. Þeir sem eru inni í
myndinni fyrir HM 1986 nú,
eru Bagni, Fanna, Sabato, og
markvörðurinn Tancredi. Þeir
hafa allir leikið landsleiki með
A-liðinu undanfarið.
Sovétmenn á
ferð og flugi
■ Sovétmenn keppa nú
grimmt á íþróttamótum
víða um heim, þrátt fyrir
að þeir taki ekki þátt í
Ólympíuleikunum í Los
Angeles. Arangur Sovét-
manna á mótum undanfar-
ið hefur undirstrikað
hversu mikill sjónarsviptir
er að þeim á Ólympíu-
leikunum svo og arangur
annarra A-Evrópumanna
sem ekki mæta heldur.
Á föstudag er mikið
frjálsíþróttamót í Crystal
Palace í Lundúnum, og
verður þar 8 manna sterkt
lið frá Sovétríkjunum. Má
nefna þar heimsmethafann
í hástökki, Sergei Bubka,
heimsmethafann í sleggju-
kasti, Yuri Sedykh, og
heimsmethafann í hástökki
kvenna, Tainöru Bykovu.
Leikjanámt'keið
Aftureldingar
■ Frjálsíþróttadeild U.M.7. Aftur-
eldingar í Mosfellssveit stendur nú í
sumar fyrir námskeiðum sem byggð
eru á íþróttum og leikjastarfsemi.
Á námskeiðunum er farið í helstu
greinar frjálsra íþrótta, knattspyrnu,
handknattleik, sund, gönguferðir og
síðast en ekki síst, dagsferð út í
Viðey.
Námskeið hófs 25. júní og lýkur
12. júlí, en 3ja og síðasta námskeiðið
hefst 16. júlí og lýkur 2. ágúst.
Innritun á seinna námskeiðið er sem
hér segir, föstudaginn 13. júlí:
Frá kl. 9-12 í síma 666737
Frá kl. 10-18 í síma 666254
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru:
Ólafur Ágúst Gíslason, íþróttakenn-
ari, Alfa R. Jóhannsdóttir, íþrótta-
þjálfari.
Nánari upplýsingar um námskeiðin
eru veitt í ofangreindum símum um
leið og innritun fer fram.
Námskeið
ffyrir leiðbeinendur í
almenningsíþróttum
■ , Trimmnefnd ÍSÍ, fræðslunefnd
ISI og íþróttanefnd ríkisins gangast
fyrir leiðbeinendanámskeiði ■ al-
menningsíþróttum dagana 10. 11. og
12. ágúst í Kennaraháskóla íslands
við Stakkahlíð í Reykjavík.
Kennari á námskeiðinu verður Dr.
Kenton Finanger prófessor við Luth-
er College í Iowa í Bandaríkjunum en
hann er mikill áhugamaður um al-
menningsíþróttir og hefur haldið
mörg svona námskeið.
Nánari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu ISI, íþróttamiðstöðinni
Laugardal í síma 83259. Þarf að
tilkynna þátttöku fyrir 1. ágúst.
Námskeiðisgjald er kr. 800.
Fylgirit NT um
Norðurland
kemur út19. júlí n.k.
Lifandi biað fyrir lifandi fólk
Auglýsingar sem birtast eiga í blaðinu, þurfa
að hafa borist auglýsingadeild NT í síðasta
lagi föstudaginn 14. júlí n.k.
Símarnir eru: 18300 - 687648 og 686481
Lifandi blað