NT - 09.11.1984, Page 3
Föstudagur 9. nóvember 1984 3
Álmálið:
Deilur um samninginn
■ Harðar deilur voru í efri
deild alþingis í gær, er frumvarp
iðnaðarráðherra, til lögfesting-
ar samningi hans við Alusuisse,
var til umræðu.
í umræðunni lýsti Ragnar
Arnalds yfir andstöðu Alþýðu-
bandalagsins við samninginn og
að þingmenn bandalagsins
myndu greiða atkvæði gegn
honum. Eiður Guðnason lýsti
því yfir að þingmenn Alþýðu-
flokksins myndu einnig greiða
atkvæði gegn samningnum.
Einnig gagnrýndi Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir, úr Samtökum
um Kvennalista, samninginn
harkalega, en gat ekki um hvemig
atkvæði Kvennalistans myndu
falla.
Umræðunni, sem stóð frá
klukkan 2 til ríflega 6, lyktaði
með að málinu var vísað til
annarrar umræðu og til um-
fjöllunar iðnaðarnefndar.
Mikil áhersla er lögð á að
hraða málinu sem mest, og
tókst samkomulag meðal
þingmanna um það. Sagði
Sverrir Hermannsson að hver
dagur sem liði þar til samningur-
inn væri staðfestur af þinginu
kostaði 400.000 krónur, í lægra
orkuverði.
Þau atriði sem helst voru
gagnrýnd í samningnum voru
ákvæði um raforkuverð, um
sáttagjörð og stækkunarmögu-
leika álversins í Straumsvík.
Ragnar Arnalds sagði að al-
þýðubandalagsmenn hefðu var-
að við því að samið yrði um of
lágt orkuverð. t>á benti Eiður á
að ef verðbólga á dollara verður
5% á ári, þá lækkar raunverð
orkunnar í allt að 7 millidali á 5
árum.
Samkvæmt samningnum er
gerð sáttagerð milli íslensku
ríkisstjórnarinnar og Alusuisse
og ÍSAL, og þar látin niður falla
öll mál sem hafa komið upp,
eða kynnu að koma upp.
Þá greiðir ISAL 3 milljónir
dollara til ríkisstjórnarinnar.
Stefán Benediktsson tók til
máls og sagðist fagna því að
máli þessu væri lokið. Hann
líkti málalyktun við enda innan-
landsófriðar. Davíð Aðal-
steinsson tók til máls og sagði
mikilvægasta hluta samningsins
hækkun á orkuverði.
■ Sverrir Hermannsson lagði
nýundirritaðan samning við Al-
usuisse fyrir efri deild alþingis
í gaer. NT-mynd Sverrir.
Innbrotið í
ÁTVRupplýst
■ Innbrotið í áfengisverslunina á Akranesi
hefur nú verið upplýst og voru þrír menn
látnir lausir úr gæsluvarðhaldi í gær. Alls
hafa sjö menn setið í gæsluvarðhaldi vegna
málsins.
Tæpir fimm kassar af áfengi hafa fundist
af þýfinu, en er það tæpur helmingur þess
sem stolið var. Hinsvegar hefur mun minna
af tóbakinu komið í leitirnar, eða nokkur
karton. Fimm þeirra manna sem handteknir
voru, stóðu sjálfir að innbrotinu, en tveir
tengjast dreifingu og sölu á þýfinu.
Ríkisvíxlar
seldir fyrir
25.5 milljónir
■ Fjármálaráðuneytið hefur tekið tilboð-
um í ríkisvíxla að nefnverði samtals 25,5
millj. króna. Kaupverð þeirra er 23.985.730
krónur, sem jafngildir 27,77% meðalárs-
vöxtum reiknuðum eftirá, samkvæmt frétt
frá fjármálaráðuneytinu. Hvert sett af víxl-
um er að nafnverði 250 þús. krónur, en þau
tilboð sem tekið var eru á bilinu 235.000 til
235.500 krónur. Næsta útboð ríkisvíxla
verður í desember.
Fleiri til útlanda
■ Ætla má að hótel og aðrir sem viðskipti
eiga við erlenda ferðamenn hafi í verkfalls-
mánuðinum tapað viðskiptum við nokkuð á
3 þúsund útlendinga. Komur útlendinga
hingað til lands í október s.l. voru nú
rúmlega 2.100 talsins sem er helmingi færra
en í sama mánuði 1983. Komur íslendinga
voru hins vegar jafn margar, eða tæplega
5.800, samkvæmt yfirliti útlendingaeftirlits-
ins.
