NT - 09.11.1984, Blaðsíða 5

NT - 09.11.1984, Blaðsíða 5
Vill enginn eiga meirihluta í kísilmálmvinnslunni? Eina erlenda fyrirtækið, sem sýnt hafði því áhuga, er nú út úr myndinni ■ Enn hefur ekkert verið ákveðið með hugsanlegan meðeiganda eða samstarfsaðila að kísilmálmvinnslunni, sem fyrirhugað er að reisa við Reyðarfjörð. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum NT hefur breskt fyrirtæki, sem er ofarlega í huga íslenskra stjórnvalda sem meðeigandi, dregið sig út úr myndinni. Fyrirtæki þetta var tilbúið til að eiga meirihluta í kísilmálmvinnslunni, í samræmi við stefnu yfirvalda, og hafði sýnt því verulegan áhuga, er það dró sig síðan skyndilega til baka. Geir Gunnlaugsson, fram- kvæmdastjóri kísilmálmvinnsl- unnar vildi ekki staðfesta þetta í samtali við NT í gær, en sagði að viðræður myndu fara fram við fyrirtækið í desember. t>ó væri ljóst, að líkurnar á þátttöku þess væru minni nú en áður. Sagði hann, að fyrirtækið hefði nýlega keypt námur í Portúgal og Englandi og hefði ekki svig- rúm fyrir meiri fjárfestingar að sinni. Englendingarnir væru hins vegar tilbúnir til að taka upp viðræður aftur á næsta ári. Þeir hafa gert könnun á arðsemi væntanlegrar verksmiðju og þær niðurstöður eru jákvæðar. Tvö erlend fyrirtæki eru enn inni í myndinni sem hugsanlegir meðeigendur íslendinga í kís- ilmálmvinnslunni, bandaríska fyrirtækið Dow Corning og Elk- em hinir norsku. Hvorugt þeirra mun þó vera tiibúið til að eiga meirihluta. Þriðji aðili þyfti því að koma til sögunnar, ef fylgja ætti þeirri stefnu iðnaðarráð- herra að meirihluti stórfyrir- tækja skuli vera í eigu útlend- inga. íslensk sendinefnd er nýkom- in frá Bandaríkjunum, þar sem rætt var við forsvarsmenn Dow Corning, og að sögn Geirs Gunnlaugssonar voru það já- kvæðar viðræður. Dow Corning er að bera saman kísilmálm- vinnsluna á Reyðarfirði og aðra valkosti þeirra í þeim efnum og er niðurstöðu úr þeim saman- burði ekki að vænta fyrr en um áramótin. Ef hún reynist íslend- ingum jákvæð, er undirbúning- ur það vel á veg kominn, að hægt verður að hefjast handa um framkvæmdir á næsta vori. Ef af því verður, þá verður hægt að taka einn ofn í notkun árið 1987 og annan 1988. Sú tímasetning tengist fram- kvæmdum við Blöndu og er hún hagstæð fyrir bandaríska fyrir- tækið. Elkem hefur lýst því yfir, að það hafi áhuga á frekari upp- byggingu á stóriðju á íslandi, en Norðmennirnir vilja að verk- smiðjan rísi síðar en íslending- ar. Pá hafa þeir lýst því yfir, að þeir vilji eiga um 30% af verk- smiðjunni, eins og er með járn- blendiverksmiðjuna á Grundar- tanga. Síðasti fundur með Elk- em var í ágúst og hefur nýr fundur ekki verið ákveðinn. Sjúkrastöðin Vogur: Annar ekki eftirspurn ■ Sjúkrastöð SÁÁ, Vogur, sem tekin var í notkun um áramótin, hef- ur verið fullnýtt frá því í apríl, og þrátt fyrir að með tUkomu hennar hafi sjúkrarúmum fjölgað úr 38 í 60 hefur ekki veríð unnt að anna eftirspum eftir sjúkradvöl. Það sem af er þessu ári hafa 1350 manns komið til meðferðar hjá SÁÁ, en um 7600 frá upphafi. Ef leikið er með tölur má reikna út að um 