NT - 12.11.1984, Blaðsíða 3
Mánudagur 12. nóvember 1984
Samanburður á frystum sjávarafurðum hjá SÍS og SH:
10% verðmeiri
njá Sambandinu
■ Söluverðmæti hvers punds framleiðslusamsetningu frysti- einnig er meira framleitt í dýrari náð íengra í því að nýta fiskinn,
af fiski frá sjávarafurðadeild húsanna. pakkningar. Það kemur m.a. til einsogbestverðurkosið, vegna
Sambandsins var um 10% meira . , f af því að fyrr á þessu ári þurfti betri tækjakosts. f uppbyggingu
... „... ,, .. Þessi mismunur stafar fyrst SH að lata draga ur framleiðslu . " ýf6,.,6,
en h)a Solumiðstoð hra rys í- 0gfremstafþví,aðframleiðslu- á slíkum afurðum vegna mark- frystihusanna hefur venð lögö
húsanna fyrstu sjö mánuði þessa samsetning frystihúsa Sam- aðsörðugleika, en Sambandið á það áhersla að alltaf sé hægt
árs, að því er kemur fram í bandsins er hagstæðari. Hlutfall ekki. að vinna hluta af framleiðslunni
athugun Pjóðhagsstofnunar á þorsks í aflanum er meira og Frystihús Sambandsins hafa í dýrustu pakkningar.
Kaupogkjör:
BHM hugsar sér
til hreyfings
■ Bandalag háskóla-
manna er farið að búa sig
undir að leggja fram
kröfur um kaup og kjör í
kjölfar þeirra samninga
sem gerðir hafa verið á
vinnumarkaðinum að
undanförnu. Formlegar
viðræður hafa enn ekki
farið fram við launadeild
fjármálaráðuneytisins, en
búast má við, að þær hefj-
ist fljótlega eftir að úrslit
eru kunn úr allsherjarat-
kvæðagreiðslunni um
samning BSRB og rikisins
eftir helgina.
Launamálaráð BHM
fundaði í fyrradag og var
BSRB samningurinn
kynntur og háskólamenn
ræddu það sín á milli
hvaða grundvöllur hann
væri fýrir kröfugerð
þeirra.
Skaðabótakröfur
á hendur BSRB
■ Arnarflugi hefur ekki borist svar frá
BSRB um skaðabótakröfu upp á 32 þúsund
krónur vegna aðgerða verkfallsvarða við
hlið Keflavíkurflugvallar þann 9. október
síðastliðinn. Krafan byggist á beinum út-
lögðum kostnaði og beinu fjárhagslegu
tjóni, sem flugfélagið varð fyrir, er það
þurfti að flytja farþega flugleiðis milli
Reykjavíkur og Keflavíkur.
Vinnuveitendasambandið er að hefja
gagnasöfnun vegna skaðabótakrafna á
hendur BSRB fyrir hönd Flugleiða, ístaks
og íslenskra aðalverktaka. Vill VSÍ fá úr því
skorið hvort verkfallsvarsla við hlið Kefla-
víkurflugvallar hafi verið lögmæt. Gagna-
söfnun verður lokið í næstu viku og kröfurn-
ar lagðar fram.
Aukin yfirvinna á
móti verkfallstapi?
■ „Ég hef nú ekki trú á að margir verði til
að vinna að fullu upp með aukavinnu það
sem þeir misstu í verkfallinu. Frádrátturinn
var rúmlega 80% af mánaðarlaunum sem
þýðir að fólk þyrfti þá að vinna yfir 80 tíma
í aukavinnu umfram þá aukavinnu sem það
hefði haft við eðlilegar aðstæður. Þótt einn
og einn kunni að ná þessu verða það varla
margir - enda verulegur hluti af störfum
þess eðlis að þeim verður ekki sinnt eftir á“,
sagði Indriði H. Þorláksson, deildarstjóri í
fjármálaráðuneytinu, spurður hvort margir
ríkisstarfsmenn muni nú ekki vinna upp í
aukavinnu það sem þeir misstu í launum
vegna verkfalls BSRB. Jafnvel að sparaðar
launagreiðslur ríkisins fari nú út aftur í
yfirvinnugreiðslum.
Indriði sagði engan efa á því að einhver
hluti þess fjár færi í yfirvinnugreiðslur. í
sumum tilvikum megi búast við að um mikla
aukavinnu sé að ræða, t.d. þar sem verið sé
að vinna úr pósti, skjölum og öðrum
erindum sem safnast hafi fyrir í verkfallinu.
