NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 09.11.1984, Qupperneq 27

NT - 09.11.1984, Qupperneq 27
Viggó Sigurðsson gerði 9 mörk gegn Fjellhammer í gærkvöldi. NT-mynd: Tryggvi Körfuknattleikslandsliðið: Evrópukeppni hér á landi - mörg verkefni framundan ■ Mörg verkefni eru áætlul fyrir íslenska landsliðið í körfu- knattleik allt fram á vorið 198o en þá fer fram C-riðill Evrópu- keppninnar hér á landi, sem er nokkurs konar lokatakmark sem stefnt er að í þessari lotu. „Takmarkið er auðvitað að vinna C-riðilinn og komast þar með upp í B-riðil sem leikinn verður í maí 1986,“ sagði Einar Bollason þjálfari. Svo vikið sé nánar að verk- efnum landsliðsins þá eru fyrir- huguð 3-4 leikkvöld á stöðum eins og Njarðvík, Akranesi, Borgarnesi og Selfossi þar sem mætast A og B landslið, úrval ■ í nýútkomnu riti sem UEFA (Knattspyrnusamband Evr- ópu) sendi frá sér er fjallað lítillega um sigur íslendinga á ■ Hér fagna íslendingar markinu á móti Wales. NT-ayW: Áni Bjana af staðnum Old-boys o.fl. sem mönnum dettur í hug. Einnig er fyrirhugaður pressuleikur í Laugardalshöllinni. Pá er fyrirhuguð keppnisferð til Noregs um miðjan desem- ber, heimsókn frá írlandi, 4-5 landa keppni í Luxemburg eða Skotlandi, heimsókn frá Hol- landi í apríl, en Hollendingar hafa ávallt reynst okkur vel og ætla að dvelja í æfingabúðum með íslenska liðinu fyrir Polar Cup, Norðurlandamótið, sem fram fer í Finnlandi þann 19,- 22. apríl '85. Samtals eru áætlaðir 15-19 landsleikir veturinn ’84-’85. í Wales í undankeppni heims- meistarakeppninnar. Er sagt svo frá að land sem missir alla sína bestu leikmenn til annarra landa til að spila knattspyrnu geti átt á hættu að verða fórnar- lamb áhorfendafækkunar og að áhuginn fyrir landsliði við- .komandi lands verði lítill og áhorfendur sjái sér ekki neinn hag í því að mæta á landsleiki. Blaðið segir síðan að á Is- landi sé þetta einungis til að gera íslensku atvinnumennina öflugri og áhorfendur flykkist á landsleiki til að sjá stjörnurn- ar sínar spila. Petta hafi síðan góð áhrif á leikmenn sem séu tilbúnir til að standa sig vel. Leikurinn gegn Wales sé gott dæmi um þetta. Áhorfendur komu á völlinn og atvinnu- mennirnir sýndu sínar bestu hliðar á vellinum og úrslitin urðu einhver þau bestu sem íslenskt landslið hefur náð frá upphafi. Þá er einnig sagt frá því að þessi úrslit hafi kætt mjög Skota og Spánverja. maí ’85 verður landsliðshópur- inn svo endurskoðaður. Helstu verkefnin hjá lands- liðinu næsta vetur verða keppn- isferð á Bretlandseyjar í nóv- ember, USA ferð á slóðir Dool- ey sem þjálfaði ÍR-inga um árið, í des.-janúar ‘86. Lokaundirbúningur fyrir EM hefst svo um miðjan mars ‘86 en riðillinn verður leikinn frá ca. 17. apríl hér á landi eins og áður sagði. Pað fer svo eftir gengi liðsins í þeirri keppni hvort íslendingar komast upp í B-grúppu. Pess má geta að síðast þegar Einar Bollason þjálfaði lands- liðið munaði minnsu að því tækist að gera það sem nú er stefnt að en þá lék Pétur Guð- mundsson með liðinu. Nú hefur landsliðinu áskotn- ast nýr hávaxinn miðherji þar sem Ivar Webster er, en hann öðlaðist íslenskan ríkisborg- ararétt nýverið, svo spurningin er hvort ekki sé sannkölluð agúrkutíð í vændum hjá ís- lenska landsliðinu í körfuknatt- leik. Júdómótið ■ Fyrsta Júdómót hausts- ins verður haldið í íþrótta- húsi Kennaraháskólans á laugardaginn. Mótið sem kailast Haust- mót JSÍ er flokkakeppni full- orðinna og taka allir bestu júdómenn landsins þátt í því. Mótið fer fram á laugar- daginn eins og fyrr sagði og hefst kl. 14.00. Júdóáhugamenn ættu að fjölmenna og fylgjast með Bjarna Friðrikssyni ólymp- íuhetju okkar og fleiri köpp- um glíma í íþróttahúsi Kenn- araháskólans. Frábær úrslit Föstudagur 9. nóvember 1984 27 IHF-keppnin í handknattleik: Víkingarnir komast áfram - þrátt fyrir tap í gærkvöld ■ Víkingur og Fjellhammer léku síðari Evrópuleik sinn í Osló í gærkvöldi. Einsogkunn- ugt er sigruðu Víkingar í fyrri leik liðanna í fyrrakvöld með sex marka mun 26-20 og því þurftu Norðmennirnir að sigra stórt í seinni leiknum til að komast áfram í næstu umferð keppninnar. Norðmönnunum tókst að vísu að sigra en ekki nógu stórt, þannig að það eru Vík- ingarnir frá íslandi sem halda áfram. Leiknum í gærkveldi lauk eins og áður sagði með sigri Fjellhammer sem gerði 25 mörk gegn 23 mörkum Víkings. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og mikil harka, greinilegt að Norðmennirnir ætluðu sér ekkert annað en stórsigur en það fór á annan veg en þeir væntu því Víkingar börðust vel í vörninni og gáfu ekkert eftir. Liðin voru yfir til skiptis í fyrri hálfleik en aldrei munaði miklu og þegar blásið var til leikhlés höfðu Víkingar eins marks forystu á norska liðið, 11 mörk gegn 10. í seinni hálfleik hélt strögglið áfram og liðin skiptust nokkuð jafnt á að skora, Fjellhammer þó ívið yfir oftast en Víkingar hleyptu þeim þó aldrei langt frá sér. Mestur munur á liðun- um var þegar Fjellhammer hafði þriggja marka forystu tvisvar í seinni hálfleik en Vík- ingar minnkuðu muninn óðara aftur og voru einu marki undir 24-23 þegar dönsku dómararnir slepptu augljósu víti á Fjell- hammer og norska liðið brun- aði upp í hraðaupphlaup og skoraði 25. markið á síðustu sekúndunum. Pannig að í staðinn fyrir að Víkingur jafnaði leikinn unnu Norðmennirnir með tveimur mörkum. Tveggja marka mis- tök hjá dómurunum sem voru vilhallir norska liðinu í öllum vafaatriðum. Viggó Sigurðsson lék mjög vel í leiknum í gærkvöldi og skoraði mikið af mörkum eða níu talsins. Hilmar Sigurgísla- son lék einnig vel, hefur staðið sig stórvel í þessari „Víkinga- ferð“ til Noregs. Hann gerði 4 mörk. Ellert Vigfússon stóð sig frábærlega í markinu og það má reyndar segja það sama um alla Víkingana, þeir voru góðir. Guðmundur Guðmundsson skoraði 5 mörk, Karl Þáinsson 3 og þeir Steinar Birgisson og Siggeir Magnússon skoruðu 1 mark hvor. ■ Laugarvatnsbræðurnir Hreinn og Gylfi eru báðir í hópnum svo og Leifur Gústafsson. NT-mynd: Sverrir Körfuknattleikur: Landsliðið valið ■ EinarBollason.þjálfariís- lenska landsliðsins í körfu- knattleik, hefur ásamt lands- liðsnefnd valið hóp þann sem tekur þátt í undirbúningi landsliðsins fyrir EM ’86 sem haldið verður hér á landi í fyrsta skipti. Einar tilkynnti um hópinn á blaðamannafundi í gær og er hann skipaður þessum leik- mönnum: Pálmar Sigurðsson, Haukur ívar Webster, Haukum Ólafur Rafnsson, Haukum Gylfi Þorkelsson, ÍR Hreinn Þorkelsson, ÍR Hjörtur Oddsson, ÍR Tómas Holton, Val Torfi Magnússon, Val Leifur Gústafsson, Val Guðni Guðnason, KR Birgir Mikaelsson, KR Valur Ingimundarson, UMFN ísak Tómasson, UMFN Jón Kr. Gíslason, ÍBK Sturla Örlygsson, Reyni. Auk þessara 15 leikmanna verða 4-5 valdir úr 10 manna hópi leikmanna 20 ára og yngri og verður þeim bætt við í lok nóvember. Athygli vekur að enginn af þeim geysisterku leikmönnum sem dveljast í Bandaríkjunum er í hópnum og nægir að nefna nöfn eins og Axel Nikulásson, Pál Kolbeinsson, Matthías Matthíasson, Fiosa Sigurðsson og Jóhannes Kristbjörnsson sem útaf fyrir sig eru heilt byrjunarlið, í því sambandi. Einar Bollason sagði um þessa leikmenn að þeir kæmu til greina, en aðeins ef þeir væru tilbúnir til að æfa með landsliðinu og gætu komið heim í vor. Pað vekur og athygli að Kristján Ágústsson sá marg- reyndi landsliðsmaður er ekki í þessari upptalningu en hann gaf ekki kost á sér því hann hyggst leggja skóna á hilluna í vor er þessu keppnistímabili lýkur. Verður mikill sjónar- sviptir að þessum vinsæla leik- manni í körfunni í framtíðinni. Þeir Hálfdán Markússon og Jónas Jóhannesson gáfu heldur ekki kost á sér í hópinn. Einar Bollason, sem marg- oft hefur þjálfað landsliðið í körfubolta, sagði að hann hefði aldrei haft annan eins mannskap til að moða úr og vissulega verður fróðlegt að fylgjast með framgangi liðsins undir hans stjórn. Bikarkeppni KKl ■ Dregið verður í bikar- keppni KKÍ laugardag- inn 1. des. kl. 11.30. Fyrir þann tíma þurfa þátt- tökutilkynningar að ber- ast skrifstofu KKÍ, ásamt þátttökugjaldi fyrir fyrstu umferð (kr. 1100 fyrir meistaraflokk og kr. 500 fyrir aðra flokka).

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.