2.5% þjóðarinnar hafi farið í meðferð hjá SÁÁ frá upp- hafi. Ef hægt er að alhæfa að um tíundi hver íslend- ingur þjáist með einum eða öðrum hætti af alka- hólisma, má jafnframt slá því föstu að fjórðungur þeirra hérlendis sem við þetta vandamál eiga að stríða hafi komið til með- ferðar hjá SÁÁ. Hlutfall kvenna fer nú vaxandi og eru þær um fjórðungur sjúklinganna. Einnig fer meðalaldur lækkandi. ■ Framkvæmdastjóm SÁÁ, sem kjörín var á síðasta aðalfundi: Valgerður Bjarnadóttir, Hendrik Berndsen, Óthar Örn Petersen, Ragnheiður Guðnadóttir, Þórar- inn Þorkell Jónsson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Ragnar Aðalsteinsson, Fríðrik Theódórsson og Einar Kristinn Jónsson, framkvæmdastjóri SÁÁ. Starfsmenn SÁÁ eru 70 á fjórum stöðum. Auk meðferðarinnar býður SÁÁ upp á víðtæka fræðslu og ráðgjafaþjón- ustu í samvinnu við áfeng- isvarnardeild Heilsu- verndarstöðvarinnar og munu tæplega 500 ein- staklingar notfæra sér þá þjónustu á mánuði hverjum. „Alltaf gaman á Kirkjuþingi“ - segir Margrét Gísladóttir, full- trúi leikmanna af Austurlandi ■ Margrét Gísladóttir, fulltriíi leikmanna í Aust- urlandskjördæmi og önnur tveggja kvenna á Kirkjuþingi, hefur setið öll þingin nema eitt frá árinu 1970, fyrst sem vara- maður, en síðan sem aðal- fulltrúi. Aðspurð sagði hún, að eríitt væri að taka ákveðin mál út úr þeim mikla fjölda, sem lægi fyr- ir þinginu, en hún nefndi þó sérstaldega hugmynd- ina um leikmannaráð- stefnu og starfsmanna- frumvarpið. Starfsmannafrumvarpið gerir m.a. ráð fyrir því að biskuparnir verði þrír. „Það er mjög gott út frá sjónarmiði okkar, sem höfum áhuga á kristilegu starfi, að biskupinn komi út til fólksins, en einn biskup kemst ekki yfir það,“ sagði Margrét. Þá sagði hún að einnig væri nauðsynlegt að stofna embætti vígslubiskups, þar sem smám saman væri verið að auka við starfs- vettvang hans. Margrét var spurð hvort leikmenn ættu eitthvert erindi inn á Kirkjuþing. „Já, ég tel það;“ sagði hún. „Leikmenn eru full- trúar fólksins og sjónar- miðin, sem fram koma verða fjölbreyttari." Sagði hún að leikmönnum dytti oft annað í hug en prestun- um. Aðspurð um hvers vegna svo fáar konur væru á Kirkjuþingi, sagði Margrét, að það væru sóknarnefndirnar sem kysu fulltrúana og í þeim ■ Margrét Gísladóttir, fulltrúi leikmanna á Aust- urlandi. væru fleiri karlar. En hef- ur þetta þing verið skemmtilegur tími? „Já, mér finnst alltaf gaman að vera á Kirkju- þingi. Það er góð samvera með öllu þessu fólki,“ sagði Margrét Gísladóttir, fulltrúi á Kirkjuþingi. k it it k k * k k Mjög afkastamikill ca 3800 m /klst Vinnslubreidd 215 cm Tekur uppí sig bæði að framan og aftan. Gleypir 125 cm háa skafla sé bakkað en 72 cm skafla sé keyrt áfram. Vinnur vel í blautum snjó og eins í hjarni Einfaldur og sterkbyggður Aflþörf: 60-70 hö. Verð ca 125.000. -kr. Var prófað á íslandi sl. vetur - Vel þess virði að hann sé skoðaður Veitum allar nánari upplýsingar G/obus/ Bændur - Búnaðarfélög ■ Bæjarfélög ■ Verktakar ASP-snjóblásari LAGMÚLI 5, SIMI 81555

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.