Um síðustu mánaðamót höfðu um 77.900
íslendingar komið heim frá útlöndum, sem
er 6.733 manns fleira en á sama tíma í fyrra,
eða um 10% fleiri nú.
Fjöldi erlendra ferðamanna var kominn í
rúmlega 79.200 um síðustu mánaðamót sem
er nærri 6.600 manns fleira en á síðasta ári
á sama tíma.
Vídeóleiga
kærð
fyrir klám
■ í fyrrakvöld var lagt hald á
nokkra tugi myndbanda í mynd-
bandaleigunni Vídeó-heimurinn,
í Reykjavík, en myndbandaleigan
hefur verið kærö fyrir útlán og
dreifingu á klámi.
Kæra þessi barst ríkissaksókn-
ara fyrir nokkru síðan, sem fól
RLR málið. Eftir lauslega athug-
un þótti sem kæran gæti átt við
rök að styðjast og því var látið til
skarar skríða sem fyrr getur.
Hugmynda-
samkeppni
k)iiíH)ai tmiilúins
XÝII llH'iki
iiýII tákn
Mikil gróska er nú í starfsemi Iðnaðarbankans.
Bankinn hefur vaxið ört undanfarin ár, enda lagt
kapp á að mæta kröfum viðskiptavina sinna um sífellt
betri þjónustu. Um þessar mundir stendur yfir víðtæk
endurskipulagning á starfsemi bankans, í því skyni, að
búa hann enn betur undir það markmið, að vera
nútíma banki, sem veitir góða þjónustu. Liður í þess-
ari endurskipulagningu er hugmyndasamkeppni sem
bankinn efnir nú til. Samkeppnin er í tveimur liðum:
a) Um nýtt merki, skrift og einkennislit, eða liti fyrir
bankann.
b) Um myndrænt tákn til notkunar í auglýsingum og
kynningargögnum bankans.
Samkeppnin er haldin samkvæmt reglum FÍT, Félags
íslenskra auglýsingateiknara og er öllum opin.
Veitt verða ein verðlaun fyrir bestu tillögurnar.
a) Fyrirmerki, skrift og einkennislit kr. 120.000.00
b) Fyrirtáknkr. 40.000.00
Tillögur um merki skulu vera 10-15 cm í þvermál, í
svörtum lit, á pappírsstærð DIN A-4. Einkenna skal
tillögurnar með kjörorði, en nafn höfundar og
heimilisfang fylgi með í lokuðu ógagnsæju umslagi.
Þátttakendum er heimilt að senda fleiri en eina
tillögu. Skal hver tillaga þá hafa sér kjörorð og henni
fylgja sér umsiag með nafni höfundar.
Dómnefnd skipa: Bragi Ásgeirsson, listmálari, Gísli
B. Björnsson, teiknari FÍT., Rafn Hafnfjörð, prent-
smiðjustjóri, Tryggvi T. Tryggvason, teiknari FÍT. og
Valur Valsson, bankastjóri.
Ritari dómnefndar og jafnframt trúnaðarmaður
keppenda er Jónína Michaelsdóttir, Iðnaðarbankan-
um við Lækjargötu. Fátttakendur geta snúið sér til
hennar og fengið frekari upplýsingar um samkeppn-
ina og um Iðnaðarbankann. Síminn er 91 -20580.
Skilafrestur tillagna er til 15. janúar 1985. Skal skila
tillögunum í póst eða til einhverrar afgreiðslu Iðnaðar-
bankansmerktum:
Iðnaðarbankinn
Hugmyndasamkeppni
b/t Jónínu Michaelsdóttur
Lækjargötu 12
101 Reykjavík.
Dómnefnd skal skila niðurstöðum innan eins mánað-
ar frá skiladegi.
Efnt verður til sýningar á tillögunum og þær endur-
sendar. Verðlaunaupphæðin er ekki hluti af þóknun
höfundar. Iðnaðarbankinn áskiiur sér einkarétt á
notkun þeirra tillagna sem dómnefnd velur. Jafn-
framt áskilur bankinn sér rétt til að kaupa hvaða
tillögu sem er samkvæmt verðskrá FÍT.
Iðnaðartankinn
-nútímabanki