NT - 09.11.1984, Síða 17
Föstudagur 9. nóvember 1984 17
Vatnslitamyndir
í Ásmundarsal
■ f Ásmudarsal við Freyju-
götu stendur nú yfir sýning á
vatnslitamyndum eftir Hans
Christiansen.
Sýningin verður opin til 11.
nóvember.virka daga kl. 16.00-
22.00 og um helgar kl. 14.00-
22.___________________
Sýning Ómars í
Listvinahúsinu
■ í Listvinahúsinu í Lækjar-
götu 2 stendur yfir sýning
Omars Skúlasonar. Á sýning-
unni eru um 50 verk, aðallega
klippimyndir, en unnar með
blandaðri tækni. Verkin eru
frá 1976 til dagsins í dag.
Opnunartími er virka daga
kl. 10-18, en laugardaga og
sunnudaga kl. 14-18, en lokað
er á mánudögum.
Myndræn tjáning
um reykingar
■ NústenduryfiríMenning-
armiðstöðinni Gerðubergi sýn-
ing á veggmyndum og mynda-1
sögum úr samkeppni þeirri
sem reykingavarnanefnd
efndi til meðal grunnskóla-
nema snemma á árinu 1983.
Sýningin er á vegum Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur og
snerta allar myndirnar með
einhvejrum hætti reykinga-
vandamálið.
Sýningin stendur yfir til 18.
nóvember, og er húsið opið
almenningi mánudaga til
fimmtudaga kl. 16-22 daglega
og á laugardögum og sunnu-
dögum kl. 14-18.
Síðasta sýningar-
helgi Sigurbjörns
Loga í Eden
■ Sýning Sigurbjörns Eldons
Logasonar í Eden í Hvera-
gerði, sem átti að ljúka um
síðustu helgi, hefur verið
framlengd. Henni lýkur nú um
helgina.
■ í Gallerí Borg stendur nú
yfir sýning á níu olíumálverk-
um og níu litateikningum eftir
Þorbjörgu Höskuldsdóttur, en
þetta er fimmta einkasýning
hennar. Þá sýnir Anna K.
Jóhannsdóttir keramíkverk í
Gallerí Borg; vasa, skálar og
eyrnaskraut. Þetta er fyrsta
einkasýning Önnu.
■ Lionsmenn tilbúnir með perurnar.
Perusala í Kópavogi
■ Laugardag og sunnudag,
10. og 11. nóvember, verður
Lionsklúbburinn Muninn með
hina árlegu perusölu sína í
Kópavogi.
Kópavogsbúar hafa alltaf
tekið þessari perusölu vel, að
' sögn Lionsmanna, og notað tæki-
færið til að birgja sig upp af
ljósaperum fyrir skammdegið.
Með því hafa þeir slegið tvær
flugur í einu höggi, tryggt sig
fyrir því að þurfa ekki að sitja
í myrkrinu ef pera bilar, jafn-
framt því að styðja gott má-
lefni.
Að venju rennur allur ágóði
af perusölunni til líknarmála.
Flóamarkaður
■ Safnaðarfélag Áspresta-
kalls heldur flóamarkað í bygg-
ingu safnaðarheimilisins við
kirkjuna laugardaginn 10. nóv.
kl. 13. Góðurvarninguríboði,
s.s. húsgögn, heimilistæki,
fatnaður og margt fleira.
Stjórnin
Flóamarkaður
■ Kvenfélag Karlakórs
Reykjavíkur heldur hinn ár-
lega basar sinn, kökusölu og
flóamarkað að Hallveigar-
stöðum á morgun, laugardag-
inn 10. nóvemberkl. 14. Glæsi-
legt úrval muna, jólaföndur og
skreytingar og aldrei meira
úrval af kökum.
Fjáröflunardagur
Kvenfélagsins á
Seltjarnarnesi
n.k. sunnudag
■ Sunnudagurinn 11. nóv-
ember er fjáröflunardagur
Kvenfélagsins á Seltjarnar-
nesi. Þá verða félagskonur
m.a. með kökusölu, skyndi-
happdrætti, lukkupoka og
flóamarkað. Húsið verður
opnað kl. 14.00.
