NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 09.11.1984, Qupperneq 2

NT - 09.11.1984, Qupperneq 2
■ Ljósalamparnir eru nýjasta tískufyrirbrigðið hér á klakanum og leitar mörg fögur snótin í þá til að slappa af frá annríki dagsins og ná sér í smá „brúnku“ í leiðinni. En þetta gæti reynst grátt gaman ef sú er raunin að Ijósalampar valdi aukinni tíðni húðkrabba. Reyndar eru danskir læknar svo vissir í sinni sök að þeir kalla þessa lampa krabbagrill! Ni-mvnd: Ámi Bjama Ljósalamparnir: Lina þrautir -segir Sigurð- ur Pálsson ■ „Ég tel ljósanotkun í hófi af hinu góða, en hún getur eflaust verið skaðleg í óhófi eins og allt annað,“ sagði Sigurður Pálsson sem vinnur á auglýsinga- deild NT og hefur stund- að ljós reglulega, er hann var spurður hvernig hon- um litist á fréttir af mikilli aukningu húðkrabba vegna ljósalampanotkun- ar. Sigurður sagðist fara einu sinni í viku í Ijós og heita potta vegna millirifja- gigtar. Hann fór í alls- herjarskoðun hjá Hjarta- vernd sl. sumar og ráð- ■ Sigurður: Ljósanotk- un í hófi af hinu góða. NT-mynd: Róbert lagði læknir honum þá heita potta og hafði ekkert við ljós að athuga, þótt hann ráðlegði þau ekki. Sagði hann sem svo að það ætti einnig að vera góður hiti til að lina þraut- ir. Landlæknir: Ekkert staðfestir tengsl milli húðkrabba og Ijósa Danskir læknar kalla Ijósalampana krabbagrill! ■ „Það liggja engar upplýsingar fyrir í dag þess eðlis að ástæða sé til að ráðleggja fólki að hætta notkun þessara sólbekkja, en það er jafnframt ástæða til að undirstrika að hóf er best á öllu og mikið magn af útfjólubláum geislum getur valdið húðkrabbameini“, sagði Guðjón Magnússon starfandi landlæknir í fjarveru Ólafs Ólafssonar er NT leitaði álits hans á fréttum um vaxandi tíðni húðkrabba- meins hérlendis. Landlæknisembættinu barst nýlega bréf um þetta mál frá lækn- um á lýtalækningadeild Landspít- alans og sagðist Guðjón þegar vera búinn að skrifa bréf til yfirmanns Krabbameinsskrár, Hrafns Tulinius, þar sem óskað væri eftir yfirliti yfir tíðni húð- krabba sl. áratugi, einkum sl. 10 ár og hvaða breytingar hafi orðið á þeirri tíðni og hversu mörg tilfelli hefðu verið tilkynnt á þessu ári. Einnig sagðist land- læknir hafa haft samband við Geislavarnir ríkisins til að kynna sér hvað þegar hefði verið gert í þessum málum og þar hefðu verið sendar út aðvar- anir fyrir rúmu ári síðan um notkun sólarlampa og ættu þær að hanga uppi alls staðar þar sem slík tæki væru notuð. Rannsóknar þörf Landlæknir benti enn fremur á að fjöldi tilfella sem urn væri talað á Landspítalanum væri sér ekki kunnur og því þyrfti að byrja á því að athuga það og hvort þeir sem hafa verið greindir með húðkrabba hafi stundað Ijósalampa. Hins vegar tók hann undir þá skoðun að svo virtist sem aukning húð- krabba tengdist aukinni Ijósa- lampanotkun og væri um sam- svarandi aukningu að ræða á hinum Norðurlöndunum. Þetta þyrfti að kanna frekar, ekkert væri vitað með vissu um þessa hluti í dag, og eins þyrfti að kanna hvort þeir sent hafa feng- ið húðkrabba séu svokallaðir stórneytendur á Ijós eða ekki. Ólafur sagði að búast mætti við frekari fréttum um þessi mál frá landlæknisembættinu í næstu viku er frekari upplýsing- ar lægju fyrir en ef fara þyrfti út Sjómannaþing: Kjör sjómanna í uppsveiflu! ■ í framsögu Hólmgeirs Jónssonar, hagfræðings Sjó- mannasambands íslands, við setningu sjómannaþings í gær kom meðal annars fram að frá árslokum 1982 hafa tekjur sjómanna að meðaltali hækkað meira en tekjur verkamanna. Haldi sú þróun áfram sem var á þessu ári má búast við að hlutfall tekna sjómanna og verkamanna verði orðið það sama að ári og það var árið 1979. „Það getur verið ákaflega varasamt að tala um tekjur alfra sjómanna í einu. í bolfisk- veiðum hefur til dæmis verið mikill samdráttur í kjörum en það er fyrst og fremst loðn- an sem lyftirþessu upp. Tekjur togarasjómanna hafa staðið í stað en bátasjómanna á botn- fiskveiðum er enn á niðurleið miðað við kjör verkamanna," sagði Hólmgeir meðal annars í samtali við NT í gær. Þá benti Hólmgeir á að þrátt fyrir þessa uppsveiflu frá 1982 hefðu á undan farið ár þar sem kjör sjómanna hefðu dregist mjög mikið afturúr. Pannig jókst skiptaverðmæti sjó- manna verulega 1979 til 1980 en dróst svo saman á næstu árum til 1982. 