NT - 11.07.1984, Síða 5
Miðvikudagur 11. júli 1984
Skíðamenn á Neskaupstað:
Rífa frystihús
í frístundunum
■ Til fjáröflunar fyrir félag
sitt - Skíðadeild Próttar á Nes-
kaupstað - hafa ungir skíða-
menn á staðnum að undanförnu
unnið í sjálfboðavinnu, með
góðri aðstoð foreldra sinna, við
niðurrif gamals frystihúss á
staðnum. Lokið er að rífa þak
og milligólf, en eftir að brjóta
niður steypta útveggi hússins.
Til aðstoðar við það verk á
Skíðadeildin hauka í horni með-
al stjórnenda stórvirkra vinnu-
véla. Bæjarsjóður á hús þetta,
eftir makaskipti við kaupfélag-
ið, og rennur greiðslan fyrir
niðurrifið beint til Skíðadeildar-
innar.
Að sögn Benedikts Sigurjóns-
sonar, form. deildarinnar er
timbrið í Húsinu orðið ákaflega
lélegt, en mönnum leyft að
ganga í brakið telji þeir sig geta
nýtt eitthvað af því.
■ Fermingarsystkinin í Keflavík sem héldu uppá 40 ára fermingar-
afmæli sitt í Glóðinni í Keflavík á dögunum.
Keflavík:
Sjóðstofnun
langlegudeildar
■ Nýlega komu saman í Glóð-
inni í Keflavík fermingar-
systkini sem fermdust áriö 1944
til að halda uppá 40 ára ferm-
ingarafmæli sitt. Af því tilefni
stofnuðu þau.sjóð sem renna
skal til byggingar langlegudeild-
ar við sjúkrahúsið í Keflavík.
Er það von stofnendanna að
sjóðurinn efljst og að félög,
hópar og einstaklingar leggi
þessu verkefni lið. Sjóðurinn er
í vörslu sparisjóðsdeildar Spari-
sjóðs Keflavíkur.
■ Frá templaraþinginu á Akureyri. Fremst á myndinni eru Öistein
lohnsen stórtemplar Norðmanna og heiðursgestur þingsins og
Ingrid Johnsen kona hans.
Bindindismenn þinga
■ Fyrir skemmstu var lialdið
á Akureyri Stórstúku og Ungl-
ingaregluþing. Pá héldu norræn-
ir bindindismenn þing í Finn-
landi og mættu þar fyrir íslands
hönd fulltrúar samvinnunefndar
bindindismanna.
Á Stórstúkuþinginu var
Hilmar Jónsson endurkjörinn
stórtemplar en Kristinn Vil-
hjálmsson var endurkjörinn
stórgæslumaður á Unglinga-
regluþinginu. Meðal samþykkta
á Akureyri má nefna að 10.
janúar verði bindindisdagur ár
hvert og 1986 ár bindindis.
Gestur þingsins fyrir norðan var
stórtemplar Norðmanna Öist-
ein Johnsen og frú.
Á þinginu í Finnlandi var
meðal annars samþykkt ályktun
þar sem tollfrjáls áfengisverslun
er fordæmd. Þá kom fram á
þinginu að á meðal nokkurra
norræna þjóða hefur áfengis-
neysla farið minnkandi. Taldi
þingið það gleðilega þróun og
afleiðingin væri minna tjón af
völdum áfengisneyslu.
Húsið, sem stóð ónotað á s.l.
ári, stendur fast við Egilsbúð, sem
hýsir bæjarskrifstofur, félags-
heimili og hótel, og sundlaugina
á Neskaupstað. í framtíðar-
skipulagi er gert ráð fyrir að
lóðin verði notuð til að byggja
við Egilsbúð og jafnframt nýja
búningsklefa fyrir sundlaugina.
■ Ungir skíðamenn á Neskaupstað og foreldrar þeirra leggja mikið á sig í frístundunum til að
afla tekna til styrktar skíðadeildinni á staðnum. NT-mynd Svanfnður
Hvað hræddust goðin?:
„Gosid hætti
þegar ég kom“
- segir Sveinn Eiríksson, sem
ætlaði að stöðva hraun á Hawaii
■ Eru hraunguðirnir á Hawaii
eyjum hræddir við Svein Eiríks-
son slökkviliðsstjóra á Keflavíkur-
flugvelii?