Næsti fundur félagsins verð-
ur svo þriðjudaginn 20. nóv-
ember kl. 20.30 í Félagsheimil-
inu að venju. Til skemmtunar
verðurm.a. kynningáfatnaði, I
undir stjórn Unnar Steinsson,
og kynning á vörum til jólanna.
Öllum konum í bænum er
opinn þessi fundur.
Basar í Digra-
nesprestakalli
Kópavogi
■ Kirkjufélag Digranes-
prestakalls verður með glæsi-
legan basar í safnaðarheimil-
inu Bjarnhólastíg 26, Kópa-
vogi laugardaginn 10. nóvem-
ber. Mikið af góðum munum,
kökum og lukkupokum.
Nefndin
Flóamarkaður
og hlutavelta í
Hljómskálanum
■ Næstkomandi laugardag,
10. nóv. kl. 14 gangast „Lúðra-
sveitakonur” fyrir hlutaveltu
og flóamarkaði í Hljómskálan-
um við Tjörnina.
Guttormur Jónsson ásamt tveimur verka sinna
Skúlptúr-sýning
á Kjarvalsstöðum
■ Guttormur Jónsson opnar
sýningu á verkum sínum á
Kjarvalsstöðum laugardaginn
10. nóvember kl. 14.00. Á
sýningunni sýnir Guttormur 29
verk, sem unnin eru í tré, stein
og trefja-steinsteypu, þar af
eru 18 verk úr íslensku tré.
Guttormur stundaði nám í
höggmyndadeild Myndlistar-
skóla Reykjavíkur 1978-1981.
Þetta er fyrsta einkasýning
hans, en hann hefur áður sýnt
á samsýningum á Akranesi og
í Reykjavík.
Sýningin verður opin dag-
lega frá kl. 14-22 fram til 25.
nóvember.
■ Valgarður Gunnarsson og Böðvar Björnsson
Handmáluð Ijóð
■ Valgarður Gunnarsson og
Böðvar Björnsson opna sýn-
ingu í vestursal Kjarvalsstaða
laugard. 10. nóv. kl. 15.00.
Sýnd verða átján handmáluð
ljóð eftir Böðvar, unnin í
samvinnu þeirra Valgarðs og
Böðvars. Ljóðmyndirnar eru
unnar í olíu, akríl og pastel.
Auk þess sýnir Valgarður
u.þ.b. 40 myndir unnar í ýmis
efni, svo sem olíu, vatnslit og
gouache.
Valgarður Gunnarsson
stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla íslands og
Empire State Collage í New
York.
Sýningin stendur til 25. nóv-
ember.
Listamiðstöðin:
„Silkiþrykktar
leirmyndir“
■ Laugardaginn 10. nóvem-
ber kl. 15 opnar Guðni Er-
lendsson sýningu á verkum
sínum í Listamiðstöðinni við
Lækjartorg. Um 30-40 verk
verða á sýningunni og er þetta
sölusýning.
Guðni var eigandi leirkera-
smiðjunnaí Eldstó við Mikla-
torg, einnig rak hann um skeið
gjafaverslunina Nr. 1 í Aðal-
stræti ásamt eiginkonu sinni.
Síðar stofnsetti hann og rak
matstaðinn Hornið í Hafnar-
stræti um 3ja ára skeið, ásamt
Galleríinu Djúpið.
Þetta er fyrsta einkasýning
Guðna Erlendssonar. Hann
kallar hana Leirmyndir, og
segir listamaðurinn að vinnsla
þeirra sé með nokkuð óvenju-
legum hætti, eða „silkiþrykkt-
ar leirmyndir”, eins og hann
kemst að orði.
Sýningin stendur yfir dagana
10.-18. nóv. og er opin alla
daga kl. 14-19, nema fimmtu-
daga og sunnudaga kl. 14-22.
■ Guðmundur Ármann Sigurjónsson
Málverkasýning Guðmundar
Ármanns í Alþýðu-
bankanum á Akureyri
■ í Alþýðubankanum á Ak-
ureyri stendur nú yfir kynning
á verkum Guðmundar Ár-
manns Sigurjónssonar listmál-
ara.
Guðmundur hefur haldið
nokkrar einkasýningar og tek-
ið þátt í mörgum samsýningum
hérlendis sem erlendis.
Sýningin í Alþýðubankan-
um er á vegum bankans og
Menningarsamtaka Norðlend-
inga.