1983 hækkuðu tekjur allra sjómanna meira en tekjur allra verkamanna og þessi munur stefnir í það að verða enn meiri á þessu ári. Það ræðst svo af afla, markaðs- aðstæðum og skiptahlut á næsta ári hvort sjómönnum tekst að ná sama hlutfalli tekna verkamanna og þeir höfðu 1979 á komandi ári. í nákvæmar rannsóknir gæti það dregist lengur. Þreföldun tilfella! Knútur Bjömsson skurðlækn- ir á lýtalækningadeild Landspít- alans kvað húðkrabbatilfellin hafa þrefaldast á þessu ári en þau hefðu verið þetta á bilinu 5-7 fyrir nokkrum árum síðan. Hann kvað allan gang á því hversu mikið þeir hefðu stundað Ijós sem leitað hefðu til-þeirra, en það væri sammerkt með öllum að þeir hefðu farið í ljósalampa. Virtist ekki sem þeir er stunduðu ljós mikið fengju þetta eingöngu. Knútur sagði enga rannsókn hafa farið fram á því hvort mismunandi perutegundir ættu þátt í þessu en það væri vitað að lamparnir yllu hita í húðinni og ertingu sem leiddi af sér framleiðslu litarefna í auknum mæli. Gæti stöðug erting komið slíkri ill- kynja breytingu af stað og kæmi hún oft fram í fæðingarblettum. Oft væri um að ræða ertingu frá fötum m.a. Astæðuna fyrir því að læknar teldu sólarlampana vera orsök aukinnar tíðni kvað Knútur þá að þeir gætu ekki séð neina aðra umhverfisbreytingu, eða breytingu á lifnaðarháttum fólks. Aukning hefði átt sér stað í húðkrabbatilfellum er íslend- ingar byrjuðu að fara til sólar- landa en jafnvægi hefði verið komið í þau tilfelli en nú ætti sér stað aukning á ný. Skurðaðgerð nauðsynleg Knútur kvað erfitt að ráða við húðkrabba er hann væri kominn á það stig að hann væri farinn að dreifa sér. Það gæti gerst með vessaæðum og jafnvel blóði og væri eina raunhæfa lækningin skurðaðgerð. Geislar dygðu ekki og eins væri lítil hjálp í þessum lyfjum sem verið væri að gefa sumum krabba- sjúklingum, t.d. við brjóst- krabba. Knútur sagði að það væri bara á færi hins vana auga að greina byrjunareinkenni húðkrabba þvf þau væru lúmsk. Brúnir flekkir dökknuðu eða yrðu mismunandi dökkir, útlín- ur yrðu óreglulegar, flekkurinn stækkaði og það skapaðist pirr- ingur í honum. Benti Knútur á í lokin að við íslendingar, sem byggjum í sól- arlitlu landi, værum ekki með sterka húð gagnvart sól og þyld- um hana því illa. Það sama væri uppá teningnum á hinum Norðurlöndunum en ástæðan fyrir því að þar ætti sér ekki stað snögg aukning í húðkrabba nú, væri sú að þeir hefðu haft sólar- lampa lengur en við en hins vegar hefðu Danir lengi vitað um þessa hættu og þar væru sólarlamparnir kallaðir „kans- ergrill" eða krabbagrill af læknum. ■ Það er að ýmsu að huga fyrir 10 ára afmælið, og sjálfsagt veitir ekki af málningarslettum hér Og hvar. Nl-mynd: Sverrir. Fellahellir 10 ára: Vegleg afmæl- ishátíð í dag ■ Félagsmiðstöðin Fellahellir, sú fyrsta, sem reist var hér á landi, er 10 ára í dag, 9. nóvem- ber. Sterfsemin fór hægt af stað í fyrstu, en nú er opið 70-80 stundir í viku hverri, og daglega koma þangað 3-400 unglingar. Fer nærri, að um hálf milljón gesta hafi komið þangað á undanförnum 10 árum. í tilefni afmælisins verður haldin unglingaskemmtun í Fellahelli í kvöld og hefst hún með borðhaldi kl. 19.30. Margir þekktir skemmtikraftar munu koma fram og nægir þar að nefna HLH, Ómar Ragnarsson og KIZA flokkinn. Um miðjan dag, kl. 15-17, eru unglingar og aðrir velunnarar Fellahellis boðnir til tertuáts. Starfsemi í Fellahelli er mjög fjölbreytt og er hún svo til öll á vegum Æskulýðsráðs, þar er einnig rekið mötuneyti fyrir nemendur Fellaskóla kl. 9-15. Lágmarkslaun: Ekki lægri hjá ríkinu ■ „Það hefur alltaf verið þannig hjá BSRB og ríkinu að þar hafa gilt samskonar lág- marks dagvinnutekjutrygging eins og á almenna vinnumark- aðinum og það var ekki gengið frá neinu sérákvæði um það í BSRB-samningunum. En nú liggur hinsvegar fyrri hvað þetta verður á almenna markaðinum og það verður ekki lægra hjá ríkinu," sagði Indriði H. Þor- láksson, deildarstjóri launa- deildar fjármálaráðuneytisins, spurður - vegna fréttar í NT í gær - hvort þeir lægst launuðu hjá BSRB (fólk sem verið hefur á lágmarkstekjutryggingunni) fengi litlar sem engar kaup- hækkanir, eða allavega miklu minni en þeir sem hærri eru í launastiganum. Indriði kvaðst ekki hafa trú á því að þetta fólk verði látið sitja eftir. - Það hefur venjulega fylgt almenna markaðinum og ég held að við komum til með að taka tillit til allra hluta sem þar gerast í sambandi við það,, sagði Indriði.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.