„Ég var beðinn um að koma
þarna út og setja i gang svipaðar
aðgerðir og við hraunkælinguna
í Vestmannaeyjum, en þess
þurfti ekki því að gosið hætti
þegar ég kom“ sagði Sveinn í
samtali við NT.
Hann var vestur á Hawaii
fyrir skömmu, þar sem hraun-
elfa stefndi í átt að bænum Hilo
þar sem búa 40 þúsund manns,
Hafði hraunið farið 14 mílur af
18 sem skilja á milli eldfjallsins
og bæjarins. Til kælingarinnar
þurfti þó ekki að koma þar sem
hraunið stöðvaðist af sjálfu sér.
Hraunið rann nú eftirfarvegi,
sem það tók í gosi árið 1881 og
lagði bæinn þá í rúst. Það var
því kominn nokkur órói í íbú-
ana og var farið að yfirgefa sum
húsanna í bænum.
Hilo-búar sluppu nú með
skrekkinn, en þeir vita svo sannar-
lega hvert þeir eiga að leita
næst, þegarhraunstraumurógn-
ar híbýlum þeirra.
Álafosskórinn:
Söngferð
um Sovét
■ Álafosskórinn fór til
Sovétríkjanna 7. júlí s.l.
þar sem hann hefur komið
fram á ýmsum söng-
skemmtunum.
Kórinn sem saman-
stendur af starfsfólki Ála-
foss, á sér ckki langa sögu.
Hann var stofnaður 1980
og þá voru kórfélagar 25
en eru nú 56. Kórinn hefur
komið víða fram, sungið
á sjúkrahúsum og elli-
heimilum og einnig hefur
kórinn tekið þátt í sam-
norrænu kóramóti í Pori í
Finnlandi.
Stjórnandi Álaíosskórs-
ins er Páll Helgason og
einsöngvarar eru Dóra
Reyndal og Helgi Einars-
son. Formaður kórsins er
Þrúður Helgadóttir.
Rannsóknir og þróunarstarfsemi:
ísland
langt
áeftir
■ íslensk iðnfyrirtæki verja aðeins sjöunda
hluta af því sem iðnfyrirtæki á öllum Norður-
löndunum verja að meðaltali til rannsókna og
þróunarstarfsemi. Samkvæmnt útreikningum
NORFORSK, norrænu rannsóknastofnunar-
innar, þá vörðu íslensk fyrirtæki sem svaraði
0,4% af vinnsluvirði sínu á meðan norræn
fyrirtæki vörðu að meðaltali 3,5% af vinnslu-
virði sínu til rannsókna og þróunar á árinu 1981,
sænsk iðnfyrirtæki vörðu rúmlega 7% af vinnslu-
virði sínu til sömu hluta.
„Menn erlendis eru sér meira meðvitaðir um
að nýskipunar er þörf í fyrirtækjunum sjálfum,"
sagði Þórarinn Gunnarsson, skrifstofustjóri
Félags íslenskra iðnrekenda í samtali við NT.
„Þetta hefur æði oft vantað hérna hjá okkur, þó
maður sjái vissulega mörg dæmi um hið gagn-
stæða.“
Þórarinn sagði að a.m.k. í Svíþjóð og Finn-
landi fengju menn einhverja umbun í skatti fyrir
rannsókna- og þróunarstarfsemi. Þess konar
hvatningu hefðu íslenskir iðnrekendur lengi
barist fyrir, hún gæti vissulega haft áhrif.
„Hluti af skýringunni er svo sá að markaður-
inn hérna er ákaflega lítill, og það er tiltölulega
dýrara að efna til slíkrar starfsemi þegar maður
er með svona lítinn markað“, sagði Þórarinn
ennfremur.
NORFORSK hefur einnig komist að þeirri
niðurstöðu að íslensk stjórnvöld verja mun
minna til rannsókna- og þróunarstarfsemi held-
ur en stjórnvöld annarra Norðurlanda; hér er
talan 0,1% en 0,36% að meðaltali á Norður-
löndunum fimm.
Aksturshraða
skal miða
við
aðstæður