Mörgum störfum verði hins vegar ekki sinnt
eftir á. Lögreglan vinni t.d. tæpast auka-
vinnu nú við löggæslu sem átt hefði að fara
fram fyrir nokkrum vikum.
Yf ir 60%
sogðu ja
■ Á laugardag var talinn fyrsti
hluti atkvæða í allsherjar atkvæða-
greiðslu BSRB um nýgerðan kjara-
samning.
Þá voru talin yfir 90% greiddra
atkvæða, og varð þá ljóst að félags-
menn BSRB höfðu samþykkt samn-
inginn.
Alls voru talin 8812 atkvæði, sem
féllu þannig að já sögðu 5694, nei
sögðu 1170 og auðir seðlar voru
1923.
Kjörsókn var 82% eða 9600 at-
kvæði. Þar af voru rúm 7% skilin
eftir til að telja með þeim atkvæðum
sem berast utan af landi eftir helgi.
Úrslitin verða að teljast sigur
fyrir forystu samtakanna, þarsem
stórir hópar höfðu áform um að
skila auðu til að mótmæla samn-
ingnum, og einnig var fólk hvatt til
að fella samninginn. En með úrslit-
unum lýkur einum harðvítugustu
vinnudeilum í áraraðir.
Hugmyma-
samkeppnl
lónnúiu Imikíms
V V // innU
mll tákn
Mikil gróska er nú í starfsemi Iðnaðarbankans.
Bankinn hefur vaxið ört undanfarin ár, enda lagt
kapp á að mæta kröfum viðskiptavina sinna um sífellt
betri þjónustu. Um þessar mundir stendur yfir víðtæk
endurskipulagning á starfsemi bankans, í því skyni, að
búa hann enn betur undir það markmið,.að vera
nútíma banki, sem veitir góða þjónustu. Liður í þess-
ari endurskipulagningu er hugmyndasamkeppni sem
bankinn efnir nú til. Samkeppnin er í tveimur Iiðum:
a) Um nýtt merki, skrift og einkennislit, eða liti fyrir
bankann.
b) Um myndrænt tákn til notkunar í auglýsingum og
kynningargögnum bankans.
Samkeppnin er haldin samkvæmt reglum FÍT, Félags
íslenskra auglýsingateiknara og er öllum opin.
Veitt verða ein verðlaun fyrir bestu tillögurnar.
a) Fyrir merki, skrift og einkennislit kr. 120.000.00
b) Fyrirtákn kr. 40.000.00
Tillögur um merki skulu vera 10-15 cm í þvermál, í
svörtum lit, á pappírsstærð DIN A-4. Einkenna skal
tillögurnar með kjörorði, en nafn höfundar og
heimilisfang fylgi með í lokuðu ógagnsæju umslagi.
Þátttakendum er heimilt að senda fleiri en eina
tillögu. Skal hver tillaga þá hafa sér kjörorð og henni
fylgja sér umslag með nafni höfundar.
Dómnefnd skipa: Bragi Ásgeirsson, listmálari, Gísli
B. Björnsson, teiknari FÍT., Rafn Hafnfjörð, prent-
smiðjustjóri, Tryggvi T. Tryggvason, teiknari FÍT. og
Valur Valsson, bankastjóri.
Ritari dómnefndar og jafnframt trúnaðarmaður
keppenda er Jónína Michaelsdóttir, Iðnaðarbankan-
um við Lækjargötu. Þátttakendur geta snúið sér til
hennar og fengið frekari upplýsingar um samkeppn-
ina og um Iðnaðarbankann. Síminn er 91 -20580.
Skilafrestur tillagna er til 15. janúar 1985. Skal skila
tillögunum í póst eða til einhverrar afgreiðslu Iðnaðar-
bankansmerktum:
Iðnaðarbankinn
H ugmy ndasam keppni
b/t Jónínu Michaelsdóttur
Lækjargötu 12
101 Reykjavík.
Dómnefnd skal skila niðurstöðum innan eins mánað-
ar frá skiladegi.
Efnt verður til sýningar á tillögunum og þær endur-
sendar. Verðlaunaupphæðin er ekki hluti af þóknun
höfundar. Iðnaðarbankinn áskilur sér einkarétt á
notkun þeirra tillagna sem dómnefhd velur. Jafn-
framt áskilur bankinn sér rétt til að kaupa hvaða
tillögu sem er samkvæmt verðskrá FÍT.
Iðnaðarbankinn
-nútímabanki